Læknablaðið - 15.06.2005, Side 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 59
Man minna og dýrt orðið
Ergilegt
Sumir læknar geta verið hálf þreytandi. Maður
getur þurft að bíða vikum saman eftir því að fá
tíma hjá þeim á stofunni og þá leyfa þeir sér að
segja: „Þú hefðir átt að koma fyrr til mín.“
Ný pilla
Hafið þið heyrt um nýju getnaðarvarnarpilluna
fyrir karlmenn? Hún er tekin daginn eftir og breyt-
ir blóðflokknum hjá manni.
Man minna
Eldri herra virtist áhyggjufullur þegar hann kom til
læknisins í árlega skoðun.
„Er eitthvað sem veldur þér sérstökum áhyggj-
um?“ spurði læknirinn af nærgætni.
„Ef ég á að segja allan sannleikan þá verð ég að
svara því játandi,“ sagði maðurinn.
„Eg er orðinn nokkuð gleyminn. í raun er það
vægt orðað hjá mér því ég man stundum ekki hvar
ég lagði bílnum mínum eða hvert ég er að fara. Ef
ég kemst þangað sem ég ætla að fara þá man ég
stundum ekki hvað ég ætlaði að gera þar. Eins og
þú getur rétt ímyndað þér, læknir, þá er mér brugð-
ið. Ég þarf svo sannarlega á hjálp þinni að halda.
Hvað get ég gert?“
Læknirinn varð þögull eitt andartak en sagði
svo: „Ég held að það sé réttast að þú greiðir viðtal-
ið fyrirfram."
Gömul og hress
Einstaklega ern og skemmtileg 89 ára kona var að
útskrifast af sjúkrahúsinu eftir að hafa legið inni
vegna lungnabólgu. Læknirinn sem kvaddi hana
sagði hughreystandi: „Mér sýnist enn vera nokkuð
góð hleðsla á batteríunum hjá þér, Sigrún mín.“
„Æ, finnst þér það?“ svaraði sú gamla að bragði,
„ en það mætti að ósekju vera meira bensín eftir í
tanknum.“
í tívolí
Þeir segja að Viagra sé eins og rússíbani. Maður
bíður fyrst í klukkutíma og svo er gamanið búið á
þremur mínútum.
Dýrt orðið
Það var um 1970 að kona nokkur sem var nýorðin
ekkja og bjó úti á landi kom á ritstjórnarskrifstofu
dagblaðs á landsbyggðinni og vildi birta dánartil-
kynningu um bónda sinn í blaðinu.
„Orðið kostar 10 krónur,“ sagði ritstjórnarfull-
trúinn.
„Tíu krónur orðið,“ hváði konan, „ja, það er
ekki gefins.“ Hún hugsaði sig um og sagði svo: „Þá
skulum við hafa það „Jón Jónsson látinn“.“
„Það verða að vera í það minnsta sjö orð í til-
kynningunni," sagði ritstjórnarfulltrúinn.
Konunni var ekki skemmt. „Jæja þá, láttu
standa „Jón Jónsson látinn. 1960 jeppi til sölu“.“
Önnur frá því í gamla daga
Það var um 1960 þegar fyrst var verið að rannsaka
hve áreiðanlegar getnaðarvarnartöflur væru að
ung kona varð ófrísk þó svo að hún hefði notað pill-
una reglulega. Þetta olli miklum heilabrotum þar
til einum af læknunum sem að rannsókninni stóðu
datt í hug að spyrja hvort konan hefði gleypt pill-
una. „Gleypt hana. hvers vegna ætti ég að gleypa
hana?“ spurði konan.
Úr sjúkraskrám
- Konan er miður sín og grætur stanslaust. Hún
virðist einnig vera döpur.
- Sjúklingurinn á tvo táninga en að öðru leyti er
félagssagan ómarkverð.
- Hún hefur hvorki verið með sjálfta né köldu-
köst, en eiginmaðurinn staðhæfir að hún hafi
verið mjög heit í rúminu í gærkvöldi.
- Skar sig á loki af niðursuðudós sem hún var að
setja í ruslið. Niðursuðudósin hafði innihaldið
portúgalskar sardínur sem að sögn sjúklings
smökkuðust vel.
- Starfar sem lögmaður. Hefur reykt en hætti
fimm ára.
- Var að taka til í geymslunni sem maður skyldi
aldrei gera og rak vinstra handarbak í öngul
sem kræktist í hann og fékk sár á vinstra hand-
arbakið.
- Að öllum líkindum hefur sjúklingur útskrifast
heim til sín 25.07.03.
- Hafði hægðir klukkan 7 og vaknaði klukkan
8:30.
- Tyllti fæti á klósett í gær. Skrikaði fótur og
vinstri fótur hennar fór ofan í klósettið og hún
datt svo aftur fyrir sig og sparkaði upp undir
brúnina á klósettinu. Hefur verið með verki í
vinstra fæti síðan.
- Þessi kona hefur haft kolbikasvartar malbiks-
hægðir síðan í gær.
- Björk er kona sem er annars frísk.
- Rúna var að dansa við bónda sinn á þorrablóti.
Dönsuðu þau af ástríðu svo hann mjaðmar-
brotnaði, en hún hlaut ákomu á höfði og hné.
Bjarni Jónasson
bjarni.jonasson@hg. is
Bjarni er heimilislæknir
í Garðabæ.
Læknablaðið 2005/91 555