Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2000, Side 13

Læknablaðið - 15.11.2000, Side 13
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN fylgikvilla og líklegast deyja 15 sjúklingar af völdum meðferðarinnar árlega! Meðferðarrannsóknir á rófecoxíb sýna að hlutfallsleg áhætta fyrir alvarlegum ROBs sé 0,49 miðað við meðferð með eldri salílyfjum (4). Hvað þýða þessar tölur? Sjúklingar með iktsýki og án annarra áhættuþátta fyrir magakvillum hafa 0,4% áhættu á ROBs við meðferð með salílyfjum, ef sami sjúklingahópur er meðhöndlaður með COX-2 hemli, þá lækkar þessi áhætta um 50% eða í 0,2%. Þetta samrýmist því að 500 sjúklinga með iktsýki og án annarra áhættuþátta fyrir magablæðingu þarf að meðhöndla í eitt ár, til þess að bjarga einum sjúklingi frá ROBs af völdum salflyfja. Hver verður þá kostnaðurinn við að koma í veg fyrir þennan eina magafylgikvilla, ef viðkomandi er meðhöndlaður með COX-2 hemli í stað ósértæks salflyfs? Jú, heilar 19 milljónir króna! Þá er ekki reiknað með sparnaði heilbrigðiskerfisins vegna þess fylgikvilla sem komist var fyrir, né annars tengds þjóðfélagskostnaðar, enda stórt og erfitt reikningsdæmi - en hvað má magablæðing af völdum lyfjameðferðar hjá heilbrigðum einstaklingi í fullu lífsstarfi kosta? Skoðum sama dæmi hjá áhættuhópi, til dæmis eldri einstaklinga með fyrri sögu frá meltingarfærum. Þessi hópur hefur mun hærri áhættu á alvarlegum fylgikvillum af völdum salflyfja, eða um 5%. Þetta endurspeglast þá í því að einungis 40 sjúklinga þarf að meðhöndla með COX-2 hemli í stað ósértæks salflyfs til þess að bjarga einum sjúklingi frá ROBs. Hér verður kostnaðurinn af að koma í veg fyrir alvarlegan magafylgikvilla salflyfa eingöngu ein og hálf milljón króna! Að framan eru tekin einföld reikningsdæmi um lífshótandi fylgikvilla meðferðar, sem oft er gefin án alvarlegs sjúkdóms. Þá er ekki gert ráð fyrir persónulegum skaða, né öðrum fylgikvillum sem salflyf geta valdið, né kostnaði samfélagsins vegna sjálfra fylgikvillanna! Öðrum og flóknari reikni- aðferðum má beita og finna hagstæðari saman- burðartölur, einnig má bera saman ósértæk salílyf með eða án annarra forvarnarlyfja, en það er eftirlátið öðrum. Niðurstöður sem liggja fyrir frá meðferðar- rannsóknum styrkja þá skoðun að þessi nýju COX-2 lyf hafi ýmislegt umfram eldri ósértæku salflyfin, en ábyggilegar niðurstöður um öryggi þeirra með tilliti til sjaldgæfra fylgikvilla koma þó ekki fram fyrr en eftir nokkur ár, er notkun þessara lyfja hefur orðið almenn og faraldsfræðilegum athugunum á fylgi- kvillum tengdum þessum lyfjaflokki er lokið, það er að segja postmarketing studies. Ef niðurstöður þessara rannsókna verða jákvæðar, verður hér verulegur ávinningur fyrir stóran hóp sjúklinga með tilliti til öryggis! Heimildir 1. Jóhannesson Þ. Asperín. Acetýlsalicýlsýra og önnur salílyf. Læknablaðið 2000; 86: 755-68. 2. Lyfjamál 84. Sala bólgueyðandi lyfja (ATC-MOIA) á fslandi 1990-1999. Læknablaðið 2000; 86: 310. 3. Simon LS, Weaver AL, Graham DY, Kivitz AJ, Lispsky PE, Hubbard RC, et al. Anti-inflammatory and upper gastro- intestional effects of celecoxib in rheumatoid arthritis. A randomized controlled trial. JAMA 1999; 282:1921-8. 4. Langman MJ, Jensen DM, Watson DJ, Harper SE, Zhao PL, Quan H, et al. Adverse upper gastrointestinal effects of rofecoxib compared with NSAIDs. JAMA 1999; 282:1929-33. 5. Silverstein FE, Graham DY, Senior JR, et ai. Misoprostoi reduced serious complications in patients with rheumatoid arthritis receiving nonsteroidal anti-inflammatory drugs. A randomized double-blend, placebo-controlled trial. Ann Intern Med 1995; 123: 241-9. 6. Freemantle N. Cost-effectiveness of non-steroidai anti- inflammatory drugs (NSAIDs) - what makes a NSAID good value for money? Rheumatology 2000; 39: 232-4. 7. van Dieten HEM, Korthals-de Bos IBC, van Tulder MW Lems WF, Dijkmans BAC, Boer M. Systemic review of the cost effectiveness of prophylactic treatments in the prevention of gastrophay in patients with rheumatoid arthritis taking non-steroidal anti-inflammatory drugs. Ann Rheum Dis 2000; 59:753-9. Atacand Hiisslc, 970003 Töflur, C 09 C A 06 RB Hver tafla inniheldur Candesartanum INN, cílexetíl 4 mg, 8 mg eða 16 mg. Abendingar: Hár blóðþrýstingur. Skammtar og lyfjagjöf: Skönimtun: Venjulegur viðhaldsskammtur Atacand er 8 mg eða 16 mg einu sinni á dag. Lyfið má taka með eða án matar og án tillits til aldurs. Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi (þ.e. kreatínín klerans <30 ml/mín.) skal hefja meðferð með 4 mg. Börn: Lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf. Varnaðar- orð og varúðarreglur: Skyld lyf geta aukið þvagefni í blóði og kreatínín í sermi hjá sjúklingum með tvfhliða nýrnaslag- æðaþrengsli eða þrengsli í slagæð að einu nýra ef aðeins eitt nýra er til staðar. Þetta getur einnig átt við um angíótensín II viðtaka antagónista. Hjá sjúklingum með alvarlega skert blóðrúmmál geta einkenni lágþrýstings komið fram. Sam- tímis gjöf á Atacand og kalíumsparandi þvagræsilyfi getur valdið hækkun á kalíumþéttni í sermi. Milliverkanir: Engar þekktar. Aukaverkanir: Lágþrýstingur vegna áhrifa lyfsins. Lyflirif: Eiginleikar: Candesartan er angíótensín II viðtaka blokki, sérhæfður fyrir ATl viðtaka, með sterka bindingu við og hæga losun frá viðtakanum. Það hefur enga eigin virkni. Blóðþrýstingslækkandi verkun hefst innan 2 klst., há- marks blóðþrýstingslækkandi verkun næst innan fjögurra vikna og helst við langtíma meðferð. Blóðþrýstingslækkun af völdum lyfsins helst jöfn í 24 klst. og þess vegna er nægj- anlegt að gefa lyfið einu sinni á dag. Candesartan eykur blóðflæði um nýru og viðheldur eða eykur gaukulsíunar- hraða á meðan viðnám nýrnaæða og síunarhlutfall minnkar. Atacand hefur engar óæskilegar verkanir á blóðsykur eða blóðfitu. Pakkningar og verð: Töflur 4 mg: 28 stk. 2853 kr.; 98 stk. 7966 kr.; 1 tafla x 98 stk. 6858 kr. Töflur 8 mg: 28 stk. 3172 kr.; 98 stk. 8987 kr.; 1 tafla x 98 stk. 7837 kr. Töflur 16 mg: 28 stk. 3810 kr.; 98 stk. 10980 kr.; 1 tafla x 98 stk. 9797 kr. Greiðsluþátttaka: B Sjá ítarlegri upplýsingar um lyfið í texta Sérlyfjaskrár 1999 Umboð á Islandi: Pharmaco hf. AstraZeneca Hörgatúni 2,210 Garðabær Sími: 535-7151 Fax: 565-7366 Læknablaðið 2000/86 741
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.