Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2005, Blaðsíða 26

Læknablaðið - 15.06.2005, Blaðsíða 26
FRÆÐIGREINAR / SERFRÆÐINAM HERLENDIS hugsanlegt að þeir sent hafa áhuga á jaðargrein- um eða sérhæfðari greinum hafi síður tekið þátt. Einnig gæti verið að þeir sem velja síðar sérhæfðari greinar séu óákveðnir lengur eða vilji sækja sér breiðari grunn og niðurstaðan gefi því misvísandi skilaboð um þann undirhóp sem velur síðar sér- hæfðari greinar. Ef lil vill skortir kraftmeiri urn- ræðu innan læknadeildar og meðal unglækna um þróun starfsferils en slík umræða gæti flýtt fyrir ákvörðun um sérhæfingu, sparað tíma og fé. Hvaða þœttir ráða vali á sérfrœðinámi? Þegar samanburður á áhrifum ýmissa faglegra og fé- lagslegra þátta var skoðaður milli þeirra hópa sem vildu sérfræðinám á íslandi eða alfarið sérfræðinám erlendis voru hóparnir sammála um mikilvægi verk- legrar þjálfunar og skipulegrar fræðslu. Peir sem kusu sérfræðinám á íslandi röðuðu fjölskylduað- stæðum og aðgengi að sérfræðingum ofar en þeir einstaklingar sem vildu alfarið læra erlendis, þeir röðuðu rannsóknatækifærum og sjúklingaúrvali ofar. Þótt þessi munur veki ýmsar spurningar ber að taka með fyrirvara hvort munur milli hópanna sé raunverulegur. Vissulega stunda íslenskir læknar oft nám við stórar stofnanir ytra með fjölbreyttum rannsóknatækifærum og flóru sjúkdóma, en hafa ber í huga að margar stofnanir sem bjóða sérfræði- nám erlendis eru álíka stórar og Landspítali. Að auki má benda á að rannsóknatækifæri á sumum sviðum eru síst minni hér á Islandi en erlendis (6). Sjúklingaúrval er örðugt að auka í fámennu landi, en sjálfsagt er að tryggja að unglæknar í sér- fræðinámi hérlendis fái sem fjölbreyttasta reynslu á öllum stigum heilbrigðiskerfisins, ekki síst með þátttöku í göngudeildarþjónuslu. íhuga þarf hvorl möguleikar til rannsóknaverkefna á íslandi séu nógu aðgengilegir og sýnilegir unglæknum við klínísk störf. Mögulegt er að unglæknum í klínísku sérfræðinámi reynist erfitt að Ijúka verkefnum samhliða starfi, vegna þess að ferill leyfisumsókna, öflun efniviðs, úrvinnsla og greinaskrif eru oft mun tímafrekari en virðist í fyrstu. í þessu samhengi má nefna að vinnuálag á Islandi er meira en tíðkast í Evrópusambandslöndum (7). Efla mætti kynningu á rannsóknatækifærum, hönnun rannsókna og möguleikum til þess að stunda sérfræðinám sam- hliða meistara- eða doktorsnámi við læknadeild, en nú þegar eru fordæmi fyrir slíku. Lokaorð Ahugi unglækna og læknanema á sérfræðinámi í læknisfræði á Islandi virðist talsverður. Hins vegar kjósa flestir þátttakendur að ljúka sínu sérfræði- námi við erlendar stofnanir. Pessar niðurstöður eru í samræmi við nýlegar hugmyndir um skipu- lag framhaldsmenntunar í læknisfræði á Islandi. Áhugi unglækna er vitanlega ein forsenda þróunar slíks náms á íslandi, en fleira þarf til að það kom- ist á legg. Nefna má greinargóðar marklýsingar, skilgreind hlutverk þeirra sem að náminu standa, greiningu kostnaðar og nánari könnun á viðhorfi sérfræðinga og nemenda sem þegar koma að slíku námi hér. Eftirlit með að námið uppfylli ítrustu kröfur er í umsjá FMR. Það er flókið og kostnaðar- samt verkefni að samþætta sérfræðinám í tveimur eða fleiri löndum og æskilegt að líta til skipulags slíks náms í öðrum löndum. Mikilvægt er að hafa í huga að sérfræðinám í læknisfræði er þegar starfrækt á íslandi. Tekist hefur að skilgreina kostnað fyrir sérfræðinám í heimilislækningum (8) þannig að fjármagn frá heilbrigðisráðuneytinu fylgir nú hverjum nem- anda. Æskilegt væri að huga að sambærilegum fjármögnunaraðferðum fyrir sérfræðinám í öðrum greinum svo að vaxtarbroddur þess hafi tryggan fjárhagslegan grundvöll. Einnig er mikilvægt að skyldur sérfræðinga í klínískri kennslu séu skil- greindar og vinnuframlag á því sviði viðurkennt. Fjölgun nema í formlegu sérfræðinámi á íslandi er einnig líklegt til að efla vísindastarfsemi hérlend- is. Lyflækningasvið Landspítala hefur skilgreint rannsóknamánuði deildarlækna í sérfræðinámi, og er nú einnig grundvöllur fyrir að taka formlegt rannsóknanám við læknadeild samhliða klínískum störfum á tilsvarandi lengri tíma en þegar slíkt nám er stundað eitt og sér. Könnun okkar bendir til þess að unglæknar og læknanemar hafi áhuga á að taka fyrri hluta sér- fræðináms í læknisfræði á íslandi, og teljum við því vera grundvöll fyrir uppbyggingu þess. Ljóst er að FMR hefur umfangsmikið hlutverk á næstu árum við að tryggja að slíkt nám sé markvisst og uppfylli sam- bærilegar kröfur og tíðkast í nágrannalöndunum. Þakkir Höfundar þakka mikilvæga aðstoð: Kristjáni Er- lendssyni, Margréti Valdimarsdóttur ritara, Þuríði Pálsdóttur, Vilhjálmi Rafnssyni og starfsfólki skrif- stofu Læknafélags íslands. Rannsókn þessi naut engra styrkja. Heimildir 1. Arnar DO, Baldursson Ó. Sérfræðinám íslenskra lækna í Bandarfkjunum, hvert stefnir? Læknablaðiö 1997; 83: 510-1. 2. Haraldsdóttir KH, Guðbjartsson T. Sérfræðinám í Svíþjóð - Vænn kostur. Læknablaðið 2001; 87:160-6. 3. Þjóðleifsson B, Baldursson Ó. Framhaldsnám - straumar og stefnur. Læknablaðið 2002; 88: 586-7. 4. Guðmundsson S. Mismunandi sjónarmið styrkja fagið á íslandi. Morgunblaðið 2003, 8. júlí. 5. Læknalög. In: nr 53; 1988. 6. Rannís. Rannsóknir, þróun og nýsköpun. Tölfræði 2003. 7. Carr S. Education of senior house officers: current challenges. Postgrad Med J 2003; 79: 622-6. 8. Svavarsdóttir AE, Guðmundsson GH, Sigurðsson JÁ. Sérnám í heimilislækningum á íslandi. Læknaneminn 2004; 55:16-9. 514 Læknablaðið 2005/91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.