Læknablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ARFUR JÓNS STEFFENSEN
Félagið er afsprengi norrænnar samvinnu
- Rætt við Atla Þór Ólason formann Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
en félagið verður fertugt á jólaföstunni
í þessu blaði er boðað ráðstefnuhald í tilefni af ald-
arafmæli Jóns Steffensen læknis. Hann kom víða við
á æviferli sínum og eitt af því sem hann tók sér fyr-
ir hendur var að gangast fyrir stofnun Félags áhuga-
manna um sögu læknisfræðinnar. Nú er það félag að
verða fertugt og af því tilefni ræddi Læknablaðið við
núverandi formann þess, Atla Pór Ólason bæklunar-
lækni.
Atli upplýsti að afmælisdagur félagsins væri 18. des-
ember en þann dag árið 1964 komu 47 karlar og ein
kona saman til stofnfundar í húsakynnum Háskóla
Islands. „Nú eru konur í meirihluta í stjórn félagsins
og þær segja að þetta hafi greinilega verið algert karla-
félag. Það er ekki nóg með að karlar hafi verið í yfir-
gnæfandi meirihluta félagsmanna heldur er félagið
stofnað í miðjum jólaönnum en það hefði engri konu
dottið í hug að gera,“ segir Atli og brosir.
Að öllu gamni slepptu má segja að félagið sé af-
sprengi norrænnar samvinnu og áhuga Læknafélags
Reykjavíkur.
„Félagið var stofnað til að vera samstarfsaðili
fyrir íslands hönd við gerð Nordisk Medicinsk Ár-
bog sem gefin var út í 1600 eintökum af læknasögu-
félögunum á Norðurlöndum. Hún kom fyrst út 1953
á vegum Læknaminjasafnsins í Stokkhólmi en um
1960 bættust læknasögufélögin í Danmörku, Noregi
og Finnlandi í hópinn. Jón Steffensen var beðinn að
taka þátt í þessu starfi árið 1962 og þá fór hann að
huga að stofnun félags um sögu læknisfræðinnar eins
og tíðkuðust á Norðurlöndum.
Hvatinn innanlands kemur hins vegar frá stjórn
Læknafélags Reykjavíkur sem færði það í tal við Jón
að stofna félag til eflingar áhuga á sögu læknisfræð-
innar. Jón tók þessu tækifæri feginshendi og boðaði til
stofnfundar. Þangað komu 48 manns, flestallt læknar
en þó voru meðal stofnenda áhugamenn um sögu og
menningu á borð við Kristján Eldjárn, Magnús Má
Lárusson, Einar Ólaf Sveinsson og Jakob Benedikts-
son. í fyrstu stjórn voru kosnir þeir Jón Steffensen
formaður, Ólafur Bjarnason læknir og Birgir Einars-
son apótekari," segir Atli.
Söfnun og varðveisla lækningaminja
Á stofnfundinum lýsti Jón Steffensen meðal annars
hugsanlegum verkefnum félags af þessu tagi og segir
Atli að sú stefnuyfirlýsing sé enn í fullu gildi, að því
frátöldu að útgáfa áðurnefndrar árbókar lagðist af
árið 1994. í lögum félagsins segir að tilgangur félags-
ins sé „að efla þekkingu á sögu læknisfræðinnar með
hverjum þeim ráðum, er þjóna því sjónarmiði, s.s.
með því að styðja rannsóknir á sögu læknisfræðinnar,
útgáfu rita og varðveizlu minja...“.
„Jón var formaður félagsins til dauðadags árið
1991 og hann var einnig aðalrannsakandinn, stundaði
beinarannsóknir, rannsóknir á skjölum og hélt fyrir-
lestra innan og utan félags. Fleiri læknar stunduðu
sögulegar rannsóknir og fjölluðu um þær á fræðslu-
fundum. Félagið rækti þessar skyldur sínar nokkuð
vel en eftir daga Jóns hafa þessar rannsóknir eink-
um verið í höndum sagnfræðinga, mannfræðinga og
fornleifafræðinga. Erlendis eru starfræktar fjölmarg-
ar stofnanir sem sinna rannsóknum og kennslu í sögu
læknisfræðinnar, í Þýskalandi einu eru þær á þriðja
tug.
Varðveisla lækningaminja var eitt helsta verkefni
félagsins og áhugamál Jóns. Fjölmargir munir söfn-
uðust og Jón kom því til leiðar að þessir munir
voru afhentir Þjóðminjasafni til varðveislu. Stóri
draumurinn var að Nesstofa yrði keypt og komið
í upprunalegt form þar sem hægt yrði að hafa safn
um sögu læknisfræðinnar og gekk það eftir. Jón
Iagði fram eigið fé til uppbyggingar Nesstofusafns
og arfleiddi Læknafélag Islands að allri peningaeign
sinni sem skyldi varið óskiptri til framtíðarhúsnæðis
safnsins. Byggingarnefnd nýrrar safnbyggingar starf-
aði ötullega um árabil undir forystu formanna Félags
áhugamanna um sögu læknisfræðinnar, þeirra Gunn-
laugs Snædal og Halldórs Baldurssonar, og efnt var
til samkeppni um teikningar sem liggja fyrir. Hins
vegar fékkst ekki viðbótarfé til framkvæmdarinnar
frá ríkinu, meðal annars vegna fjárfrekra endurbóta
Þjóðminjasafns og er því byggingarmálið í biðstöðu.
Atli Pór Ólason formaður
Félags áhugamanna um
sögu lœknisfrœðinnar.
Þröstur
Haraldsson
Læknablaðið 2004/90 879