Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2004, Side 62

Læknablaðið - 15.12.2004, Side 62
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MINNING George W, Simons M.D. Velunnari íslenskra barnabæklunarlækninga kvaddur George W. Simons. EFTIR Höskuld Baldursson Hinn 18. október sl. lést á Landspftalanum í Fossvogi George W. Simons barnabæklunarskurðlæknir. Utför hans var gerð frá Mosfellskirkju 26. október. Hann var kvæntur Sigrúnu Erlu Magnúsdóttur og lifir hún mann sinn. Þau hjón eignuðust tvær dætur sem báðar eru uppkomnar. Þeim mæðgum sendum við innilegar samúðarkveðjur. George Simons var tvímælalaust í hópi þekktustu barnabæklunarskurðlækna Vesturlanda. Hann fædd- ist 13. janúar 1935 og Iauk læknanámi frá George Washington University Medical School í Washington D.C. 1960. Að lokinni fimm ára þjónustu í bandaríska fiughernum tók við sérnám í bæklunarskurðlækn- ingum við Mayo Clinic í Rochester Minnesota en þar starfaði hann og nam frá 1965-1970. Næst lá leið George til Bretlands þar sem hann nam barnabæklun- arskurðlækningar í Oxford, Edinborg og London. Eftir heimkomu til Bandaríkjanna starfaði George sem sérfræðingur í barnabæklunarlækningum við Children's Memorial Hospital í Chicago 1971-1974. Hann hafði jafnframt á höndum stjórn allrar lækna- kennslu á bæklunardeild spítalans. Á árunum 1975-1978 var George Simons aðstoð- arprófessor í bæklunarlækningum við University of Washington, Seattle, Washington og starfaði þá við Children's Orthopedic Hospital í Seattle. Árið 1978 varð George Simons prófessor í bækl- unarlækningum við Medical College of Wisconsin í Milwaukee. Hann var jafnframt yfirlæknir og stjórn- andi bæklunardeildar Milwaukee Children's Hospital og síðar yfirmaður alls skurðsviðs spítalans. Þessum störfum gegndi hann þar til hann varð að láta af störfum af heilsufarsástæðum á síðasta áratug liðinn- ar aldar. George Simons var mikill fræðimaður. Eftir hann liggja tugir greina í sérfræðiritum auk þess sem hann hefur ritað kafla í allmörgum kennslubókum í barna- bæklunarlækningum. Klumbufætur voru sérstakt áhugamál hans. Hann stofnaði til fyrsta alþjóðlega þingsins um klumbufætur í Milwaukee 1990. Næsta þing um þetta efni var síðan haldið f Amsterdam, Hollandi undir stjórn George 1996. í kjölfar þingsins í Milwaukee 1990 kom út bókin „The Clubfoot“ und- ir ritstjórn George Simons. í bókinni eru birt erindi sem flutt voru á þinginu ásamt umræðum sem um þau urðu og athugasemdum ritstjóra. Bókin er frábær ekki hvað síst vegna umræðukafla og athugasemda. Þar kemur glögglega fram hversu flókið viðfangsefn- ið er og skoðanir jafnvel fremstu sérfræðinga heims- ins skiptar. Árið 1972 stofnaði Mihran O. Tachdjian prófess- or og yfirlæknir við Children's Memorial Hospital í Chicago til námskeiðs sem hann kallaði „Pediatric Orthopedic International Seminar". Þar var á níu dög- um farið yfir allar helstu nýjungar í barnabæklunar- lækningum. Námskeið þetta var rómað að gæðum og var haldið árlega um tveggja áratuga skeið. George Simons var náinn samstarfsmaður Tachdjians er nám- skeið þessi hófust. Hann var einn stjórnanda nám- skeiðanna og tíður fyrirlesari meðan heilsa entist. Á starfsævi sinni hélt George Simons fjölda fyr- irlestra í Bandaríkjunum, víðsvegar um Evrópu og í Austurlöndum, t.d. í Japan. Hann var því mjög vel þekktur meðal barnabæklunarlækna víða um heim og var meðal annars gerður að heiðursfélaga í félagi evr- ópskra barnabæklunarlækna 1986. Það mun hafa verið um 1970. Ég var þá kominn heim eftir sérfræðinám í Bandaríkjunum og var á helgar- vakt á Landspítalanum. Hringt var í mig frá skipti- borði spítalans og mér tjáð að í anddyri spítalans væri stödd íslensk kona með unnusta sínum bandarískum lækni og langaði hana að sýna honum íslenskt sjúkra- hús. Það kom því í minn hlut að rölta með þeim um spítalann og sýna þeim það helsta. Ekki hvarflaði að mér þá að hér væri upphaf frekari kynna. Áratug síðar 1979 skráði ég mig til þátttöku í „The 7th. Pediatric Orthopedic International Sem- inar“ sem haldið var í Chicago. Ég hafði jafnframt tryggt mér vikudvöl á Children's Memorial Hospital í Chicago eftir námskeiðið til að fylgjast með skurð- stofu- og göngudeildarstarfsemi. Á námskeiðinu hitti ég George Simons sem ég í rauninni þekkti ekkert, en hann var þá orðinn prófessor og yfirlæknir við Children's Hospital í Milwaukee. Hann bauð mér að koma til Milwaukee eftir dvölina í Chicago ef ég hefði tíma. Ég tók því lest til Milwaukee, skráði mig inn á hótel í grennd við Children's Hospital og hringdi síð- an í prófessor Simons til að fá að vita hvenær ég mætti koma á sjúkrashúsið næsta morgun. Skemmst er frá því að segja að ég var sóttur á hótelið og drifinn heim til þeirra hjóna þar sem ég dvaldist í yfirlæti þessa daga í Milwaukee. Þetta dæmi sýnir vel þá miklu og einlægu gestrisni og vináttu sem þau hjón sýndu ætíð og gerði það að verkum að manni leið strax vel í ná- vist þeirra. 882 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.