Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2005, Síða 54

Læknablaðið - 15.06.2005, Síða 54
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILSUVERND BARNA Miðlæg þjónusta heilsuvemdar barna: ný verkefni á nýrri öld Fyrri grein Geirs um Miðstöð heilsuverndar barna (MHB), fyrrum barnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, birtist í maítölublaði Læknablaðsins (1). Hér verður greint frá verkefnum á þremur sviðum MHB sem hafa það að markmiði að styrkja starf heilsugæslunnar fyrir börn og fjölskyldur með öflugri þverfaglegri og miðlægri 2. stigs þjónustu. Höfundur er barnalæknir og forstöðumaður á Miðstöð heilsuverndar barna. Svið ung- og smábarnaverndar Þetta svið á hvað dýpstar rætur í starfi Miðstöðvar heilsuverndar barna (MHB). Umfang hefðbund- innar ung- og smábarnaverndar hefur farið minnk- andi á sl. árum samhliða vaxandi áherslu á ný verk- efni á sviði sértækrar ung- og smábarnaverndar. Ung- og smábarnasvið MHB - Helstu markmið • Stuðla að ánægjulegri brjóstagjöf fyrir móður og barn. • Skipuleggja og samhæfa forvarnir og þjónustu um svefn- og svefnvandamál í ung- og smá- barnavernd. • Bæta geðheilsu með því að fyrirbyggja hegó- unarfrávik barna og draga úr vandamálum sem þegar eru til staðar. • Ung- og smábarnavernd sé í stakk búin til að veita þroskaheftum foreldrum þjónustu I sam- ræmi við þarfir hvers og eins. Brjóstagjöf Brjóstagjöf er mikilvæg móður og barni og rannsóknir sýna margvísleg jákvæð skamm- og langtímaáhrif á heilsu barna. Þó brjóstagjöf sé almenn hér á landi (2) má efla hana enn frekar (3) með samræmdri fræðslu og ráðgjöf til mæðra. Þróa þarf námskeið til að efla þekkingu þeirra sem vinna með mæður með barn á brjósti. Góð fagþekking á brjóstagjöf, eins og IBCLC-viður- kenndir (International Board Certified Lactation Consultant) brjóstaráðgjafar heilsugæslunnar hafa, skapar mörg tækifæri til framfara á þessu sviði. Svefn ungbarna Svefn ungbarna, eða svefnleysi og grátur, veldur áhyggjum hjá foreldrum og rannsóknir sýna að mikill grátur geti verið undanfari ofbeldis á fyrstu sex mánuðum lífsins (4). Vaxandi þjónusta fyrir börn með svefnvanda á Barnaspítala Hringsins endurspeglar þetta vandamál en er um leið ábend- ing til heilsugæslunnar um að gera betur. MHB vinnur að skipulagningu verkefnis um svefn ung- barna sem felst í að auka þekkingu og færni starfs- fólks að kljást við vandamál á þessu sviði. Agi og uppeldi Á síðustu misserum hefur MHB unnið að því að efla þekkingu foreldra og fagfólks á aga og uppeldi (5). Námskeið hafa verið hönnuð fyrir fagfólk til að vera leiðbeinendur á foreldranámskeiðum og æski- legt að slík námskeið verði sjálfsagður þáttur í ung- og smábamavernd, foreldrum að kostnaðarlausu. Proskaheftir foreldrar Þroskaheftir einstaklingar, með greind undir 70- 75, eignast börn í samræmi við rétt sinn sem frjálsir þegnar. Við þungun þarf að sinna þessum foreldr- um sérstaklega og veita þeim aðstoð við að sinna börnum sínum eftir fæðingu. MHB hefur á liðnum misserum veitt slíka þjónustu og stutt við þróun fræðsluefnis (6). Efnið er aðgengilegt á rafrænu formi á MHB fyrir allt starfsfólk heilsugæslunnar. Svið skólaheilsugæslu Skólaheilsugæsla í Reykjavík var frá opnun Heilsu- verndarstöðvarinnar árið 1957 stýrt þaðan. Með tilkomu heilsugæslustöðva færðist ábyrgðin yfir á heilsugæslustöð í hverfi skólans, ekki síst eftir að embætti skólayfirlæknis var lagt niður árið 1992. Skólasvið MHB er nýr miðlægur vettvangur innan heilsugæslunnar til að þróa og efla skólaheilsu- gæslu. Skólasvið MHB - Helstu markmið • Innflytjendur og börn þeirra njóti fræðslu, stuðnings og þjónustu heilsugæslunnar til jafns við aðra. • Börn með langvinnan heilsuvanda njóti skóla- heilsugæslu sem tekur tillit til sérstakra þarfa þeirra og fjölskyldna. Langveik börn Með betri meðferð erfiðra sjúkdóma og stefnu- mörkun skólayfirvalda um skóla án aðgreiningar, hefur börnum með erfiða og langvinna sjúkdóma fjölgað í skólum á síðastliðnum árum. Þverfaglegur verkefnishópur á MHB kannar nú með stuðningi ráðuneytis heilbrigðismála umfang þessa hóps barna hér á landi og þörf þeirra á þjónustu í skól- um. Innflytjendur Fjöldi barna með erlendan bakgrunn hefur vaxið mjög hér á landi á síðustu árum. Börnin og for- eldrar þeirra koma mörg hver frá samfélögum með breytileg viðrnið og reynslu hvað snertir heilsu og 542 Læknaulaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.