Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2003, Síða 27

Læknablaðið - 15.06.2003, Síða 27
FRÆÐIGREINAR / STOFNFRUMUR Notkun stofnfrumna úr fósturvísum til lækninga: viðhorfskönnun meðal íslenskra lækna, lögfræðinga og presta Trausti Óskarsson' LÆKNANEMI A 4. ARI Flóki Guðmundsson1,2 HEIMSPEKINEMI A LOKAARl Jóhann Ágúst Sigurðsson1 LÆKNIR, SÉRFRÆÐINGUR í HEIMILISLÆKNINGUM Linn Getz3 LÆKNIR Vilhjálmur Árnason2,4 HEIMSPEKINGUR Ágrip Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að fá vís- bendingu um afstöðu lækna, lögfræðinga og presta til notkunar á stofnfrumum úr fósturvísum til lækninga. Efniviður og aðferðir: Úr markhópunum voru valdir með slembiaðferð 284 læknar og 293 lögfræðingar og allir starfandi prestar á Islandi, samtals 168. Sendur var út spurningalisti til að kanna siðferðilega afstöðu þessara aðila til notkunar stofnfrumna úr fósturvísum til lækninga. Alls bárust 290 svör (39% svörun). Niðurstöður: Rúmlega 60% þátttakenda taldi að fósturvísir hefði ákveðna siðferðilega sérstöðu um- fram aðrar lífverur á sambærilegu þroskaskeiði. Peir sem töldu fósturvísi hafa siðferðilegt gildi á við mann- eskju voru um 20% og tæplega 18% að fósturvísar nytu ekki siðferðisréttar umfram aðra frumuklasa. Munur var á milli stétta (p<0,05). Mikill meirihluti áleit notkun stofnfrumna úr fósturvísum til lækninga réttlætanlega, en í huga margra skipti það máli með hvaða hætti fósturvísirinn hefði orðið til. Tæplega 8% þátttakenda setti sig alfarið á móti lækningum með stofnfrumur. Af þeim sem álitu notkun stofnfrumna í læknisfræðilegum tilgangi réttlætanlega töldu 71% að eðli sjúkdómsins skipti máli og að aðeins eigi að beita slíkum aðferðum þegar fengist er við alvarlega sjúk- dóma. 64% lækna og 68% lögfræðinga taldi einrækt- un í því skyni að meðhöndla Parkinsons-sjúkling rétt- lætanlega samanborið við 40% presta (p<0,01) og heldur fleiri karlar en konur (p<0,01), 64% karla bor- ið saman við 52% kvenna (p<0,01). Mikill meirihluti (87%) taldi þörf á þjóðfélagslegri umræðu um þessi mál. Ályktanir: Almennt eru þátttakendur frjálslyndir gagnvart notkun stofnfrumna úr fósturvísum til lækn- inga. Frjálslyndi gagnvart einræktun í lækningaskyni er athyglisvert, en mikill styr hefur staðið um slíkar aðgerðir í flestum ríkjum. Þörf er á upplýsingu og um- ræðu. 'Heimilislæknisfræði HÍ, 2Heimspekideild HÍ, 'Land- spítali, 4Siðfræðistofnun Heimilislæknisfræði HÍ, Sóltúni 1,105 Reykjavík. Sími: 863-5475 og 822-4567. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Trausti Óskarsson og Flóki Guðmundsson, stofnfrumur@yahoo. com Lykilorð: stofnfrumur, fósturvlsar, siðfrœði. ENGLISH SUMMARY Óskarsson T, Guðmundsson F, Sigurðsson JÁ, Getz L, Árnason V The use of embryonic stem cells for medical- therapeutical purposes: a study of attitudes among lcelandic physicians, lawyers and clergymen Læknablaðið 2003; 89: 499-504 Objective: To study the bioethical standpoints among three groups of lcelandic professionals in relation to the use of embryonic stem cells for medical-therapeutical purposes. Material and methods: In June 2002, a questionnaire was sent by mail to a random sample of 284 doctors and 293 lawyers, as well as all 168 practicing clergymen in lceland. The participants’ position in relation to the use of embry- onic stem cells for therapeutical purposes was elicited through general questions as well as case examples. 290 questionnaires (39%) were returned. Ftesults: 62% of participants believed the embryo to have an ethical status superior to that of biologically compar- able life forms. 20% of respondents considered its status as equal to that of a grown human being, whilst 18% con- sidered it equal to biologically comparable primitive life forms. There was a difference between the respondent groups (p<0,05). A vast majority believed the use of embryonic stem cells for therapeutical purposes to be justifiable, although the origin of the stem cells appeared to make a difference to many respondents. 8% of partici- pants took an unconditional position against the use of embryonic stem cells. Among those who considered the use of embryonic stem cells with a therapeutic aim to be justifiable, 71% believed that embryonic stem cells should only be utilized to treat diseases of a severe nature. 64% of participants defended the idea of therapeutic cloning with the intention to treat a patient with Parkinson’s dis- ease, but the case history elicited considerable difference between professional groups. Clergymen and lawyers tended to hold firmer attitudes, clergymen against and lawyers for the use of stem cells, whilst medical doctors as a group positioned themselves more towards the middle. Female respondents generally took a more modest stand whilst males were more likely to take a firmer stand in both directions. A vast majority (87%) of the participants be- lieved there to be a need for public debate in relation to the use of embryonic stem cells for therapeutical purposes. Conclusion: Overall, participants' views in relation to the use of embryonic stem cells for medical purposes were rather liberal. There were however significant differences between professional groups. The relatively high tolerance in regard to therapeutic cloning is interesting in view of the considerable controversy over this topic in many countries. There appears to be fertile ground for a public debate about the use of embryonic stem cells for medical purposes in lceland. Key words: stem cells, embryos, ethics. Correspondence: Trausti Óskarsson og Flóki Guðmundsson, stofnfrumuhSyahoo.com Læknablaðið 2003/89 499 L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.