Læknablaðið - 15.06.2005, Síða 19
FRÆÐIGREINAR / MERGÆXLI í BEINAGRIND
litað jarðveginn dökkan. Beinagrindurnar liggja
flestar á bakinu, með hendur á mjöðmum og hefur
aska verið lögð á bringu þeirra að kristnum sið.
Varðveisla beina á Hofstöðum er nokkuð misjöfn,
en í flestum tilfellum mjög góð. Þó að greiningu
beinagrindanna sé ekki lokið benda fyrstu niður-
stöður til þess að þær henti mjög vel til ýmissa
mannabeinarannsókna (12).
Beinagrindin
Beinagrindin sem þessi grein fjallar um, HST-027,
var grafin upp sumarið 2003. Hún er mjög vel
varðveitt, flest bein eru til staðar þó að sum þeirra
séu brotin (mynd 1). Staðlaðar beinafræðilegar
aðferðir voru notaðar við að greina kyn (13-15),
lífaldur (16, 17) og líkamshæð (18) og reyndist
beinagrindin vera af konu á aldrinum 45-50 ára,
162±3 sm á hæð.
Niðurstöður
Fornmeinafræðileg rannsókn á beinunum leiddi í
ljós sýnilegar beineyðandi vefskemmdir í þó nokkr-
um beinum.
• Höfuðkúpa: Hnakkabein, hægra og vinstra
hvirfilbein (sjá mynd 2), hægra og vinstra
gagnaugabein, ennisbein og kinnkjálki (sjá
mynd 4). í öllum tilfellum eru vefskemmd-
irnar algengari á ytra borði beinsins og
nokkrar þeirra rjúfa bæði innra og ytra borð
beinsins. Þær eru misstórar, flestar <1-10
mm. Svo virðist sem stærstu holurnar séu
nokkrar mismunandi vefskemmdir sem hafa
runnið saman.
• Hryggjarliðir: Vefskemmdir hafa myndast
í alla hryggjarliðina, en þeir eru flestir illa
varðveittir. Skemmdirnar er aðallega að
finna á liðbogum, en þó líka á liðbolum. Á
hálsliðum eru vefskemmdirnar <1-5 mm í
þvermál, en á brjóst- og lendarliðum eru þær
<1-10 mm, og eru stærstu holurnar líklegast
nokkrar vefskemmdir sem hafa sameinast.
Þó er erfitt að segja um það með vissu vegna
slæmrar varðveislu.
• Rifbein: Varðveisla riRieina er ekki mjög
góð, en greina má vefskemmdir, <1-5 mm
í þvermál, á öllum rifbeinsbrotum. Engin
þeirra nær alveg í gegnum beinið.
• Herðablöð: Vefskemmdir, <1-6 mm í þver-
mál, er að finna á báðum herðablöðum.
Flestar eru umhverfis liðskálarnar og herða-
blaðsnibburnar, einungis á blöðunum ná þær
alveg í gegnum beinið.
• Viðbein: Vefskemmdir er að finna á báðum
viðbeinum, nálægt báðum endum. Þær eru
<1-4 mm í þvermál.
• MjaðmabeimVefskemmdirábáðummjaðma- Mynd 2.
beinum. Þær eru <1-4 mm i þvermál og ná
sumar í gegnum beinið. Flestar vefskemmdir
er að finna á efri hluta mjaðmaspaða, sér-
staklega á vinstra beininu.
• Lærleggur: Ein vefskemmd er á aftari hluta
af vinstri lærleggjarhálsinum, 4 mm í þver-
mál.
Allar þessar beineyðandi vefskemmdir eru Mynd 3.
Læknablaðið 2005/91 507