Læknablaðið - 15.06.2004, Qupperneq 37
FRÆÐIGREINAR / A U G N LÆ K N I N G A R
skolun að lokinni pH mælingu sem sýnir hlutleysi
táravökvans.
Eftir skolun verður að verkjastilla sjúklinginn
(deyfandi augndropa má aðeins nota í skamman tíma
til að gera skolun og skoðun mögulega), gefa stað-
bundið sýklalyf og víkka sjáaldur með „cýklóplegísk-
um“ lyfjum, svo sem Cyclogyl® (forðast phenylep-
hrine (AK-Dilate)). Öll önnur meðferð ætti að vera
í höndum augnlækna. Sterar í augndropum minnka
bólgu og líkur á samvöxtum. Vítamín C (ascorbate)
um munn og í augndropum er talið minnka skemmdir
í hornhimnu. Augnþrýstingur getur hækkað í kjölfar
skaðans og þarf þá að gefa augnþrýstingslækkandi
lyf (2,3).
Alvarlegir basabrunar eru fremur sjaldgæfir en
helstu afleiðingar þeirra eru ör á hornhimnu og
hækkaður augnþrýstingur. Einnig getur komið rof á
augað, nýæðamyndun í hornhimnu, samvextir, ský
á augastein og skaði á sjónhimnu. Allt veldur þetta
skertri sjón. Meðferð þessara vandamála er fyrir
utan efni þessarar greinar. Þess ber þó að geta að
öll frekari meðferð alvarlegra efnabruna er ákaf-
lega erfið, svo sem hornhimnuskipti. Þetta kemur til
vegna þeirra gífurlegu áhrifa sem efnin hafa á blóðrás
til hornhimnunnar og þar með nauðsynlegt næring-
arumhverfi gjafahornhimnu. í erfiðum tilvikum þarf
stundum að fjarlægja augu eftir slíkan bruna. Til fróð-
leiks sýnir mynd 3c auga þar sem skipt hefur verið um
hornhimnu og mynd 3d sýnir svokallaða keratopr-
othesu (gervihornhimnu).
Sem betur fer er alvarlegur skaði af völdum basa
óalgengur. Fyrstu viðbrögð skipta öllu máli til að
fyrirbyggja slíkan skaða og því er mikilvægt að sá
sem er fyrstur á slysstað kunni til verka. Mynd 4 sýnir
viðbrögð við alvarlegum efnabruna í auga. Höfundar
þessarar greinar hvetja alla lækna til að læra notkun
Morganlinsu við meðhöndlun þessara augnskaða.
Efnaskaði á auga
\
Tilkynning berst lækni
Gefa fyrirmælium augnskolun
Senda sjúkrabQ á staöinn með forgangshraða
ef um alvatiegan skaða er að ræða
I
Sjúkraílutningamenn skola augað vandlega
og setja upp siskol ef mögulegt
I
Sjúklingur fluttur á heilbrigðisstofnun
(Slysadeild LSH, Fossvogi ef i nágrenni
Reykjavíkur) og skolun haldið áffam
á leiðinni, sískol ef mögulegt
I
Sett upp sískol við komu á heilbrigðisstofnun
I
Samráð við vaktbafandi augnlækni á Landspítala (543-1000)
I
Framhaldsmeðferð á augndeild Landspitala
Mynd 4. Flœðiskema umfyrstu viðbrögð við efnaskaða (basi jafntsem sýra) á auga.
Heimildir
1. Marx. Rosen's Emergency Medicine: Concepts and Clinical
Practice. 5 ed: Mosby, Inc.; 2002.
2. Wagoner MD. Chemical Injuries of the Eye: Current Concepts
in Pathophysiology and Therapy. Surv Ophthalmology 1997;
41:275-313.
3. Brodovsky SC, McCarty CA, Snibson G, Loughnan M,
Sullivan L, Daniell M, et al. Management of alkali burns: An
11-year retrospective review. Ophthalmology 2000;107: 1829-
35.
Þakkir
Yfirlæknarnir Einar Stefánsson prófessor, Friðbert
Jónasson prófessor og Jón Baldursson fá bestu þakkir
fyrir yfirlestur og góðar ábendingar.
Læknablaðið 2004/90 493