Læknablaðið - 15.12.2004, Side 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LAN DS PÍTALI N N
Rekstrarvandi og
uppbygging Landspítala
í síðasta tölublaði Læknablaðsins skrifar Friðbjörn
Sigurðsson formaður læknaráðs Landspítala grein
um rekstrarvanda spítalans. Flann telur nauðsynlegt
að ná fram hagræðingu í rekstri með því að sameina
starfsemi spítalans á einum stað. í greinaflokki í Brit-
ish Medical Journal fyrir nokkrum árum um sam-
einingu spítala þar í landi var tekið svo ákveðið til
orða að með þeirri leið sem hér var farin náist engin
hagræðing og það væri í raun verið að skapa fleiri ný
vandamál í sambandi við reksturinn. Þar var einnig
talið að sparnaður í rekstri byggist fyrst og fremst á
sameiningu þjónustudeildanna, það er gjörgæslu,
rannsóknastofum, myndgreiningu og skurðstofum og
hann gæti numið 5-10% af rekstri þess konar spítala.
Talan sem Friðbjörn nefnir, einn milljarður, gæti al-
veg staðist en auðvitað þarf að fara vel ofan í það hér
en ég veit ekki til þess að það hafi verið gert.
Hagkvæmni slíkrar lausnar hlýtur að byggjast á
því hversu mikið kostar að leysa málið. Friðbjörn
nefnir tölur um þá lausn sem fyrrverandi og núver-
andi heilbrigðisráðherrar hafa tekið ákvörðun um,
það er 30-40 milljarða króna. Sá kostnaður og sá tími
sem fer í þessa framkvæmd hlýtur að hafa mikil áhrif
á hversu mikil hagræðing næst. Þjóðfélagið er að tapa
allt að einum milljarði króna á hverju ári. Miðað við
það ástand sem ríkir í okkar þjóðfélagi í dag hlýtur að
vera mjög vafasamt að hægt verði að leggja í þessar
miklu og dýru framkvæmdir í fyrirsjáanlegri framtíð.
Sú hagræðing sem hugsanlega fæst ef þessi leið er far-
in getur því ekki verið mikil.
Ríkið greiddi Reykjavíkurborg hátt í tvo millj-
arða króna fyrir þær húseignir sem borgin átti hlut í.
Kostnaður við breytingar á húsnæði og önnur vinna
við sameininguna hafa kostað hátt í aðra tvo millj-
arða króna og þótt nokkur faglegur ávinningur hafi
orðið af þessu ferli er ljóst að rekstrarleg hagræðing
er engin.
Ráðgjafar Ementor í Kaupmannahöfn hafa á und-
anförnum árum komið hingað til lands margsinnis,
til dæmis á vegum heilbrigðisráðuneytis, Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Landspítala. Þessir ráðgjafar hafa
mikla reynslu af vinnu við uppbyggingu spítala á
Norðurlöndum og í Mið-Evrópu. Ráðgjafarnir þekkja
einnig mjög vel til hér á landi og skilja sérstöðu okk-
ar vegna fámennis og allra annarra aðstæðna. Þeim
fannst mikið til þeirra hugmynda koma sem nú er
verið að vinna með en sögðu jafnframt að kostnað-
ur væri svo mikill að vafasamt væri að við fengjum
nokkurn tíma fé til að fara þessa leið. Þeir töldu því
nauðsynlegt að skoða vel alla aðra möguleika til að
ná sama takmarki, það er sameiningu sómatísku
bráðadeildanna á einn stað sem væri lykillinn að
hagræðingunni. Eftir að hafa skoðað allt það húsnæði
sem spítalinn hefur yfir að ráða varð niðurstaðan
sú að fljótlegast og hagkvæmast væri að nota húsið
í Fossvogi sem kjarna og byggja þar nauðsynlegt
húsnæði fyrir þjónustudeildir. Sjálfsagt væri að nota
mikið af húsnæðinu við Hringbraut áfram og þar sem
svo stutt væri á milli þessara tveggja staða væri hægt að
líta á þessar tvær lóðir sem eina. Kostnaður við þessa
leið er ekki nema brot af því sem nýbygging kostar,
hugsanlega er verið að tala um 8-10 milljarða króna.
Þessi leið er miklu fljótvirkari og þar af leiðandi er hún
mun hagkvæmari. Ofangreindir heilbrigðisráðherrar
tóku því mjög vanhugsaða ákvörðun með því að neita
að skoða þessa leið. Læknaráð Landspítala á nú að
krefjast þess að ráðherra láti skoða alla möguleika
enda hlýtur öllum landsmönnum að vera ljóst að þær
skýjaborgir sem verið er að vinna með munu ekki
verða að raunveruleika á næstu áratugum en það er
til mikils skaða fyrir spítalann.
Þann 17. nóvember birtist auglýsing frá skipu-
lagsyfirvöldum í Reykjavík um breytingu á hlutverki
lóðar vestan við spítalann í Fossvogi. Þessi lóð hefur
verið hugsuð fyrir þjónustubyggingar fyrir spítalann
en nú hefur verið tekin ákvörðun um að taka hana
undir íbúðabyggð. Athugasemdir eru mögulegar til
áramóta.
Ólafur Örn
Arnarson
Höfundur er sérfræðingur í
þvagfæraskurðlækningum.
Læknablaðið 2004/90 873