Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.2000, Qupperneq 6

Læknablaðið - 15.11.2000, Qupperneq 6
Beint fyrir framan nefiö á þér er fljótlegri lausn gegn mígreni Imigran nefúöi er helmingi ™ j fljótvirkari en töflur ÞEGAR TIL KASTANNA KEMUR Imigran Glaxo Wellcome NEFÚÐALYF; N 02 C C 01. R.E. Hver skammtur inniheldur: Sumatriptanum INN, 20 mg, hjálparefni og Aqua purificata ad 0,1 ml. STUNGULYF sc; N 02 C C 01. 1 ml inniheldur: Sumatriptanum INN, súkkinat, 16,8 mg, samsvarandi Sumatriptanum INN 12 mg, Natrii chloridum 7 mg, Aqua ad iniectabilia ad 1 ml. TÖFLUR; N 02 C C 01. Hver tafla inniheldur: Sumatriptanum INN, súkkinat, samsvarandi Sumatriptanum INN 50 mg eöa 100 mg. Ábendingar: Erfið mígreniköst, þar sem ekki hefur náðst viöunandi árangur með öörum lyfjum. Cluster (Hortons) höfuðverkur. Lyfið á einungis að nota, þegar greiningin migreni eða Cluster- höfuöverkur er vel staöfest. Skammtar; Skammtastærðir handa fullorðnum: Lyfiö á að gefa viö fyrstu merki um mígrenikast en getur verkað vel þó þaö sé gefiö siöar. Imigran er ekki ætlaö til varnandi meðferðar. Töflur: Venjulegur upphafsskammtur er ein 50 mg tafla. Sumir sjúklingar geta þó þurft 100 mg. Ef einkennin koma fram á nýjan leik má gefa fleiri skammta þó ekki meira en 300 mg á sólarhring. Töflurnar á að gleypa heilar með vatni. Stungulyf: Venjulegur upphafsskammtur er 6 mg (ein sprauta) undir húö. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra sprautu (6mg) innan 24 klst., en minnst 1 klst. verður að líða á milli lyfjagjafa. Takmörkuð reynsla er af gjöf fleiri en fjögurra skammta (24mg) á mánuði. Nefúðalyf: Venjuleg skammtastærð er 20 mg (einn úðaskammtur) i aðra nösina. Ef einkenni hverfa en koma aftur innan 24 klst. má taka annan skammt en þó fyrst eftir 2 klst. frá töku fyrri skammtsins. Ekki má taka fleiri en tvo skammta á sólarhring. Ef einkenni hverfa ekki eftir fyrsta skammt á ekki að taka annan skammt viö sama migrenikastinu. Skammtastæröir handa börnum: Lyfiö er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Kransæöasjúkdómar, alvarlegur háþrýstingur, bióörásartrufianir i útlimum, nýrnabilun, lifrarbilun. Ofnæmi fyrir innihatdsefnum lyfsins. Ekki má nota samtimis lyf, sem innihalda ergótamín. Imigran má ekki gefa fyrr en 24 klst. eftir gjöf ergótamíns og ergótamin má ekki gefa fyrr en 6 klst. eftir gjöf Imigran. Varnaðarorö og varúðarreglur: Við notkun lyfsins geta komið fram tímabundin einkenni eins og brjóstverkur og þrýstingstilfinning, sem getur orðið töluverö og leitt upp í háls. Þó þessi einkenni likist hjartaöng, heyrir til undantekninga að þau séu af völdum samdráttar i kransæðum. Herpingur i kransæðum getur leitt til hjartsláttartruflanna, blóðþurrðar og hjartavöðvadreps. Sjúklinga, sem verða fyrir slæmum eða langvarandi einkennum, sem líkjast hjartaöng, ber að rannsaka með tilliti til blóðþurrðar. Athugið: Stungulyfið má ekki gefa i æð vegna herpings i kransæðum og mikillar blóðþrýstingshækkunar, sem getur átt sér stað. Vegna takmarkaðrar klinískrar neyslu er ekki mælt með notkun lyfsins handa sjúklingum eldri en 65 ára. Milliverkanir: Ekki má nota samtimis lyf sem innihalda ergótamin. Engar sérstakar milliverkanir hafa fundist við própranólól, díhýdróergótamin, pízótifen eöa alkóhól. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er vitaö hvort lyfiö geti skaðað fóstur en dýratilraunir benda ekki til þess. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út i móðurmjólk. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Vara ber sjúklinga við stjórnun vélknúinna ökutækja eða vinnuvéla þar sem bæði migrenið og lyfið geta haft slævandi áhrif. Aukaverkanir: Allt að 50% sjúklinganna fá einhverjar aukaverkanir. Ýmis þessara óþæginda hverfa eftir 30-60 mín. og gætu sum þeirra verið hluti af migrenikastinu. Algengar (>1%): Oþægindi á stungustað (stungulyf). Bragð og tímabundin, væg erting eða sviði i nefi eða koki, blóðnasir (nefúðalyf). Þreyta og sljóleiki. Timabundin blóðþrýstingshækkun og húöroöi. Ógleði og uppköst. Máttleysi og spenna i vöðvum. Náladofi og hitatilfinning. Svimi. Þrýstingstilfinning með mismunandi staðsetningu, oftast fyrir brjósti. Sjaldgæfar (0,1%-1%): Hækkun lifrarensima i blóði. Mjög sjaldgæfar(<0,1%): Ofnæmislost. Blóðþrýstingsfall, hægataktur, hjartsláttarónot, hraðtaktur. Kláði, roði, útbrot, ofsakláði. Krampar. Sjóntrufianir. Ofskömmtun: Við ofskömmtun skal fylgjast með sjúklingi i a.m.k. tíu klst. og veita stuðningsmeðferð eftir þörfum. Ekki er vitað um áhrif blóð- eða kviðskilunar á blóöþéttni súmatriptans. Lyfhrif: Súmatriptan virkjar sérhæft serótónínviötaka af undirflokki 5-HTio i heilaæöum. Lyfið veldur þannig samdrætti i heilaæðum, einkum greinum a. carotis. Vikkun þessara æða er talin orsök verkjanna við migreni. Lyfjahvörf: Verkun lyfsins hefst 10-15 minútum eftir gjöf undir húð, 15 mínútum eftir nefúða og um 30 mínútum eftir inntöku. Aðgengi eftir gjöf undir húð er nánast 100%, en að meðaltali 14-16% eftir inntöku eða nefúða. Blóðþéttni nær hámarki innan 25 min. eftir gjöf undir húð, oftast innan 45 min. eftir inntöku og 60-90 min. eftir notkun nefúða. Dreifingarrúmmál er 2,7 l/kg. Binding við plasmaprótein er 20-30%. Lyfið umbrotnar að miklu leyti (80%) í óvirk umbrotsefni í lifur og skilst út i nýrum. Pakkningar; Nefúðalyf: Einnota nefúðatæki (0,1 ml) x 2; einnota nefúðatæki (0,1 ml) x 6. Stungulyf: einnota dæla 0,5 ml (=6 mg virkt efni) x 2; einnota dæla 0,5 (=6 mg virkt efni) x 2 + lyfjapenni (Glaxopen). Töflur 50 mg: 12 stk. (þynnupakkaö). Töflur 100 mg: 6 stk. (þynnupakkaö). Skráning lyfsins i formi stungulyfs er bundin því skilyrði, að notkunarleiðbeiningar á íslensku um meðfylgjandi lyfjapenna (Glaxopen) fylgi hverri pakkningu þess. Greiösluþátttaka miöast viö merkingu "E" í lyfjaskrám sem takmarkast viö lyfjaávisun á mest 6 stk. einnota nefúöatæki (0,1 ml) x 6, 2 stk. einnota dælu 0,5 ml (=6 mg virkt efni), 12 töflur á 50 mg og 6 töflur á 100 mg. Imigram nefúði, verð: 6 stk. kr. 8.339, 2 stk. kr. 3455. Verð samkvæmt lyfjaverðskrá l.júli 2000. GlaxoWellcome Þverholti 14 • 105 Reykjavik • Simi 561 6930 www.glaxowellcome.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.