Læknablaðið - 15.02.2002, Blaðsíða 30
FRÆÐIGREINAR / ÁHRIF LÝSIS / ÍKOMUSTAÐUR SÝKINGAR
Survival after infection with Klebsiella pneumoniae.
Fig. 1. The effect of fish-
oil on survival after
experimental pneumonia
with Klebsiella
pneumoniae. The mice
werefed experimental diet
for six weeks containing
fish-oil (10% w/w) or
corn-oil (10% w/w) in two
separate experiments
(n=60 in each experiment).
ónæmisbælandi og dragi því úr yfirþyrmandi ónæmis-
svari og komi þannig í veg fyrir lost og dauða. Rann-
sóknir in vitro hafa einnig sýnt fram á breytta fram-
leiðslu boðefna og breytt ónæmissvar eftir neyslu
lýsisríks fæðis (14-18).
Ef verndandi áhrif lýsis í sýkingum tengjast al-
mennt ónæmissvari líkamans ættu þau að koma fram
óháð íkomustað sýkingarinnar. í tilraunum okkar nú
var því kannað hvort lýsið hefði verndandi áhrif á
tilraunadýr sem sýkt voru í lungu eins og það gerði í
fyrri tilraunum rannsóknarhópsins þegar dýrin voru
sýkt í vöðva.
Aöferðir
Sextíu NMRI mýs voru aldar á Tilraunastöð Háskól-
ans í meinafræði að Keldum. Mýsnar voru fóðraðar
á hefðbundinn hátt á nagdýrafóðri frá Special Diets
Services (Witham, Essex, England) og höfðu frjálsan
aðgang að vatni og fæðu. Annar helmingur músanna,
30 mýs, fengu fæði bætt með lýsi (Lýsi ehf, Granda-
vegi, Reykjavík, ísland) en hinn helmingurinn, 30
mýs, fengu fæði bætt með kornolíu (Wesson, Hunt og
Wesson inc., Fullerton, USA) í sex vikur. Magn lýsis
eða kornolíu í fæðinu nam 10% af þyngd fæðunnar.
Að sex vikum liðnum voru mýsnar sýktar með
Klebsiella pneumoniae (ATCC 43816) í lungu. Sýk-
ingin var framkvæmd í svæfingu (natrium pento-
barbital, 50 mg/kg í kviðarhol). Þegar mýsnar höfðu
verið svæfðar voru þær látnar hanga á framtönnum
og 3-4 xlOE2 bakteríum af Klebsiella pneumoniae í
lausn dreypt í nasir þeirra eins og lýst hefur verið
áður (19). Að 10 mínútum liðnum var músunum
komið fyrir í sitjandi stöðu þar til þær vöknuðu eftir
svæfinguna. Fylgst var með lifun músanna.
Tilraunin var framkvæmd tvisvar á sama hátt.
Kaplan-Meier log rank próf var notað við töl-
fræðiútreikninga.
Niðurstööur
Þyngdaraukning músanna meðan á fóðrun stóð var
sú sama í báðum hópum. Við upphaf tilraunar voru
mýsnar að meðaltali 28,8 g að þyngd en eftir að hafa
verið aldar á fæðublöndunni í sex vikur vógu þær að
meðaltali 31,9 g.
í báðum tilraununum var lifun músa sem fengið
höfðu lýsisríkt fæði marktækt betri samanborið við
mýs sem aldar voru á kornolíubættu fæði (p=0,0001 í
tilraun 1 og p=0,0013 í tilraun 2) (mynd 1).
Umræöa
Ýmsar rannsóknir hafa bent til að lýsi hafi áhrif á
ónæmissvar líkamans. Niðurstöður fjölda rannsókna
sýna að lýsisneysla dregur úr einkennum ýmissa sjálf-
næmissjúkdóma (4-8). Einnig hafa margar rannsókn-
ir leitt í ljós aukna lifun tilraunadýra sem alin eru á
lýsisbættu fæði og sýkt með Klebsiella pneumoniae
(1, 2), berklum (20), malaríu (11), Pseudomonas
aeruginosa (9) eða eftir innspýtingu endótoxína (10).
Einnig virðist lýsi hafa hamlandi áhrif á vöxt Helico-
bacter pylori bæði in vitro og in vivo (21,22). Þá hafa
rannsóknir in vivo einnig bent til vaxtarhamlandi
áhrifa lýsis á veirur (23) þó rannsóknir á veirusýking-
um í tilraunadýrum sýni fram á hægari hreinsun veir-
anna (24). Enn er þó óljóst hvernig lýsið virkar.
Því hefur verið haldið fram að lýsi sé vægt ónæm-
isbælandi og dragi þannig úr ónæmissvari dýranna (1,
13, 15). Þessi hugmynd er í samræmi við þær niður-
stöður að lýsi dragi úr einkennum sjálfnæmissjúk-
dóma (4-8). Einnig kann þessi kenning að falla vel að
þeim niðurstöðum sem sýna fram á aukna lifun til-
raunadýra sem alin hafa verið á lýsisríku fæði og sýkt
í kjölfarið. Með vægri ónæmisbælingu dragi lýsið úr
yfirþyrmandi ónæmissvari og minnki þannig hættu á
losti og dauða. Nokkrar rannsóknir benda til ákveð-
innar ónæmisbælingar af völdum lýsisneyslunnar.
Þannig hefur verið sýnt fram á minni fjölda eitil-
frumna þó niðurstöður séu ekki allar á einn veg (15).
Ýmsar breytingar hafa komið fram á starfsemi
mónósýta tilraunadýra in vitro (16) og manna eftir
lýsisneyslu (17, 18), þar með talið breyting á sýnd
mótefnavaka (25). Bælingin verður þó að sjálfsögðu
að vera væg þannig að dýrið ráði að lokum niðurlög-
um sýkingarinnar.
Lýsi inniheldur mikið af o>-3 fitusýrum samanbor-
ið við kornolíu sem er rík af o>-6 fitusýrum (3). Ýmsar
rannsóknir benda til þess að áhrif lýsisins megi fyrst
og fremst rekja til o>-3 fitusýrunnar og niðurstöður
hafa sýnt fram á áhrif co-3 fitusýra á ónæmissvar (26).
Flestar rannsóknir á áhrifum lýsis á lifun tilrauna-
dýra eftir sýkingu hafa beinst að sýkingum með
Klebsiella pneumonieae í vöðva (1, 2). Niðurstöður
okkar nú sýna fram á aukna lifun músa sem aldar
hafa verið á lýsisbættu fæði og sýktar eru í lungu.
Þetta eru sambærilegar niðurstöður og rannsóknar-
hópurinn hafði fengið eftir sýkingar í vöðva (1). Ef
118 Læknablaðið 2002/88