Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.2000, Qupperneq 11

Læknablaðið - 15.11.2000, Qupperneq 11
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN COX-2 í stað NSAID, borgar það sig? Björn Guðbjörnsson Höfundur er dósent í gigtarrannsóknum við Rannsóknarstofu í gigtarsjúkdómum, Landspítala Hringbraut. í þessu hefti Læknablaðsins birtist yfirlitsgrein um asperín, forsögu þess og tilurð, ásamt nýjum meðferðarmöguleikum asperínskyldra lyfja (1). Við tímamót þar sem nýr lyfjahópur úr þessum lyfjaflokki kemur á markað, það er að segja COX-2 hemlar, er nauðsynlegt að fram komi ítarlegt yfirlit um stöðu þekkingar varðandi verkun þessara lyfja. Samtímis er rétt að skoða nánar heilsuhagfræðilegan þátt COX-2 hemla. Bólgueyðandi asperínlík lyf eða salflyf, eins og greinarhöfundur fyrrnefndrar yfirlitsgreinar kýs að kalla NSAID-lyfin, eru til á flestum heimilum hér á landi og ábendingar fyrir notkun salflyfja eru margþættar. Þar vega verkir af margvíslegum toga þungt, oft án nánari sjúkdómsgreiningar. Líklegast má ætla, að frátöldum ýmsum skammvinnum verkjavanda, að sjúklingar með slitgigt sé stærsti notkunarhópur salflyfja. Söluandvirði þessa lyfja- flokks nemur árlega um 270 milljónum króna hérlendis (2). I fyrrnefndri yfirlitsgrein er gerð ítarleg grein fyrir þróun þessa lyfjaflokks síðustu 100 ár og í seinnihluta greinarinnar eru kynntar nýstárlegar hugmyndir um verkja- og hitadempunaráhrif salflyfja. Ennfremur er fjallað um möguleika á nýjum meðferðaábendingum salflyfja í framtíðinni og von er gefin um super asperín á komandi öld. Þegar nýir lyfjaflokkar koma til sögunnar vakna spurningar um þjóðhagslegan ávinning, bæði heilsutengdan og fjárhagslegan. Meðferðarrann- sóknum er hrint úr vör til þess að sanna með- ferðargildi nýrra lyfja og birtar eru tölur um bætta líðan og jafnvel lengra líf sjúklinga og svo framvegis. Hinsvegar er minna talað um kostnaðarávinning Tafla I. Kostnaður vegna mismunandi lyfjategunda Lyfjaform Kostnaður í krónum á hvern meöferöarmánuö* Rófecoxíb 12, mg x 1 4.252 25,0 mg x 1 4.252 Naproxen 500 mg x 2 1.081 500 mg x 2 + misoprostoll 3.937 500 mg x 2 + omeprazo!2 5.898 Arthrotec® 50/0,2 mg x 3 4.236 * Upplýsingar frá Lyfjabúöinni Lyf & heilsa 16/10 2000 1) mísóprostól 200 pg x 2 2) ómeprazól 20 mg x 1 samfélagsins, enda sú aðferðafræði bæði flókin og erfið. Ávinningur þjóðfélagsins af nýjum lyfjum er margvíslegur. Virkari og árangusríkari meðferð miðað við hefðbundna meðferð á hverjum tíma getur auk þess sparað önnur, jafnvel dýrari meðferðarform - ný lyf bjóða oft upp á betri öryggismörk og því verður fækkun á alvarlegum aukaverkunum - árangursrík meðferð skilar fólki bæði oftar og fyrr út á vinnumarkað - ..... og svo mætti lengi telja. Það er vandi að ráða úr því hvaða þáttur vegur þyngst frá þjóðhagslegu sjónarmiði, en h'tum betur á COX-2 hemlana. Hér á landi hefur rófecoxíb (Vioxx®) nýlega komið á markað og er skammt að bíða þess að celecoxíb (Celebra®) verði einnig skráð hérlendis. Bæði þessi lyf hafa sambærilega verkun á stirðleika og liðverk gigtarsjúklinga, svo sem sjúklinga með slitgigt, iktsýki eða hryggikt, ásamt því að þau dempa ágætlega bráðaverk, til dæmis við tanndrátt - eða að minnsta kosti eins vel og eldri salflyfin (3,4). COX-2 lyfin eru fyrst og fremst kynnt á markaði sem verkja- og bólgueyðandi lyf með hærri öryggisstuðli en hin ósértæku salflyf, sjá nánar umfjöllun í fyrrnefndri yfirlitsgrein í þessu hefti Læknablaðsins. í þessu sambandi hefur umfjöllunin verið mest í kringum magasárafylgikvilla salí- lyfjanna. Aðrar frábendingar fyrir notkun salflyfja ber þó enn að virða er COX-2 hemlar eru notaðir, svo sem astma af völdum ASA ofnæmis, nýrna- sjúkdóma eða háþrýsting, jafnfram því að COX-2 hemla á ekki að nota í lok meðgöngu barnshafandi kvenna. Er öryggi salflyfja hefur verið metið með tilliti til meltingarfæra, hefur skapast sú hefð að skoða sáramyndun í maga með speglunartækni. Rann- sóknir sýna að COX-2 hemlar valda um 20% minni yfirborðssáramyndun, metið með speglun (absolute incidence). Hvert samband þessara yfirborðssára er við marktækar magablæðingar er ekki fullljóst í dag. Ef gengið er út frá klínískum magablæðingum og/eða magarofi hinsvegar, má áætla að alvarlegir meltingarfærafylgikvillar (ROBs = magarof, maga- stífla eða magablæðing) geri vart við sig hjá 1,5% iktsýkisjúklinga fyrir hvert meðferðarár sem þeir eru meðhöndlaðir með ósértækum salflyfjum (5). Þetta þýðir að fyrir hverja 10.000 sjúklinga sem með- höndlaðir eru með salflyfi, fá 150 alvarlega maga- Læknablaðið 2000/86 739
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.