Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2003, Side 44

Læknablaðið - 15.06.2003, Side 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Af menningararfínum og öðru brýnu Sigurbjörn Sveinsson Höfundur er formaður LÍ. Sjónarmið þau er fram koma í pistlunum Af sjónarhóli stjórnar eru höfundar hverju sinni og ber ekki að taka sem samþykktir stjórnar LÍ. Það var ánægjulegt að lesa grein Auðólfs Gunnars- sonar í 5. tbl. Læknablaðsins 2003 þar sem hann full- yrðir að ekki verði sagt „að Læknafélag Islands hafi sinnt mikið sögu lækninga á íslandi eða haft í heiðri minningu þeirra félaga sem rutt hafa brautina eða skarað fram úr á vissum sviðum.“ Auðólfur fór víða og áhuginn fagnaðarefni að sínu leyti, þó LÍ fengi nánast falleinkunn fyrir afskiptaleysi sitt af menning- armálum og sögu lækna og læknisfræðinnar. „Sá er vinur er til vamms segir.“ Betur væri, að fleiri félagar létu stjórn og aðalfundi félagsins heyra skoðanir sín- ar í þessum efnum og öðrum á síðum Læknablaðsins. Tímabært er að gera grein fyrir málum í fáum orðum, er varða sumt af því, sem Auðólfur tæpir á. LÍ er ekki aðgerðalaust Læknafélag íslands hefur lagt mikið til sögu læknis- fræðinnar á liðnum árum, þó þess sjái ekki enn stað í útgefnu prentverki. Heilbrigðissaga íslands hefur verið skrifuð á vegum félagsins frá árinu 1994 og fé- lagið lagt til þess um 30 milljónir króna á föstu verð- lagi. Ekki er enn ljóst, hvenær af útgáfunni getur orð- ið enda á verulegur kostnaður eftir að falla til. Stjórnin reynir um þessar mundir að ráða fram úr málum þann veg, að lítið þurfi að greiða frekar úr eigin vasa til þessarar útgáfu. Það er alveg ljóst, að LI hefur á þessum árum ekki haft mikið svigrúm til að sinna öðrum og brýnum verkum til varðveislu menn- ingarverðmæta þó vilji hafi verið ríkur til. Þrátt fyrir þetta hefur all nokkru fé, eða tæpum sex milljónum á föstu verðlagi, verið varið til við- gerða á gamla spítalanum á Akureyri, „J. Gudmanns Minde“. Vonandi verður hægt að styðja Læknafélag Akureyrar frekar við þá framkvæmd sérstaklega þegar um hægist. Framlög LÍ verða þó að haldast í hendur við framlög annarra, meðal annars ríkisins og Akureyrarbæjar svo og hjúkrunarfræðinga, sem eiga sinn hlut í endurbótunum. Það hlýtur meðal annars að vera hlutverk sveitarfélagsins að leysa til sín tvær íbúðir, sem í húsinu eru. Hindra þær endurgerð húss- ins í upprunalegri mynd. Jón Steffensen Læknafélagið ráðstafaði gjöf Jóns Steffensen til styrktar Lækningaminjasafni við Nesstofu á árinu 2000 svo sem kemur fram í ávarpi formanns LI við þá athöfn (Læknablaðið 2000; 86: 607). Eftir ítarlegt samráð við áhugamenn um sögu læknisfræðinnar sérstaklega formann þeirra, Hall- dór Baldursson lækni, og að höfðu samráði við for- ráðamenn Þjóðminjasafns og Menntamálaráðu- neytið og með samþykki ríkisstjórnarinnar festi stjóm Læknafélags íslands kaup á húsi hér í grennd Nesstofu við Bygggarða 7 og nam kaupverð henn- ar 33.000.000,- króna. Ljóst var að húsnæði þetta gæti fullnægt bráðri þörf lækningaminjasafnsins fyrir viðunandi geymsluhúsnæði og starfsaðstöðu minjavarðar og ef til vill sýningaraðstöðu, þegar fram í sækti. Til viðbótar verða ríkissjóði afhentar í dag 10.600.000,- krónur af reiðufé úr dánargjöfinni til nauðsynlegra endurbóta á umræddri húseign. Auk þess leggur Læknafélag íslands sjálft til tvær milljónir króna úr félagssjóði sínum til að liðka fyrir þessu verkefni. Aðalfundir Læknafélags íslands hafa sýnt þessu málefni mikinn áhuga um árabil og hefur vilji félagsmanna komið fram í samþykktum aðalfunda um fjárframlög til byggingar lækningaminjasafns. í dag afhendir Læknafélag íslands safnverði Nesstofusafns jafnframt fimm myndverk úr búi Jóns Steffensen. Sérhver vegferð hefst með fyrsta skrefinu. Allir gera sér grein fyrir að ekki er verið að leysa hús- næðismál lækningaminjasafnsins til frambúðar að þessu sinni. Við ríkjandi aðstæður er þetta skref hins vegar óhjákvæmilegt. Það er trú mín og von að draumurinn um veglegt og sæmandi lækninga- minjasafn í Nesi við Seltjörn verði að veruleika í fyllingu tímans og verði ævintýri komandi kynslóð- um til andlegrar næringar. Persónulegum munum Jóns Steffensen var trauðla hægt að halda til haga án þess að ganga í berhögg við erfðaskrá hans; þeir voru seldir eins og vilji hans stóð til og Lækningaminjasafninu lagðir þeir fjármunir til í lausum aurum. Þau myndverk, sem afhent voru safnverði Nesstofu og um er getið hér að ofan, seldust ekki. Húsnæöismál okkar daga Húsnæðismál læknafélaganna eru reglulega á borð- um stjórnar LÍ og jafnframt rædd við trúnaðarmenn LR. Þegar ráðstöfun gjafar Jóns Steffensen var til umræðu kom upp sú hugmynd að leysa húsnæðismál Lækningaminjasafnsins og LÍ í sömu andránni, þ.e. á lóð Nesstofu eins og Auðólfur bendir á að geti orðið menningarlegur vegsauki læknum og málefnum þeirra. Þrátt fyrir ýmsar sjarmerandi hliðar þeirrar lausnar þótti það ekki fýsilegt á þeirri tíð. Var þá fyrst og fremst litið til staðsetningar fjarri hringiðu vinnu- staða lækna og í öðru lagi nýlegra fjárfestinga í Hlíða- smáranum og fyrirsjáanlegra erfiðleika við sölu þess húsnæðis á viðunandi verði. Aðkoma Landlæknis- embættisins hefði hugsanlega breytt þessu mati, en óformlegar viðræður við Landlækni beindu ekki sjón- um fjárveitingarvaldsins að þessari lausn fyrir hann. 516 Læknablaðið 2003/89

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.