Læknablaðið - 15.06.2005, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR
ættumat Hjartaverndar
Meira en þriðji hver íslendingur deyr af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma (1). Fjölmargir missa
heilsuna á hverju ári vegna kransæðasjúkdóma og
heilaáfalla sem hefði mátt koma í veg fyrir með
markvissum forvarnaraðgerðum. Þannig sýna rann-
sóknir Fljartaverndar að á síðastliðnum 20 árum
hefur dauðsföllum af völdum kransæðastíflu fækk-
að um 55% (2). En þó að verulegur árangur hafi
náðst í meðferð þessara sjúkdóma eru þeir ennþá
langalgengasta dánarorsök Islendinga.
A síðustu árum hefur skilningi okkar á mein-
gerð kransæðasjúkdóma fleygt fram. Ný tækni
hefur auðveldað greiningu kransæðasjúkdóma og
ný lyf komið fram sem draga úr afleiðingum þeirra.
Með aukinni þekkingu á því hvernig kransæða-
sjúkdómur myndast hefur áherslan smám saman
færst frá því að meðhöndla sjúkdóminn á lokastigi
yfir í það að greina og meðhöndla forstigsbreyting-
ar kransæðasjúkdóms. Nýjasta tækni í myndgrein-
ingu gerir okkur mögulegt að greina æðakölkun á
frumstigi mörgum árum eða jafnvel áratugum áður
en hún fer að valda einkennum. Vonir standa til
að með íhlutun á þessum forstigsbreytingum megi
koma í veg fyrir sjúkdóma síðar.
Kransæðasjúkdómur þróast á löngum tíma
og veldur oft engum einkennum fyrr en hann er
tiltölulega langt genginn. Flestir sem fá krans-
æðastíflu í fyrsta sinn eru alls ómeðvitaðir um
að þeir hafa gengið með æðakölkun í mörg ár án
meðferðar. Þegar kransæðastíflan hefur myndast
eru menn komnir í varnarstöðu og reyna að draga
úr þeim skaða sem stíflan veldur. Fleppilegri leið
væri að huga að forvörnum. Til þess þarf að greina
byrjunarstig sjúkdómsins hjá einkennalausum ein-
staklingum. Hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins
hefur verið unnið brautryðjendastarf með kerf-
isbundinni leit að forstigsbreytingum legháls-
krabbameins og brjóstakrabbameins. Engum dylst
mikilvægi þeirrar starfsemi. Hún þykir eðlileg og
sjálfsögð í baráttunni gegn þessum hættulega sjúk-
dómi. Þó eru mun fleiri sem deyja á ári hverju úr
hjarta- og æðasjúkdómum. Þess vegna er þörf á
vakningu í forvörnum gegn kransæðasjúkdómum.
Kerfisbundin leit að forstigsbreytingum kransæða-
sjúkdóms hjá einkennalausum einstaklingum er
líkleg til að leiða til meðferðar og draga enn frekar
úr dánartíðni í hjarta- og æðasjúkdómum og fækka
tilfellum kransæðastíflu.
I tæpa fjóra áratugi hefur Hjartavernd rekið
rannsóknarstöð þar sem safnað hefur verið saman
upplýsingum um áhættuþætti kransæðasjúkdóma.
Þessar rannsóknir hafa vakið athygli lækna á al-
þjóðavettvangi. Afram er unnið og leitað nýrrar
þekkingar á sviði bólgumiðla og erfðaþátta í mein-
gerð kransæðasjúkdóma.
Mikilvægur liður í starfsemi Hjartaverndar er
áhættumat þar sem heilbrigðir einstaklingar geta
fengið kerfisbundna skoðun til að meta líkur á
hjarta- og æðasjúkdómi. Þetta áhættumat hefur
þróast í áranna rás og tekið mið af nýrri þekk-
ingu sem hefur skapast bæði innan Hjartaverndar
sem og á alþjóðavettvangi. Til grundvallar áhættu-
matinu liggur áratugastarf rannsóknarstöðvarinn-
ar. Sú þekking sem þannig hefur skapast liggur til
grundvallar þeirri áhættureiknivél sem notuð er
við áhættumat í dag. Ahættureiknivélin er öllum
aðgengileg á netinu. Ahættumatið var endurskipu-
lagt um síðustu áramót. í því er lögð áhersla á
persónulega ráðgjöf og úrræði sem byggjast á þeim
áhættuþáttum sem greinast hjá hverjum og einum.
Boðið er upp á áreynsluþolpróf og myndgreiningu
samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum stöðlum og
verklagsreglum. Meðferð er hafin og eftirfylgni
tryggð hjá læknum utan Hjartaverndar.
í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 eru forvarnir
í hjarta- og æðasjúkdómum skilgreindar sem for-
gangsverkefni. Markmiðið er að dregið verði úr
dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúkdóma um 10-
20% og tíðni heilablóðfalla um 30%. Til þess að
ná þessum markmiðum er nauðsynlegt að nýta þá
þekkingu sem skapast hefur á nýliðnum árum og
beita henni markvisst til meðhöndlunar áhættu-
þátta. Til þess þarf fjármagn sem verður til lengdar
litið vel varið í bættu heilbrigði og minnkandi sjúk-
dómskostnaði vegna hjarta- og æðasjúkdóma.
Heimildir
1. Hagstofa fslands: Dánarmeinaskrá 2003.
2. Sigfússon N, Sigurðsson G, Agnarsson U, Guðmundsdóttir II,
Stefánsdóttir I, Sigvaldason H. Breytingar á tíðni kransæða-
sjúkdóma á íslandi. Læknablaðið 2001; 87:889-96.
Hagsmu natengsl
Karl situr í framkvæmdastjórn Hjartaverndar og í stjórn Hjarta-
rannsókna ehf. Hann er í ritstjórn Læknablaðsins.
Karl Andersen
Höfundur er hjartalæknir á
Landspítala.
Læknablaðið 2005/91 495