Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2004, Side 20

Læknablaðið - 15.06.2004, Side 20
FRÆÐIGREINAR / NOTKUN TÍÐAHVARFAHORMÓNA þær svöruðu, en það verður að hafa í huga að ekki er um sama aldurshóp að ræða. í þeirri rannsókn voru konurnar á aldrinum 50-64 ára en hér er um að ræða konur sem eru 40 ára og eldri. Notkun hér virðist þó vera mun meiri en í Danmörku ef niðurstöðumar eru bornar saman við niðurstöður danskrar rannsóknar (30). Þar var athuguð notkun tíðahvarfahormóna með því að kanna ávísanir lækna á hormónalyf í mið- lægum lyfjaávísanagagnabanka. Þessi rannsókn var gerð á árunum 1991-1995 og gaf til kynna að tíðni notkunar tíðahvarfahormóna á hverjum tíma væri lág í Danmörku og hægt vaxandi en árið 1995 var notkun kvenna 40 ára og eldri 14,8% en var 10,4% árið 1991. Það er forvitnilegt að velta fyrir sér af hverju þessi munur er á milli íslenskra og danskra kvenna hvað þetta varðar. í dönsku rannsókninni voru getnaðar- varnalyf ekki tekin með en önnur dönsk rannsókn sem byggði á sölutölum (31) sýndi að 6% danskra kvenna á aldrinum 40-44 notuðu getnaðarvarnahorm- ón. Þetta er þó ekki nægilegt til að skýra þennan mun og forvitnilegt væri að gera sambærilega rannsókn á notkun tíðahvarfahormóna í þessum löndum. Tímalengd hormónanotkunar var einnig athuguð og jókst hún á tímabilinu 1996-2001. Á seinni hluta tímabilsins höfðu 67% notað tíðahvarfahormón lengur en í fimm ár samanborið við 41 % á fyrri hluta tímabilsins (mynd 3). Tímalengdin jókst einnig miðað við fyrri tímabil og lítur út fyrir að notkunarmynstrið sé að breytast. Fleiri notuðu hormón í lengri tíma (>7 ár) en þeim fækkar stöðugt sem nota hormón í stuttan tíma (<1 ár). Það er einnig athyglisvert að bera nið- urstöður hvað varðar tímalengd hormónanotkunar saman við niðurstöður dönsku rannsóknarinnar á notkun tíðahvarfahormóna (30). Niðurstöður hennar bentu til þess að stór hluti þeirra sem fengu tíðahvarfa- hormón notuðu þau í minna en þrjá mánuði á ári, tíðahvarfahormón væru gefin við einkennum tíða- hvarfa en ekki í forvarnarskyni við beinþynningu og hjarta- og æðasjúkdómum. Yngri konur nota frekar kaflaskipta hormóna- meðferð þar sem líkt er eftir tíðahring en eldri konur frekar samfellda hormónameðferð og má leiða líkum að því að það sé vegna þess að það gengur verr að gefa yngri konum samfellda hormónameðferð þar sem líklegra er að þær eigi þá við að stríða fýlgikvilla eins og milliblæðingar. I ljós kom að hærra hlutfall reykti meðal kvenna sem höfðu tekið tíðahvarfahormón en meðal kvenna sem aldrei höfðu notað lyfin. Ástæða þess að fylgni er þarna á milli gæti legið í því að breytingaskeið hefjist fyrr hjá reykingakonum eða að þær finni meira fyrir einkennum breytingaskeiðs. Rannsóknir hafa sýnt fram á að reykingar auki líkurnar á snemmkomnu breytingaskeiði (32) og að einkenni reykingakvenna séu meiri við tíðahvörf (33). Ástæða þessa gæti verið sú að reykingar hafi mótstæða verkun við estrógen og auki þannig einkennin eða að hluti kvenna sé í raun að taka tíðahvarfahormón við einkennum sem stafa af reykingum. Reykingavenjur kvenna sem svöruðu spurningum um hormónatöku voru bornar saman við niður- stöður úr ársskýrslum Tóbaksvarnarnefndar (22-27) hvað varðar reykingavenjur kvenna á sama aldri. Þá kom í ljós að heldur stærra hlutfall kvenna í þessari rannsókn segist aldrei hafa reykt eða vera hætlar að reykja heldur en í úrtaki Tóbaksvarnarnefndar. Þess ber þó að geta að 95% öryggismörk eru mun víðari á niðurstöðum Tóbaksvarnarnefndar þar sem úrtak þeirra er mun minna en í þessari rannsókn. Ástæður þessa munar eru ekki alveg ljósar en það er hægt að velta ýmsu fyrir sér í þessu sambandi. Það má til dæmis hugsa sér að konur sem reykja mæti síður í krabbameinsleitina eða að þær svari öðru- vísi þegar þangað er komið. Hver sem ástæðan er þá bendir þetta til að þýðið í þessari rannsókn sé á einhvern hátt frábrugðið hinu almenna þýði og að niðurstöðurnar eigi þar af leiðandi ekki við um alla þjóðfélagshópa. Niðurstöður úr rannsókn Bryndísar Benediktsdóttur og fleiri renna líka stoðum undir þetta en í þeim kemur fram að konur sem fara reglu- lega í krabbameinsskoðun (hér er væntanlega átt við hópleit að krabbameini) séu meira en tvöfalt líklegri en hinar til að vera á hormónameðferð (líkindahlut- fall (odds ratio) OR=2,6,95% öryggisbil 1,6-4,0) (29). í rannsókn þeirra kom þó einnig fram að 87% kvenn- anna sögðust fara reglulega í krabbameinsskoðun. Rannsókn þar sem kannaður var sérstaklega sá hópur kvenna sem ekki mætir í krabbameinsleit leiddi í ljós að í þeim hópi var hátt hlutfall ógiftra og geðsjúkra kvenna (34). Það má því segja að þessar niðurstöður eigi að öllum líkindum ekki við um þann hóp kvenna sem ekki mætir í leitina en það eru engu að síður nálægt 90% kvenna sem mæta í krabbameinsleit og gilda niðurstöðurnar því væntanlega fyrir meirihluta íslenskra kvenna. Ljóst er að notkun á tíðahvarfahormónum hefur aukist mikið á Islandi á undanförnum árum og að athyglisvert verður að fylgjast með þróun mála í þess- um efnum eftir að umræða um skaðsemi tíðahvarfa- hormóna komst í hámæli og breyttar ábendingar urðu fyrir notkun þeirra. Þakkarorð Þakkir fær Leitarstöð Krabbameinsfélags íslands fyrir öflun frumgagna og Krabbameinsskrá Krabba- meinsfélags Islands fyrir veitta aðstöðu og aðgang að gögnum. Starfsfólk Krabbameinsskrárinnar á einnig þakkir skyldar fyrir veitta aðstoð. Tóbaksvarnanefnd fær þakkir fyrir afnot af ársskýrslum þeirra. Síðast en ekki síst þökkum við þeim konum sem tóku þátt með því að gefa upplýsingar. 476 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.