Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2000, Side 87

Læknablaðið - 15.11.2000, Side 87
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 9 Af ófrískum og getulausum Bjarni Jónasson skrifar Sendið efni í anda læknaskops í Broshornið, Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi eða í bréfasíma 564 4106 eða á netfang: bjarni.jonasson@ gb.hgst.is Getið þess hver sendir, en það sem birtist verður undir dulnefni. Læknablaðið áskilur sér rétt til að lagfæra texta. Höfundur er heilsugæslulæknir í Garðabæ og stjórnarmaður í Nordisk Selskap for Medisinsk Humor. Ekki einsömul Ung, einstæð kona, sem steig ekki í vitið, kom til læknisins. Hún var rannsökuð í þaula og þegar niðurstöðurnar lágu fyrir kallaði læknirinn í hana. „Jæja, væna mín,“ sagði læknirinn, „það hefur komið á daginn að þú ert ófrísk.“ „Guð minn góður," sagði konan, „ertu viss um að ég eigi barnið?“ Engin lyf, takk Maður nokkur er fluttur í skyndi á bráðamóttökuna. Hann er meðvitundarlaus og það má varla merkja að hann andi. A meðan reynt er að blása lífi í manninn er leitað að skilrikjum í vösum hans og veski án árangurs. Loks sér sjúkraliðinn keðju um hálsinn á þeim rænulausa og á keðjunni er plata með áletruninni: „I guðanna bænum ekki gefa mér nein lyf ef ég finnst rænulaus, því ég bara drukkinn.“ Gott útlit Þórunn er ungleg, margra barna móðir á miðjum aldri. Hún hefur verið í samlagi hjá Lofti heimilis- lækni í áratugi og samband þeirra hefur verið einstaklega gott. Þórunn segir meira að segja að Loftur skilji sig. Hann þykir afar glöggur læknir og kann sig vel. Dag nokkurn kom Þórunn á stofuna með minniháttar krankleika. „Mikið lítur þú alltaf vel út, Þórunn mín,“ sagði Loftur. „Jæja, er það svo? Þá ættirðu bara að sjá mig, þegar ég er frísk,“ sagði Þórunn og settist. Gleraugu eða ekki Læknirinn: „Ég er hræddur um að þú þurfir gleraugu.“ Sjúklingurinn: „En ég er með gleraugu." Læknirinn: „Nú er það? Þá þarf ég gleraugu.“ Löng bið Kona með flensueinkenni fór að hitta lækninn sinn. Biðstofan var full af fólki, enda hafði komið fram í viðtali við kunnan lækni á Landspítalanum í fréttatíma sjónvarpsins kvöldið áður, að „rétt væri að vera á varðbergi, því nú væru bæði inflúensa og streptokokkar í gangi“. Konan las tímaritin á biðstofunni í þaula og starði þess á milli á veggina þar til röðin kom loks að henni eftir tveggja tíma bið. Hún þurfti svo að bíða í hálfa klukkustund í viðbót í skoðunarherberginu, þangað til læknirinn birtist loksins. „Mér þykir leitt að þú skyldir þurfa að bíða svona lengi,“ sagði læknirinn. „Það er svo sem allt í lagi,“ sagði konan, „en ég hefði bara kosið að þú hefðir getað séð einkennin hjá mér á fyrstu stigum sjúkdómsins.“ Úr sjúkraskrám og læknabréfum „Ég held að hann sé að koma sér upp botnlanga og sendi hann því til nánari rannsóknar á SHR.“ „Sjúklingur kom inn vegna vaxandi ógleði og uppgleði, megrunar og lítillar matarlystar." „Það er hríðarhraglandi í Nesinu. Bóndi kemur langan veg til læknis og er slæmur í bakinu. Hefur trú á Tetracyclini og fær það.“ Slappur í bólinu Náungi með risvandamál kom til læknis og bar sig illa. „Þú þarft ekki að hafa áhyggjur,“ sagði læknirinn. „Hefur þú ekki heyrt um nýja lyfið Viagra? Ég skrifa upp á það fyrir þig og þú fylgir bara leiðbeiningunum. Svo vil ég fá að sjá þig á stofunni eftir einn mánuð.“ Maðurinn lét ekki sjá sig eins og ráðgert var, en læknirinn rakst hins vegar á hann úti á götu sex mánuðum seinna. „Læknir minn góður,“ sagði maðurinn hæst ánægður, „þetta lyf sem þú gafst mér hefur gert undur og kraftaverk.“ „Það gleður mig að heyra,“ sagði læknirinn, „hvað segir konan þín um þetta allt saman?“ „Konan mín? Það veit ég ekkert um, ég hef ekki komið heim síðan við sáumst síðast.“ Vonandi veikur Veiklulegur, gamall maður kom til læknis og settist beint á skoðunarbekkinn. „Ég vona að Guð gefi að ég sé veikur,“ endurtók maðurinn í sífellu á meðan læknirinn var að skoða hann. Loks fékk læknirinn nóg af þessum stöðugu endurtekningum mannsins og spurði hvers vegna hann bæði þess svo heitt að hann væri veikur. „Það væri hræðilegt að vera frískur og líða jafn illa og mér líður,“ sagði sá gamli. Rottutal Tvær hvítar rottur ræddu saman á rannsóknarstofu háskólasjúkrahússins, hvor í sínu búri. „Heyrðu,“ sagði önnur rottan, „hvernig gengur þér að eiga við Guðmund lækni?“ „Bara vel,“ svaraði hin. „Ég þurfti að hafa nokkuð mikið fyrir því að þjálfa manninn og það tókst að lokum. Nú kemur hann með mat handa mér í hvert skipti sem ég hringi bjöllunni.“ Læknablaðið 2000/86 807
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.