Læknablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 15
FRÆÐIGREINAR / NÝGENGI ÖRORKU
Figure 3. Incidence of disability pension (both pension levels combined) in Iceland from 2000 to 2003, by age groups and gender.
samband nýgengis örorku við þróun atvinnuleysis að
vekja athygli.
Aldursdreifing þeirra sem metnir voru í fyrsta sinn
til örorku breyttist lítið hjá báðum kynjum á tímabil-
inu frá 1992 til 2000. Eins og sést á mynd 3 varð hins
vegar aukning á örorku hjá konum á aldrinum 21-35
ára 2003, hún minnkaði hjá konum eldri en 50 ára til
2002 en jókst svo aftur stórlega árið 2003. Hjá 16-20
ára varð frekar lítil aukning en hjá 36 til 50 ára konum
varð talsverð aukning árið 2003. Nýgengi örorku hjá
körlum tók stökk í aldurshópum 36-50 ára og 51-66
ára á árinu 2003. í eldri hópnum kom það í kjölfar
lækkunar sem hafði orðið frá 2000-2002, eins og hjá
konum. Breyting nýgengis var frekar lítil í yngstu ald-
urshópum karla, þó nokkurrar aukningar hafi gætt
þar á seinni hluta tímabilsins.
Ef tillit er tekið til mismunandi stærðar aldurs-
hópanna er Ijóst að mesta fjölgun einstaklinga með
örorkumat á árinu 2003 var hjá konum á aldrinum
26-35 ára og konum sem eru eldri en 51 árs, en hjá
körlum fjölgaði mest einstaklingum sem eru 41-50 ára
og svo 56-66 ára. Aukningar atvinnuieysis 2002-2003
gætti í öllum aldurshópum, en þó hlutfallslega mest í
hópnum 20-34 ára, sem á sér samsvörun í aukningu
nýgengis örorku hjá konum það árið, en ekki í sama
mæli hjá körlum. Ef atvinnuástand hefur bein áhrif
á nýgengi örorku þá má ætla að eldra fólk á vinnu-
markaði sé viðkvæmara fyrir atvinnuleysi og auknu
álagi vegna aukinna krafna.
Mynd 4 sýnir loks samband milli umfangs lang-
tímaatvinnuleysis á íslandi og nýgengis hærra örorku-
stigsins (75%) á tímabilinu 2000 til 2003. Sambandið
er mjög sterkt (Pearson r=0,85) og hin sérstaka aukn-
ing á fólki í hærra örorkustiginu á árinu 2003 á sér
samsvörun í verulegri aukningu þess fjölda fólks sem
hefur verið atvinnulaust í sex mánuði eða lengur.
Umræða
Algengi örorku í heild (bæði örorkustigin saman-
lögð) á íslandi hafði ekki aukist árið 1996 í saman-
burði við árið 1976 (11, 12). Frá 1996 til 2002 hafði
algengi örorku hins vegar aukist. Líklegt þótti í fyrri
rannsókn að þessa aukningu mætti einkum rekja til
breyttra forsendna örorkumats með tilkomu örorku-
matsstaðals og breyttra aðstæðna á vinnumarkaði (1).
í kjölfar gildistöku staðalsins 1. september 1999 fjölg-
aði konum sem metnar voru til hærra örorkustigsins á
árinu 2000, en ekki urðu aðrar marktækar breytingar
á fjölda nýrra öryrkja (8,9). Sú rannsókn náði aðeins
fram til ársins 2000.
í núverandi rannsókn eru skoðaðar breytingar á
nýgengi örorku ár frá ári á tímabilinu 1992 til 2003.
Nokkur aukning varð á nýgengi hærra örorkustigsins
hjá konum frá 1999 til 2000. Petta fellur í tíma saman
við gildistöku örorkumatsstaðalsins í september 1999,
en á sama tíma varð hins vegar sambærileg aukning á
atvinnuleysi hjá konum. f því ljósi verður ekki full-
yrt að gildistaka staðalsins hafi sem slík orðið til þess
að auka nýgengi örorku. Breytt fyrirkomulag örorku-
mats skýrir heldur ekki þær breytingar sem urðu að
öðru leyti á nýgengi örorku á því tímabili sem nú-
verandi rannsókn nær til. Sveiflur í atvinnuleysi eiga
sér sterka samsvörun í breytingum á nýgengi örorku
á tímabilinu. Nýgengi örorku var tiltölulega hátt á
árunum 1993 til 1995 samhliða mikilli aukningu at-
vinnuleysis og þegar úr atvinnuleysi dró á næstu árum
dró einnig úr nýgengi örorku. Hækkun nýgengis ör-
orku meðal kvenna á árinu 2000, í kjölfar upptöku
hins nýja örorkumatsstaðals, á sér einnig samsvörun
í aukningu atvinnuleysis meðal kvenna það ár. Loks
fylgist að mikil aukning á nýgengi örorku og bæði á
atvinnuleysi almennt og langtímaatvinnuleysi hjá báð-
um kynjum á árinu 2003.
Figure 4. Relationship
between unemployment of
long duration (more than
six months) and number
ofnew cases of the higher
level ofdisability pension
(disability grade at least
75%) in Iceland from 2000
to 2003.
Læknablaðið 2004/90 835