Læknablaðið - 15.06.2005, Qupperneq 17
FRÆÐIGREINAR / MERGÆXLI í BEINAGRIND
Mergæxli í fornri beinagrind
frá Hofstöðum í Mývatnssveit
Ágrip
Hildur
Gestsdóttir
FORNLEIFAFRÆÐINGUR
Guðmundur I.
Eyjólfsson
SÉRFRÆÐINGUR í
ULÓÐSJÚKDÓMUM
OG LYFLÆKNINGUM
Fornleifauppgröftur hefur staðið yfir í kirkjugarð-
inum á Hofstöðum í Mývatnssveit frá því sumarið
1999. Nú þegar hafa leifar tveggja bænhúsa og 78
beinagrindur frá 11.-15. öld verið grafnar upp.
Sumarið 2003 fannst beinagrind í kirkjugarðinum
með meinafræðilegar breytingar sem bentu til ill-
kynja meins. Slík fornleifafræðileg tilfelli eru mjög
sjaldséð og þykir því vert að birta hvert einasta
tilfelli.
Beinagrindin sem um ræðir, HST-027, var úr
konu sem hefur verið á aldrinum 45-50 ára þegar
hún lést. Staðlaðar beinafræðilegar aðferðir voru
notaðar til að greina kyn, lífaldur og líkamshæð.
Fornmeinafræðileg rannsókn var gerð þar sem
öllum sýnilegum breytingum á hverju einasta beini
var lýst. Pvf næst voru höfuðkúpa, rifbein, vinstri
mjaðmarspaði, og öll vinstri leggjarbein röntgen-
mynduð til að aðstoða við sjúkdómsgreiningu.
Rannsókn leiddi í ljós beineyður í nánast öllum
flötu beinum líkamans, auk hryggjarliða, rif-
beina og efri hluta vinstri lærleggs, einkennandi
fyrir mergæxli. í fornleifafræðilegum tilfellum
getur verið erfitt að greina á milli mergæxlis og
meinvarps (þá líklegast frá brjóstakrabbameini,
sérstaklega hjá konum), en ólíklegt er að um
meinvarp sé að ræða þar sem engin merki eru um
nýmyndun beins umhverfis vefskemmdirnar.
Beinagrind HST-027 frá Hofstöðum er fyrsta
birta tilfellið af illkynja meini á Islandi og með
öruggari greiningum af mergæxli í fornum beinum
sem birt hafa verið almennt, en aðeins hafa um
20 tilfelli verið birt til þessa hvaðanæva úr heim-
inurn.
Inngangur
‘Fornleifastofnun íslands,
2Læknasetriö í Mjódd.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Hildur Gestsdóttir
Fornleifastofnun íslands,
Bárugötu 3,
101 Reykjavík.
hildur@instarch. is
Lykilorö: fornleifafrœði,
mannabeinarannsóknir, merg-
œxli, Hofstaðir í Mývatnssveit.
Einstaka sinnum finnast við fornleifauppgröft
beinagrindur sem bera þess merki að einstakling-
urinn hafi þjáðst af illkynja meini. Slík tilfelli eru
þó mjög fátíð og hafa ýmsar skýringar verið settar
fram til að útskýra það, til dæmis var meðalævi
styttri á fyrri öldum sem þýddi að fæstir náðu þeim
aldri þegar þessir sjúkdómar gera oftast vart við
sig. Varðveisla beina getur líka haft áhrif og ekki
er óalgengt að bein einstaklinga sem voru veikir
lengi fyrir andlát varðveitist verr þar sem að þau
eru veikbyggðari en bein hinna heilsuhraustari.
Mörg illkynja mein eru ekki í beinum og því grein-
ENGLISH SUMMARY
Gestsdóttir H, Eyjólfsson Gl
Myeloma in an archaeological skeleton from
Hofstaðir in Mývatnssveit
Læknablaðið 2005; 91: 505-9
Archaeological investigations have been ongoing in
the cemetery at Hofstaðir in Mývatnssveit since the
summer of 1999. To date, the remains of two chapels
as well as 78 skeletons have been excavated, dated
to between the 11th and 15th century. A skeleton
was excavated in the summer of 2003 which showed
pathological changes indicative of a malignant disease.
Palaeopathological cases of malignancies are very rare,
and it is therefore important to report on each case.
Skeleton HST-027 was a female, aged 45-50 years
at the time of death. Standard osteological methods
were used to determine the sex, age and stature.
Macroscopic analysis was carried out on the skeleton
and all pathological changes on each bone described.
The cranium, ribs, left os coxa and all left long bones
were then radiographed to aid in the diagnosis.
The analysis showed lytic lesions in all the flat
bones, as well as the vertebrae, ribs and the proximal
end of the left femur, all changes indicative of
multiple myeloma. Palaeopathologically myeloma and
metastatic cancer (then usually due to breast cancer
in the case of women) are often difficult to distinguish.
However there is no new bone formation surrounding
the lesions, which means that metastatic cancer is
unlikely to be the cause.
Skeleton HST-027 from Hofstaðir is the first
published case of malignant disease in lceland,
and one of the clearer cases of myeloma in an
archaeological specimen, but to date, approximately
twenty cases have been reported world-wide.
Keywords: archaeology, human osteology, multiple myeloma,
Hofstaðir in Mývatnssveit.
Correspondence: Hildur Gestsdóttir, hildur@instarch.is
ast þau ekki við fornleifafræðilegar rannsóknir þar
sem óalgengt er að aðrir vefir en bein varðveitist.
Einnig hafa margir bent á að aukin iðnvæðing
þýðir að nú á dögum eru mun fleiri krabbameins-
valdandi efni í umhverfinu (1). Hverjar sem skýr-
ingarnar eru þá þykir vert að greina sérstaklega
frá nýjum fundum. I þessari grein er lýsing og
greining á einni slíkri beinagrind sem grafin var
upp við fornleifarannsóknir í kirkjugarðinum á
Hofstöðum í Mývatnssveit sumarið 2003.
Læknablaðið 2005/91 505