Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2002, Page 21

Læknablaðið - 15.02.2002, Page 21
FRÆÐIGREINAR / KRABBAMEIN I ENDAÞARMI Krabbamein í endaþarmi á Landspítalanum 1980-1995 Tómas Guðbjartsson', Sigríður Másdóttir', Páll Helgi Möller2, Tómas Jónsson2, Jónas Magnússon2 'Skurödeild Brigham and Women’s Hospital, Boston, -’Handlækningadeild Land- spítala Hringbraut, 'Karolinska sjukhuset, Stokkhólmi. Fyrirspurnir: Tómas Guðbjartsson. Netfang: tomasgudbjartsson@ hotmail.com Lykilorð: krabbamein í endaþarmi, skurðaðgerð. Ágrip Inngangur: Skurðaðgerðir við endaþarmskrabba- meini eru flóknar og fylgikvillar tíðir í kjölfar að- gerða. Þegar líður frá aðgerð er staðbundið endur- vakið krabbamein algengt vandamál. Með bættri að- gerðatækni og geislameðferð fyrir skurðaðgerð hefur tekist að sýna fram á umtalsvert betri árangur í með- ferð þessara krabbameina erlendis. Tilgangur þessar- ar rannsóknar var að kanna einkenni, greiningar- tíma, meðferð, fylgikvilla og lifun sjúklinga með endaþarmskrabbamein á Landspítala. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn og tekur til allra sjúklinga sem greindust með enda- þarmskrabbamein á Landspítalanum frá 1. janúar 1980-31. desember 1995. Alls greindust 43 sjúkling- ar, 22 karlar og 21 kona, og var meðalaldur þeirra 73 ár (bil 54-96). Niðurstöður: Algengasta einkennið var blóð í hægðum (77%) en hægðabreytingar (63%) og verkir í kvið/grindarholi (37%) komu þar næst á eftir. Rúm- lega 80% sjúklinganna höfðu haft einkenni í meira en mánuð fyrir greiningu. Helmingur æxlanna var stað- settur í neðsta þriðjungi endaþarmsins. Þriðjungur sjúklinganna var með sjúkdóm á Dukes-stigi C og D en 54% á stigi B. Af 43 sjúklingum gekkst 41 undir skurðaðgerð, þar af 30 (73%) undir læknandi aðgerð. Flestir (n=17) fóru í lágt fremra endaþarmshögg/úr- nám. Næstflestir (n=ll) fóru í algert/gagngert brott- nám á endaþarmi og fjórir sjúklingar með ólæknandi sjúkdóm fengu ristilstóma. Enginn lést af völdum skurðaðgerðar. Fimm ára lífshorfur reyndust 30% fyrir allan hópinn en 52% fyrir sjúklinga á stigi B. Ályktun: Skurðdauði var ekki til staðar í þessari rannsókn. Lífshorfur sjúklinga á sömu stigum í rann- sókninni eru lakari samanborið við rannsóknir frá stærri og sérhæfðari stofnunum erlendis. Munurinn gæti að hluta skýrst af stöðluðum skurðaðgerðum og geislameðferð æxlanna fyrir skurðaðgerð í erlendu rannsóknunum. Svipaðar áherslur verða nú teknar upp í meðferð endaþarmskrabbameins hér á landi. Inngangur Krabbamein í ristli (colon) og endaþarmi (rectum) hafa verið á meðal algengustu krabbameina á Islandi síðustu áratugina, en aðeins brjósta-, blöðruháls- og lungnakrabbamein eru nú algengari (1). Þriðjungur þessara krabbameina er upprunninn í endaþarmi en tveir þriðju í ristli (2,3). Brottnám endaþarmskrabbameins er flóknari að- EIMGLISH SUMMARY Guðbjartsson T, Másdóttir S, Möller PH, Jónsson T, Magnússon J Rectal cancer at Landspítalinn 1980-1995 Læknablaðið 2002; 88: 109-14 Objective: Surgery for rectal cancer is difficult and complications following surgery frequent. In the longer perspective a local recurrence is a serious problem. With better operative strategy and local radiation preoperatively a considerable progress has been made in treatment of this disease in large cancer centers. The aim of this study was to investigate symptoms, diagnostic delay, treatment, complications and survival of patients with rectal cancer treated at our institution. Material and methods: A retrospective study of 43 consecutive patients (22 males, 21 females, mean age 73 years) diagnosed with rectal adenocarcinoma at Landspitalinn between 1980 and 1995 was performed. Results: The most common symptoms were rectal bleeding (77%), change of bowel habits (63%) and abdominal pain (37%). More than 80% of the patients had a delay of more than one month before diagnosis and 53% of the tumors were located in the lower third of the rectum. One third of the patients were diagnosed with disease outside the rectum (Duke's-stage C and ”D”) and 54% were Duke’s stage B. Of 43 patients 41 were operated, 30 (73%) with curative surgery. Low anterior resection of rectum was the most commonly performed procedure (n=17) with two cases of anastomostic leakage. Eleven patients underwent abdominoperineal resection and four patients were operated on because of metastasis with colostomy only. Surgical mortality was 0%. Five-year survival was 30% for the whole group and 52% for patients in stage B. Conclusion: There was no operative mortality in this series. Long-term survival for patients in comparable stages is inferior to recently published studies from larger and more specialized centers. The different results obtained could be explained by standardized surgical procedures and routine preoperative radiotherapy. Similar emphasis will be adopted to standardize rectal cancer surgery. Key words: rectal cancer, survival, surgical treatment. Correspondence: Tómas Guðbjartsson. E-mail: tomasgudbjartsson@hotmail.com gerð en brottnám ristilkrabbameins þar sem enda- þarmurinn liggur djúpt í grindarholinu, er ekki eins hreyfanlegur og ristillinn og umlukinn fjölda líffæra. Læknablaðið 2002/88 109

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.