Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2000, Page 69

Læknablaðið - 15.11.2000, Page 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMNINGUR LÍ OG LYFJAFYRIRTÆKJA Stefán Guðjónsson frá Samtökum verslunarinnar, Guðbjörg Alfreðsdóttir formaður lyfjahóps Samtaka verslunarinnar, Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ og Jón G. Snœdal varaformaður LÍ. Samningur Læknafélags íslands og lyfjafyrirtækja Frá undirritun: Guðbjörg Alfreðsdóttir og Sigurbjörn Sveinsson. Læknafélag Íslands og lyfjahópur Samtaka verslunarinnar fyrir hönd lyfjaíyrirtækja hafa gert með sér þann samning sem hér er kynntur. Tilurð samningsins er sú að stjórn LÍ ákvað að skoða að nýju samskipti lækna og lyfjafyritækja, en fyrir allmörgum árum höfðu nefndir á vegum félagsins kynnt tillögur að reglum í Læknablaðinu án þess að þær hlytu formlega afgreiðslu (1). Fyrstir voru hins vegar heimilislæknar en félag þeirra gaf út leiðbeiningar til félagsmanna um samskipti þeirra við lyfjafyrirtæki árið 1987 (2). Nefnd er stjórnin skipaði haustið 1998 hefur unnið að þessu verkefni með hléum síðan. Hún var auk undirritaðs skipuð Halldóri Jónssyni heimilislækni í Lágmúlastöðinni og Birgi Jóhannssyni fyrrverandi formanni Félags ungra lækna. í starfi nefndarinnar kom upp sú hugmynd að í stað þess að gefa út einhliða leiðbeiningar væri vænlegra að gera samning við lyfjafyrirtæki um samskiptareglur því þá væri líklegra að samskipti yrðu farsæl en það er markmiðið. í framhaldi af þessu voru teknar upp viðræður við fulltrúa lyfjahóps Samtaka verslunarinnar. í ljós kom að hópurinn var að vinna að siðareglum fyrir lyfjakynna og að hugmyndir hópsins féllu vel að hugmyndum nefndarinnar. Samræðurnar gengu því vel og ekki tók langan tíma að komast að niðurstöðu. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir aðilar gera með sér samkomulag af þessu tagi og var því ákveðið að hafa hann tímabundinn svo innan fárra ára komi til endurskoðunar í ljósi reynslunnar. Þeir læknar sem vilja koma á framfæri athugasemdum við þennan samning eða fá túlkun nefndarinnar á einstökum atriðum geta gert það með því að senda tölvubréf til undriritaðs í netfang jsn@mmedia.is eða á skrifstofu Læknafélagsins. Að lokum skal bent á athyglisverð skrif um þessi mál og hliðstæð sem birtust í The New England Journal of Medicine síðastliðið sumar (3-5). Jón Snædal Heimildir 1. Leiðbeiningar Læknafélags Islands um samskipti lækna við framleiðendur og söluaðila lyfja og lækningatækja. Tlllögur nefndar LÍ sem starfaði frá mars 1992 til apríl 1993. Læknablaðið / Fréttabréf lækna 1993; 11 (8): 16-7. 2. Leiðbeiningar stjómar Félags íslenskra heimilislækna um samkipti heimilislækna og lyfjafyrirtækja. Læknablaðið / Fréttabréf lækna 1987; 5 (10): 3. 3. Angell M. Is academic medicine for sale? N Engl J Med 2000; 342:1516-8. 4. Bodenheimer T. Uneasy alliance; clinical investigators and the pharmaceutical industry. N Engl J Med 2000; 342:1539-44. 5. Is academic medicine for sale? [letter to the editor]. N Engl J Med 2000; 343:508-10. Læknablaðið 2000/86 793
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.