Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2005, Síða 23

Læknablaðið - 15.06.2005, Síða 23
FRÆÐIGREINAR / SÉRFRÆÐINÁM HERLEND Afstaða unglækna og læknanema til sérfræðináms á Islandi Inga Sif Ólafsdóttir1,2 LÆKNIR í SHRFRÆÐINÁMI í ALMENNUM LYFLÆKNINGUM Sædís Sævarsdóttir1,2 DEILDARLÆKNIR OG DOKT- ORSNEMI VIÐ LÆKNADEILD Kolbrún Pálsdóttir1,3 LÆKNAKANDIDAT Á Landspítala Hannes Petersen' SÉRFRÆÐINGUR í HALS-, NEF- OG EYRNALÆKN- INGUM Ólafur Baldursson1 SÉRFRÆÐINGUR í LYF- LÆKNINGUM OG LUNGNA- SJÚKDÓMUM 'Framhaldsmenntunarráði læknadeildar, 2Félagi ungra lækna, 3Félagi læknanema. Fyrstu tveir höfundar lögðu jafnt til handritsins. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Ólafur Baldursson, Lyflækningasviði I, E7 Landspítala Fossvogi, 108 Reykjavík. olafbald@landspitali. is Lykilorö: lœknisfrœðinám, sérmenntun, sérfrœðinám, unglœknar. Ágrip Inngangur: Ymsir hafa lýst áhuga á skipulegu sér- fræðinámi í læknisfræði á íslandi. Áhugi og afstaða unglækna og læknanema til slíks náms hefur ekki verið athuguð áður. Efniviður og aðferðir: í ársbyrjun 2004 var sendur spurningalisti til 146 unglækna og 84 læknanema á fimmta og sjötta ári í læknisfræði. Spurt var um kyn, afstöðu til sérfræðináms á Islandi, áhuga á að stunda slíkt nám og í hvaða sérgrein viðkomandi stefndi. Einnig var spurt hvaða þættir hefðu áhrif á ákvarðanir svarenda um val á sérfræðinámi og þáttum raðað eftir mikilvægi. Niðurstöður: Alls svöruðu 100 manns spurninga- lista (svarhlutfall 45%), 61 unglæknir (deildar- læknar og kandídatar) og 39 læknanemar. Af inn- sendum svörum voru langflestir unglæknar (97%) og læknanemar (87%) mjög hlynntir eða frekar hlynntir sérfræðinámi á Islandi. Meirihluti þeirra er svaraði vildi stunda hluta sérfræðináms hér- lendis. Þeir sem kusu hluta sérfræðináms á fslandi sögðu verklega þjálfun, aðgengi að sérfræðingum, fjölskylduaðstæður og skipulega fræðslu ráða mestu um þetta val. Þeir sem vildu alfarið sérfræði- nám erlendis mátu mest sjúklingaúrval, verklega þjálfun, skipulega fræðslu og rannsóknatækifæri. Samantekt: Unglæknar og læknanemar eru hlynnt- ir því að taka hluta síns sérfræðináms á íslandi. Þeir sem kusu sérfræðinám erlendis mátu sjúk- lingaúrval og rannsóknatækifæri meir en þeir sem vildu sérfræðinám á íslandi. Inngangur Flestir íslenskir læknar fara utan til sérfræðináms eftir að hafa starfað á íslandi í nokkur ár (1-3). Fáum blandast hugur um mikilvægi þess að íslensk- ir læknar sæki sérfræðinám til menntastofnana erlendis. Sú hefð virðist hafa reynst íslendingum vel og mörgum sýnist ekki augljós ástæða til breytinga. Hins vegar er áhugavert að skoða hvort breyttar aðstæður hér heima og erlendis hafi áhrif á val unglækna og þar með hefðina. Nefna má að í sumum löndum hefur dregið talsvert úr framboði á námsstöðum fyrir útlendinga (1, 4). Sérgreinafélög, unglæknar og framhaldsmennt- unarráð læknadeildar hafa lýst yfir áhuga á skipu- lögðu sérfræðinámi á Islandi í tilteknum sérgrein- um. Benda má á að víða erlendis gegna læknar í sérfræðinámi veigamiklu hlutverki í starfsemi ENGLISH SUMMARY Ólafsdóttir IS, Sævarsdóttir, S, Pálsdóttir K, Petersen H, Baldursson Ó Postgraduate medical education in lceland; medical students’ and residents’ attitude Læknablaðið 2005; 91:511-4 Background: Various parties have expressed interest in establishing formal postgraduate medical education programs. The interest of residents and medical students to such programs in lceland has not been evaluated before. Methods: A questionnaire was sent to 146 interns and residents and 84 senior medical students. The following variables were analyzed: Gender, attitude towards postgraduate training in lceland, interest to participate in such training, preferred speciality and which factors might influence their decision. Results: 100 subjects completed the questionnaire (response rate 45%), 61 interns and residents and 39 medical students. Of those completing the questionnaire, most intems and residents (97%) and medical students (87%) agreed or agreed strongly with the concept of postgraduate training in lceland. The majority of responders wanted to undergo part of their postgraduate training in lceland if this option would be available. Those who preferred postgraduate training in lceland did so for the following reasons: The importance of “hands-on” training, availability of consultants, favorable social setting and organized teaching. Those who wanted to do all their postgraduate training abroad rated case variability, “hands-on” training, organized teaching and research opportunities as the main factors influencing their decision. Conclusions: Interns, residents and medical students are in favor of undergoing part of their postgraduate training in lceland. Those who chose to train abroad rated case variability and research opportunities higher than those in favor of training in lceland. Key words: medical education, postgraduate medical education, specialist training, residency, fellowship. Correspondence: Ólafur Baldursson, olafbald@landspitali.is háskólasjúkrahúsa. Þennan sterka hlekk hefur íslenskt heilbrigðiskerfi ekki getað treyst á þrátt fyrir að flestir unglæknar dvelji hér við störf í nokk- ur ár eftir útskrift úr læknadeild. Ótryggt er að er- lendar menntastofnanir viðurkenni þennan starfs- tíma sem hluta sérfræðináms.Til þess að svo mætti verða væri æskilegt að skipuleggja sérfræðinám á Læknablaðið 2005/91 511

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.