Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2005, Qupperneq 65

Læknablaðið - 15.06.2005, Qupperneq 65
UMRÆÐA & FRETTIR / IÐORÐ 177 Ásækinn Aggressive A lausum miða í sloppvasa fannst lýsingarorðið ag- gressive með íslensku þýðingunni ásækinn. Miðinn er ódagsettur og án tilvísunar í tilefni eða tillögu- smið. íðorðasafn lækna birtir nafnorðið aggression með þýðingunum ýgi, árásarhneigð, árásargirni, árásarhvöt og samsetninguna aggressive persona- lity, ýg skapgerð. Undirritaður hefur aldrei getað sætt sig við nafnorðið ýgi. Lýsingarorðið ýgur má finna í íslenskri orðabók Eddu með skýringunum: œgilegur, hrœðilegur, mannýgur, byrstur. Með orðinu ásækinn er kornin leið til að forðast það. Undirrituðum finnst það ágætt og hljóma vel í ýmsum læknisfræðilegum samsetningum: ásækinn persónuleiki, ásækið illkynja æxli, ásækin sýking og ásækin bólga. svo nokkur dæmi séu nefnd. Kransæðaheilkenni Guðmundur Þorgeirsson, prófessor, kom að máli við undirritaðan og var með heitið acute coronary syndrome í fórum sínum. Um er að ræða bráð veikindi sem byggjast á truflun í blóðflæði krans- æða og hafa í för með sér blóðþurrð (ischemia) eða (smá)drep í hjartavöðva. Lausleg uppfletting á veraldarvefnum leiddi í ljós að þetta er nýlegt heiti sem virðist notað á tvo vegu, ósértækt og sértækt. Við ósértæka notkun er vísað til sjúkdómsfyrirbæra frá hjartaöng til hjartadreps. Við sértæka notkun er aðeins vísað til tveggja fyrirbæra, annars vegar þess sem nefna má hvikula hjartaöng (unstable angina) og hins vegar smádreps í hjartavöðva með mjög vægum eða engum hjartalínuritsbreytingum. Heitinu er meðal annars ætlað að gefa til kynna að beita verði tilteknum aðferðum við greiningu og meðferð. Undirritaður komsl að þeirri niðurstöðu að bein þýðing væri besta lausnin, brátt kransæða- heilkenni, sama hvort notkunin væri sértæk eða ósértæk. Microcirculation Gísli Sigurðsson, prófessor, hitti undirritaðan á förnum vegi fyrir allnokkru og vakti þá athygli á því að heitið microcirculation er ekki að finna í Iðorðasafni lækna. Samkvæmt læknisfræðiorða- bók Stedmans frá 1995 vísar heitið til blóðrásar í slagæðlingum (arterioles), háræðum (capillaries) og bláæðlingum (venules). Orðabók Dorlands frá árinu 2000 nefnir ekki tegundir æða í lýsingu sinni heldur vísar almennt í flæði blóðs í smáæðum (microvasculature) líkamans. Microvasculature er þar lýst sem þeim hluta œðakerfisins sem saman- stendur af fíngerðari œðum, stundum lýst sem þeim sem hafa innra þvermál 100 míkron eða minna. Einnig það heiti þarf að komast inn í íðorðasafnið, svo og vasculature, æðar, æðakerfi. Orðið circula- tion er þýtt sem hringrás, enda dregið af circulus, sem strangt tekið merkir lítill hringur. Við Gísli komum okkur saman um að smáæða- blóðrás væri ágætt íslenskt heiti á microcirculation. Raunar má spyrja hvort áherslubreytingin í skil- greiningu æðanna frá Stedman 1995 til Dorlands 2000 gefi til kynna að þörf sé á tveimur slíkum heitum, smáæðablóðrás og öræðablóðrás. Síðara heitið vísar þá til allra minnstu æðanna. Gaman væri að heyra skoðanir þeirra sem fást við vanda- mál, sem tengjast æðum af þessari stærðargráðu, í daglegu starfi. Microvasculature má til samræmis nefna smá- æðar, smáæðakerfi eða öræðar, öræðakerfi ef þörf er á slíku. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Gangverk Annar svæfingarlæknir, Ólafur Z. Ólafsson, setti fram heitið gangverk í fyrirlestri sem hann hélt síð- astliðið haust. Þar var hann að íslenska enska orðið mechanism. Þetta er lipurt og lýsandi heiti sem gott er að eiga til viðbótar þeim tveimur sent birt eru í Iðorðasafni lækna, vél, vélgengi. Samkvæmt lækn- isfræðiorðabók Dorlands er mechanism dregið af gríska orðinu mechane og merkir: 7. vél eða gang- verk sem líkist vél. 2. samsetning hluta eðaferla sem þjóna sameiginlegri starfsemi. 3. kenning um að líftð byggist á eðlis- og efnafrceðilegum lögmálum í ólífrœnum heimi. Gríska orðið mechane er sagt hafa táknað vél, tæki, uppfinningu eða útbúnað. 1 framhaldi af þessu væri rétt að taka þýðinguna á lýsingarorðinu mechanical til endurskoðunar. Iðorðasafnið birtir einungis þýðinguna vélrænn, en það er alls ekki fullnægjandi fyrir margvíslega notkun þessa orðs í læknisfræði, samanber fræði- heitið mechanical ileus. Nöldur Undirrituðum var nýlega bent á orðskrípin afsamþykkja og ósamþykkja, sem komin eru í notkun í tengslum við ákveðið tölvuforrit á Landspítala. Tiltekin aðgerð felst í því að samþykkja frágengnar færslur. Engu að síður er til önnur aðgerð sem gerir fært að afturkalla samþykkið, lagfæra færsl- urnar og samþykkja að nýju. Það er þessi afturköllun á samþykki sem fyrr- greind orðskrípi vísa til. Getur ekki einhver komið með betri tillögu? Samsetningin heilsubreytandi atferli rak á fjörurnar í vetur. Vera má að hún eigi rétt á sér í einhverjum formlegum flokkunarkerfum, þar sem helstu undirflokkar eru væntanlega heilsubætandi atferli og heilsuspillandi atferli, en vonandi þurfa læknar ekki oft að taka sér þetta í munn í hlýleg- um samræðum við sjúklinga sína. Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2005/91 553
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.