Læknablaðið - 15.12.2004, Side 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KOSTNAÐARGREINING HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
Óhagkvæmt að flytja ferliverkin til baka
- Rætt við Stein Jónsson um kostnaðargreiningu Hagfræðistofnunar Háskóla íslands
á nokkrum tegundum heilbrigðisþjónustu
Þröstur
Haraldsson
Eins og kunnugt er af fréttum gerði Hagfræðistofn-
un Háskóla íslands kostnaðargreiningu á heilbrigðis-
þjónustu og birti skýrslu um hana á haustdögum. I
henni er borinn saman kostnaður við móttöku sjúk-
linga á fjórum heilsugæslustöðvum, Læknavaktinni,
stofum sjálfstætt starfandi sérfræðinga og fjórum dag-
og göngudeildum Landspítala. Skýrslan var unnin að
beiðni Delfí sem eru samtök einkarekinna læknastöðva
í Reykjavík og með stuðningi læknafélaganna.
Höfundar skýrslunnar eru Axel Hall og Sólveig
Jóhannsdóttir starfsmenn Hagfræðistofnunar HI og
þau viðurkenna í inngangi að samanburður sé erfið-
ur á milli ólíkra rekstrareininga og þar komi ýmislegt
til. „Af kostnaðargreiningunni má þó ráða að heilsu-
gæsluþjónusta lækna er almennt ódýrari en sams
konar þjónusta sérgreinalækna. Samanburður sér-
greinalækna við göngudeildarþjónustu er öllu erfiðari
þar sem þjónustan er í sumum tilfellum nokkuð ólík.
Meðalkostnaður sérgreinalækna virðist hins vegar
vera lægri en nemur kostnaði við göngudeildarþjón-
ustu LSH. Það er hins vegar háð öllum þeim fyrir-
vörum sem gera verður um þá ólíku þjónustu sem
aðilarnir veita.“
Þetta er orðað af mikill varkárni enda erfiðleik-
arnir miklir við samanburð. Þannig segir til dæmis í
samantekt um kostnað á göngudeildum Landspítala
að erfitt sé „að aðgreina algjörlega allan kostnað sem
við kemur göngudeildunum. Tölvukerfi sjúkrahússins
býður einfaldlega ekki upp á það. Einnig er erfitt að
flokka allar komur á göngudeildirnar eftir því hvort
sjúklingur sé að koma til læknis eða annars starfs-
manns deildarinnar."
En með öllum þessum fyrirvörum er það samt
niðurstaða skýrslunnar að meðallæknakostnaður við
komu sjúklinga á göngudeildir sé í flestum tilvikum
talsvert hærri en til sérgreinalæknis. Kostnaðurinn
með leyfilegum afslætti er allt frá 2328 kr. upp í 8288
kr. hjá sérgreinalæknum og að meðaltali á bilinu
4200-4300 krónur. Á göngudeild bæklunarlækninga
á Landspítala er kostnaðurinn langlægstur þar á bæ,
eða 4583 krónur, en á hinum þremur er hann á bilinu
8001-14.508 krónur.
Er göngudeildarþjónustan hagkvæm?
Steinn Jónsson lungnalæknir er formaður félagsskap-
arins Delfí sem átti frumkvæði að því að skýrsla Hag-
fræðistofnunar var unnin. Læknablaðið hitti hann að
máli og spurði fyrst um aðdraganda þess að ráðist var
í gerð skýrslunnar.
„Læknar hafa að undanförnu staðið í töluverðum
rökræðum á almennum vettvangi um heilbrigðismál
og oft verið á öndverðum meiði við aðra, sérstaklega
hvað varðar sjálfstæða starfsemi lækna utan sjúkra-
húsa. Okkur hefur fundist að það vanti haldgóðar
tölulegar upplýsingar sem hægt væri að byggja um-
ræðuna á. Þess vegna hefur mönnum haldist uppi að
setja fram alls konar fullyrðingar, lítið rökstuddar, í
þá veru að þjónusta okkar sé dýr og óþörf. Einkum
hefur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið haft
allt á hornum sér varðandi þessa starfsemi og beitt
Ríkisendurskoðun fyrir sig með ýmsu móti. Einnig
má í þessu sambandi vitna til deilunnar um tilvísana-
kerfið fyrir áratug og ýmis ummæli sem féllu meðan
á samningaviðræðum stóð milli sérfræðilækna og
Tryggingastofnunar ríkisins um síðustu áramót.
I nóvember í fyrra kom út skýrsla Ríkisendur-
skoðunar um sameiningu sjúkrahúsanna en þar kom
fram að stofnunin taldi nauðsynlegt að stórefla dag-
og göngudeildarþjónustu Landspítalans. Það getur
út af fyrir sig verið rétt en í skýrslunni var því haldið
fram að það væri hagkvæmt fyrir þjóðfélagið að stýra
ferliverkunum sem mest inn á sjúkrahúsin. Sams kon-
ar fullyrðingar komu síðar fram í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um FSA. Við vorum ekki vissir um að þetta
væri rétt og vildum fá nánari upplýsingar um kostnað-
inn við göngudeildarþjónustu spítalans annars vegar
og þjónustu sjálfstætt starfandi sérfræðilækna hins
vegar. Við vildum líka fá samanburð við heilsugæsl-
una því hún hefur einnig verið nefnd í umræðunni.
Þess vegna var ákveðið að leita til þess aðila hér
á landi sem hefur mesta reynslu af heilsuhagfræði-
legum úttektum og Hagfræðistofnun Háskóla íslands
var beðin að gera þessa úttekt.“
Athyglisverð niðurstaða
- Hvað þykir þér standa upp úr í skýrslunni?
„Mér sýnist allt vera í eðlilegum farvegi og ekk-
ert sem kemur á óvart. Viðtal hjá heilsugæslulækni
er ódýrast, aðeins ódýrara en hjá sérfræðingi á stofu,
en munurinn þar á milli er lítill og sennilega minni
en margir hafa haldið. Þannig var meðaltalskostn-
aður Tryggingastofnunar af komum til sérfræðinga
árið 2002 kr. 4320 en kostnaður við komur til lækna á
heilsugæslu var 2870 kr. í Hafnarfirði, 3500 kr. á Akur-
866 Læknablaðið 2004/90