Læknablaðið - 15.02.2002, Page 13
FRÆÐIGREINAR / BEINÞYNNING
Forvarnir og meðferð beinþynningar af
völdum sykurstera
Klínískar leiðbeiningar
Aðalsteinn
Guðmundsson1'2,
Sigurður Helgason23,
Björn
Guðbjörnsson4
'Öldrunarsvið, 2Landspítali -
Hrafnistu, ’Landlæknis-
embættið, 4Rannsóknarstofa í
gigtsjúkdómum. Fyrirspurnir:
Björn Guðbjörnsson; netfang:
bjorngu@landspitali.is
Grein þessi er afrakstur
starfshóps um klínískar
leiðbeiningar á vegum
Landlæknisembættisins.
Lykilorð: sykursterar,
beinþéttni, beinþynning,
bisfosfónöt, D-vítamín, kalk,
karlhormón, kvenhormón.
Beinþynning er algeng og alvarleg hjáverkun lang-
tímameðferðar með sykursterum. Með virkri forvörn
og/eða sértækri meðferð gegn beinþynningu er unnt
að draga úr þeim heilsufarsvanda og samfélagskostn-
aði sem hlýst af beinþynningu af völdum sykurstera-
meðferðar. Leiðbeiningar þessar eru settar fram
samkvæmt góðri og skynsamlegri ákvarðanatöku
(evidence based) og eru ætlaðar læknum sem bera
ábyrgð á meðferð sjúklinga á langtíma sykurstera-
meðferð. í daglegu starfi getur verið erfitt að fylgja
þessum leiðbeiningum, til dæmis eru beinþéttni-
mælingar eingöngu framkvæmdar í Reykjavík og á
Akureyri.
Inngangur
Sykursterar eru algeng meðferð við mörgum bólgu-
og bandvefssjúkdómum og þeir eru einnig notaðir til
ónæmisbælingar, til dæmis eftir líffæraígræðslur.
Samkvæmt nýlegri íslenskri rannsókn má gera ráð
fyrir því að rúmlega 2000 einstaklingar séu á sam-
felldri sykursterameðferð hér á landi á hverjum tíma.
Helstu ábendingar eru langvinnir gigtarsjúkdómar
(43%), lungnasjúkdómar (33%) eða bólgusjúkdóm-
arígörn (8%) (1).
Sykursterar eru algengasti lyfjaflokkurinn sem
orsakar beinþynningu, að minnsta kosti meðal yngra
fólks (2). Afleiðingar beinþynningar á heilsufar og
lífsgæði einstaklinga sem nota sykurstera eru umtals-
verðar. Fimmtán prósent þeirra sem fá langtímameð-
ferð með sykursterum verða fyrir samfallsbroti í
hrygg á fyrsta meðferðarárinu og þriðjungur bein-
brotnar á fyrstu fimm árum meðferðar (3). Þótt ekki
sé að fullu ljóst hvernig sykursterar valda beinþynn-
ingu er um að ræða samverkan af hægari beinný-
myndun og aukinni beineyðingu meðan á meðferð
stendur (4).
Langflestir þeirra sem nota sykurstera til lengri
tíma tapa umtalsverðri beinþéttni sem síðan veldur
aukinni hættu á beinbrotum. Beintap þetta er hlut-
fallslega hraðast fyrstu meðferðarmánuðina. Faralds-
fræðilegar rannsóknir hafa sýnt að hætta á beinbrot-
um, þá sérstaklega í hrygg og mjöðm, eykst í réttu
hlutfalli við skammtastærð og tímalengd meðferðar-
innar (5).
Kannanir hérlendis og erlendis hafa sýnt að mjög
stór hluti þeirra sjúklinga sem nota sykurstera fær
ófullnægjandi forvörn gegn beinþynningu (1, 6-8).
ENGLISH SUMMARY
Guðmundsson A, Helgason S, Guðbjörnsson B
Prevention and treatment of corticosteroid
induced osteoporosis. Clinical Guidelines
Læknablaðið 2002; 88: 101-7
Osteoporosis is a common and serious side effect of long-
term corticosteroid therapy. The risk of osteoporosis
resulting from corticosteroid use can be reduced if
appropriate preventive and therapeutic steps are taken.
These guidelines are evidence based and are intended for
clinicians who are responsible for the treatment of patients
on long-term corticosteroid therapy. Many clinicians may
have to modify their adherence to these guidelines, for
example due to lack of access to bone densitometry.
Key words: bisphosphonates, bone density, calcium,
estrogen, glucocorticoids osteoporosis, vitamin D,
testosterone.
Correspondence: Björn Guðbjörnsson. E-mail:
bjorngu@landspitali.is
Tafla I. Beinþynning af völdum sykurstera.
• Meira beintap í frauöbeini (hrygg) en beinskel
(mjööm).
• Mest beintap fyrstu þrjá til sex mánuöi meðferöar.
• Áhætta á samfallsbrotum í hrygg er þre- til fimm-
föld.
• Áhætta á mjaðmarbrotum er tvö- til þreföld.
• Aðrir áhættuþættir geta veriö samverkandi, til
dæmis tíðahvörf.
Þessar rannsóknir sýna að einstaklingar sem hafa
þekkta beinþynningu (jafnvel með beinbrotum) í
upphafi sykursterameðferðar njóta ekki þeirrar með-
ferðar sem völ er á í dag. Á undanförnum árum hafa
opnast nýir möguleikar til greiningar beinþynningu
og ekki síður varðandi forvörn og meðferð við bein-
þynningu af völdum sykurstera. Sérgreinafélög í
nokkrum löndum hafa gefið út leiðbeiningar um for-
varnir og meðferð við sykursteratengdri beinþynn-
ingu (9-11).
í leiðbeiningum sem hér verða kynntar var stuðst
við þessar erlendu leiðbeiningar, þær aðlagaðar ís-
lenskum aðstæðum og endurskoðaðar í ljósi nýrrar
vitneskju. Leiðbeiningarnar eru tillögur að forvörn
Læknablaðið 2002/88 101