Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2005, Side 30

Læknablaðið - 15.06.2005, Side 30
FRÆÐIGREINAR / VIÐHORF ALDRAÐRA TIL DAUÐANS Tafla I. Tólf meginþrep í rannsóknarferti Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. 1. Velja samræðufélaga (val á úrtaki). 2. Fyrst er að vera kyrr (áður en byrjað er á samræðum). 3. Þátttaka í samræðum (gagnasöfnun). 4. Skerpt vitund varöandi orð (byrjandi gagnagreining). 5. Byrjandi greining á þemum (að setja orð á hugmyndir). 6. Átta sig á heildarmynd reynslu hvers einstaklings. 7. Staðfesting á heildarmynd hvers einstaklings með honum sjálfum. 8. Átta sig á heildarmynd fyrirbærisins sjálfs (meginniðurstöður rannsóknar). 9. Bera saman niðurstöður við rannsóknargögn. 10. Velja rannsókn heiti sem lýsir niðurstöðu hennar í örstuttu máli (felur í sér túlkun á niðurstöðum rannsóknar). 11. Sannreyna niðurstöður með einhverjum meðrannsakenda. 12. Skrá niðurstööur rannsóknar. Heimild: Halldórsdóttir S. Handbók í aðferðafreeði og heilbrigðisvísindum. 2003; 251. fötlun. Stundum er hægt að halda sjúklingum á lífi sem eiga sér litla sem enga von um bata, en í því- líku ástandi að margir kysu frekar að deyja en að lifa. Vegna þess að horfur sjúklings eru ekki alltaf ljósar og einstaklingar hafa mismunandi viðhorf til þess hvað sé líf sem sé þess virði að lifa því geta ákvarðanir unt hvenær beri að takmarka meðferð ekki verið eingöngu læknisfræðilegar heldur líka siðferðilegar og persónulegar. Hér á landi hafa Landlæknisembættið og Landspítali gefið út leið- beiningar um hvernig staðið skuli að takmörkun meðferðar við lífslok (1). Þær leiðbeiningar byggja á viðurkenningu á sjálfsákvörðunarrétti einstak- linga og upplýstu samþykki (2). Meðferð við lífs- lok er skilgreind sem sú meðferð sent ntöguleg er þegar horfur eru mjög slæmar. Meðferðin getur falist í því markmiði að lengja líf sjúklings eða að létta sjúklingi dauðastríðið og bæta lífsgæði (líkn- armeðferð). Mælt er með að rætt sé við sjúkling og að- standendur hans urn valkosti nteðferðar og ef sjúklingur hafnar meðferð ber að virða óskir hans. Þessi rannsókn er gerð til að auka þekkingu og dýpka skilning á viðhorfum aldraðra einstaklinga á Islandi til lífsins og dauðans, læknisfræðilegrar meðferðar við lífslok og hvernig þessar hugmyndir tengjast. Henni er meðal annars ætlað að svara spurningunum: „Hvaða hugmyndir hafa menn um líf og dauða, hvers konar gildi liggja til grundar- vallar mismunandi hugmyndum um líf sem fólk vill lifa?“ og „Hverjar eru óskir manna um með- ferð þegar horfur eru lélegar og á hverju grund- vallast ákvarðanir unt nteðferð við lífslok?" Aðferðir Fyrirbærafræði er rannsóknaraðferð sem reynsl hefur vel þegar ætlunin er að auka skilning á mannlegum fyrirbærum og var því valin sem aðferð fyrir rannsóknina. Notaðar voru gagna- söfnunaraðferðir sent eru byggðar á Vancouver- skólanunt í fyrirbærafræði (3, 4). Þar er leitast við að hlusta og skilja huglæga sýn einstaklingsins á viðfangsefnið. Viðhorf einstaklingsins er aðalat- riðið og rannsakandinn túlkar það í samhengi við viðfangsefnið. Aðferðin byggir á tólf meginþrep- um (sjá töflu I). Gagnasöfnun fór fram með samræðum. Spurn- ingavalið byggðist á rannsókn fyrsta höfundar á ósk- um aldraðra um endurlífgun (5). Sú rannsókn leiddi í ljós að hugmyndir manna um lífið og dauðann höfðu meira forspárgildi um óskir um endurlífgun en lýðfræðilegar og heilsufarslegar upplýsingar. í þessari rannsókn hér er leitast við að skilja belur hvaða hugmyndir það eru sem móta viðhorf til með- ferðar við lífslok og með hvaða hætti þær gera það. Vísindasiðanefnd Sjúkrahúss Reykjavíkur sam- þykkti rannsóknaráætlunina og gaf heimild fyrir henni. Enginn styrkur var veittur til rannsókn- arinnar né höfðu höfundar neinn fjárhagslegan ávinning af gerð hennar. Leitað var til einstaklinga, karla og kvenna, sem voru eldri en 70 ára og bjuggu heima. Við- mælendur þurftu að vera færir um að taka þátt í viðtali hvað varðar mál, minni og heyrn. Leitað var að viðmælendum meðal samstarfsmanna og vina. Þeir höfðu samband við ættingja sína og fengu leyfi fyrir rannsakendur til að nálgast þá. Útilokaðir voru þeir sem viðtalstaki hafði sinnt í starfi sínu sem læknir og þeir sem voru að deyja. Aflað var upplýsts samþykkis allra viðmælenda. Viðmælendur í rannsókninni voru átta, sex konur og tveir karlar. Aldur þeirra var frá 72 til 91. Einn var ógiftur og barnlaus, fjórir ekkjur eða ekklar og þrír voru í hjónabandi. Allir bjuggu sjálfstætt, aðeins einn bjó hjá ættingjum og þurfti aðstoð við daglega umhirðu. Lagðar voru tvær meginspurningar fyrir við- mælendur, fyrst um almennt viðhorf til lífs og dauða og síðan um viðhorf til meðferðar við lífs- lok. Viðtalið hófst með því að viðmælandi var spurður um hvaða hugmyndir hann hefði um dauðann. Síðan var hann spurður um óskir og hug- myndir hans um endurlífgun og/eða öndunarvél. Þeir þættir sem voru hafðir í huga í viðtalinu voru: lífsviðhorf og viðhorf til dauðans - leitað var eftir því hvort viðmælandinn væri sáltur við lífið og dauðann; heilsa og færni og hvað gæfi lífinu mest gildi; reynsla og lífslok nákominna; reynsla af heil- brigðiskerfinu, ákvarðanir um meðferð við lífslok og almennar hugmyndir um hvernig ætti að standa að þeim. Fyrsti höfundur annaðist gagnasöfnun og gagnagreiningu. Niðurstódur A hverju byggja menn svör sín þegar meðferð sem varðar líf og dauða er rædd? 518 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.