Læknablaðið - 15.06.2003, Page 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Af menningararfínum og öðru brýnu
Sigurbjörn
Sveinsson
Höfundur er formaður LÍ.
Sjónarmið þau er fram koma
í pistlunum Af sjónarhóli
stjórnar eru höfundar hverju
sinni og ber ekki að taka sem
samþykktir stjórnar LÍ.
Það var ánægjulegt að lesa grein Auðólfs Gunnars-
sonar í 5. tbl. Læknablaðsins 2003 þar sem hann full-
yrðir að ekki verði sagt „að Læknafélag Islands hafi
sinnt mikið sögu lækninga á íslandi eða haft í heiðri
minningu þeirra félaga sem rutt hafa brautina eða
skarað fram úr á vissum sviðum.“ Auðólfur fór víða
og áhuginn fagnaðarefni að sínu leyti, þó LÍ fengi
nánast falleinkunn fyrir afskiptaleysi sitt af menning-
armálum og sögu lækna og læknisfræðinnar. „Sá er
vinur er til vamms segir.“ Betur væri, að fleiri félagar
létu stjórn og aðalfundi félagsins heyra skoðanir sín-
ar í þessum efnum og öðrum á síðum Læknablaðsins.
Tímabært er að gera grein fyrir málum í fáum orðum,
er varða sumt af því, sem Auðólfur tæpir á.
LÍ er ekki aðgerðalaust
Læknafélag íslands hefur lagt mikið til sögu læknis-
fræðinnar á liðnum árum, þó þess sjái ekki enn stað í
útgefnu prentverki. Heilbrigðissaga íslands hefur
verið skrifuð á vegum félagsins frá árinu 1994 og fé-
lagið lagt til þess um 30 milljónir króna á föstu verð-
lagi. Ekki er enn ljóst, hvenær af útgáfunni getur orð-
ið enda á verulegur kostnaður eftir að falla til.
Stjórnin reynir um þessar mundir að ráða fram úr
málum þann veg, að lítið þurfi að greiða frekar úr
eigin vasa til þessarar útgáfu. Það er alveg ljóst, að LI
hefur á þessum árum ekki haft mikið svigrúm til að
sinna öðrum og brýnum verkum til varðveislu menn-
ingarverðmæta þó vilji hafi verið ríkur til.
Þrátt fyrir þetta hefur all nokkru fé, eða tæpum
sex milljónum á föstu verðlagi, verið varið til við-
gerða á gamla spítalanum á Akureyri, „J. Gudmanns
Minde“. Vonandi verður hægt að styðja Læknafélag
Akureyrar frekar við þá framkvæmd sérstaklega
þegar um hægist. Framlög LÍ verða þó að haldast í
hendur við framlög annarra, meðal annars ríkisins og
Akureyrarbæjar svo og hjúkrunarfræðinga, sem eiga
sinn hlut í endurbótunum. Það hlýtur meðal annars
að vera hlutverk sveitarfélagsins að leysa til sín tvær
íbúðir, sem í húsinu eru. Hindra þær endurgerð húss-
ins í upprunalegri mynd.
Jón Steffensen
Læknafélagið ráðstafaði gjöf Jóns Steffensen til
styrktar Lækningaminjasafni við Nesstofu á árinu
2000 svo sem kemur fram í ávarpi formanns LI við þá
athöfn (Læknablaðið 2000; 86: 607).
Eftir ítarlegt samráð við áhugamenn um sögu
læknisfræðinnar sérstaklega formann þeirra, Hall-
dór Baldursson lækni, og að höfðu samráði við for-
ráðamenn Þjóðminjasafns og Menntamálaráðu-
neytið og með samþykki ríkisstjórnarinnar festi
stjóm Læknafélags íslands kaup á húsi hér í grennd
Nesstofu við Bygggarða 7 og nam kaupverð henn-
ar 33.000.000,- króna. Ljóst var að húsnæði þetta
gæti fullnægt bráðri þörf lækningaminjasafnsins
fyrir viðunandi geymsluhúsnæði og starfsaðstöðu
minjavarðar og ef til vill sýningaraðstöðu, þegar
fram í sækti.
Til viðbótar verða ríkissjóði afhentar í dag
10.600.000,- krónur af reiðufé úr dánargjöfinni til
nauðsynlegra endurbóta á umræddri húseign. Auk
þess leggur Læknafélag íslands sjálft til tvær milljónir
króna úr félagssjóði sínum til að liðka fyrir þessu
verkefni. Aðalfundir Læknafélags íslands hafa sýnt
þessu málefni mikinn áhuga um árabil og hefur vilji
félagsmanna komið fram í samþykktum aðalfunda
um fjárframlög til byggingar lækningaminjasafns.
í dag afhendir Læknafélag íslands safnverði
Nesstofusafns jafnframt fimm myndverk úr búi
Jóns Steffensen.
Sérhver vegferð hefst með fyrsta skrefinu. Allir
gera sér grein fyrir að ekki er verið að leysa hús-
næðismál lækningaminjasafnsins til frambúðar að
þessu sinni. Við ríkjandi aðstæður er þetta skref
hins vegar óhjákvæmilegt. Það er trú mín og von að
draumurinn um veglegt og sæmandi lækninga-
minjasafn í Nesi við Seltjörn verði að veruleika í
fyllingu tímans og verði ævintýri komandi kynslóð-
um til andlegrar næringar.
Persónulegum munum Jóns Steffensen var
trauðla hægt að halda til haga án þess að ganga í
berhögg við erfðaskrá hans; þeir voru seldir eins og
vilji hans stóð til og Lækningaminjasafninu lagðir
þeir fjármunir til í lausum aurum. Þau myndverk,
sem afhent voru safnverði Nesstofu og um er getið
hér að ofan, seldust ekki.
Húsnæöismál okkar daga
Húsnæðismál læknafélaganna eru reglulega á borð-
um stjórnar LÍ og jafnframt rædd við trúnaðarmenn
LR. Þegar ráðstöfun gjafar Jóns Steffensen var til
umræðu kom upp sú hugmynd að leysa húsnæðismál
Lækningaminjasafnsins og LÍ í sömu andránni, þ.e. á
lóð Nesstofu eins og Auðólfur bendir á að geti orðið
menningarlegur vegsauki læknum og málefnum
þeirra. Þrátt fyrir ýmsar sjarmerandi hliðar þeirrar
lausnar þótti það ekki fýsilegt á þeirri tíð. Var þá fyrst
og fremst litið til staðsetningar fjarri hringiðu vinnu-
staða lækna og í öðru lagi nýlegra fjárfestinga í Hlíða-
smáranum og fyrirsjáanlegra erfiðleika við sölu þess
húsnæðis á viðunandi verði. Aðkoma Landlæknis-
embættisins hefði hugsanlega breytt þessu mati, en
óformlegar viðræður við Landlækni beindu ekki sjón-
um fjárveitingarvaldsins að þessari lausn fyrir hann.
516 Læknablaðið 2003/89