Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 5
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS U M R Æ 0 A 0 G F R É T T I R 932 933 934 935 940 941 944 947 954 952 F A S T Af sjónarhóli stjórnar LÍ: Af hornsteinum og sjálfbirgingslegum embættismönnum Elínborg Bárðcirdóttir Heimilislækningar í nágrannalöndunum. Ánægjan mest þar sem læknar starfa sjálfstætt Þröstur Haraldsson Lífeyrissjóður lækna. Sameining samþykkt í póstkosningu Þröstur Haraldsson Skipulag borga ræður miklu um heilbrigði íbúanna Rætt við Dag B. Eggertsson lækni og formann skipulagsráðs Reykjavíkurborgar um samband læknisfræði og skipulagsmála Þröstur Haraldsson Bréf til blaðsins. Má ætla að menn trúi hverju sem er? Matthías Kjeld Rökræða eða stflæfíngar? Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, Bjarni Þjóðleifsson Um fyrstu íslensku konurnar í læknastétt III. Sigríður Geirsdóttir Kristjánsson/Sigga Christiansson Houston, MD Winnipeg 1925. Fyrsti íslenski læknirinn í Kanada og fimmta íslenska kona í læknastétt Margrét Georgsdóttir Málefnaleg umræða um lyfjamál óskast Norskur ráðgjafi segir fjölmiðla ala á þekkingarleysi og ótta almennings Þröstur Haraldsson Um skipan og störf ad hoc ritstjórnar Codex Ethicus Samþykktur á aðalfundi Læknafélags íslands 1. október 2005 I R P I S T L A R 950 Hugðarefni. Líf með hestum Þorkell Jóhannesson 959 Lausar stöður/þing 963 íðorð 182: Blóðrekshjal Jóhann Heiðar Jóhannsson 965 Broshorn 64: Af illa áttuðu fólki og leiðarlokum Bjarni Jónasson 966 Læknadagar 2006 974 Okkar á milli 975 Sérlyfjatextar 983 Ráðstefnur og fundir/styrkir Til eru siðir og venjur í samfélaginu sem við upplifum og tökum þátt í án þess nokkurn tímann að leiða hugann að þeim. Þetta á sem dæmi við um framkomu, samskipti, hegðun og við- skipti hvers konar manna í milli. Birt- ist þá Ásmundur Ásmundsson (f. 1971) með myndlist sína - settlega eða ágenga og jafnvel hvort tveggja í senn - og maður stendur frammi fyrir því að endurmeta það sem áður var fyrirfram gefið. Hann skoðar hversdagsleg kerfi í kringum okkur, ekki síst í kringum listir og menningu, gengst inn á þau, bland- ar saman og skilar frá sér í gjörningum, teikningum, myndböndum og síðast en ekki síst skúlptúr. Samblöndunin á sér iðulega stað á milli þess sem sam- kvæmt viðtekinni venju er kallað há- menning og lágmenning, list og afþrey- ing, kurteisi og plebbaskapur og þar fram eftir götunum. Ásmundur tekur ekki afstöðu með einu eða öðru og þröngvar ekki upp á mann einstreng- ingslegri skoðun, en þegar vel tekst til getur hann vakið mann til umhugsunar um til dæmis úreltar kreddur og sýnt fram á sanna sköpunargleði. Þetta á helst við þegar hann sjálfur bregður fyrir sig hinni opinberu útgáfu af sjálf- um sér, til að mynda þegar hann heldur tækifærisræður. Hann notar tungutak og framkomu sem væri til fyrirmyndar undir flestum kringumstæðum en með ofurlitlum frávikum, yfirkeyrðri skrúð- mælgi, uppgerðarhógværð eða með því að sprengja tímamörk og skjálfa í kvíðakasti beinir hann sjónum við- staddra að einhverju sem ella hefði liðið umhugsunarlaust hjá. Það væri einföldun að kalla þetta kaldhæðni eða útúrsnúning, þvert á móti einkennast gjörningar Ásmundar fyrst og fremst af gjafmildi og velvilja. Verkið, Into the Firmament (2005), er fyrirtaks dæmi um örlæti i list Ásmundar og á vel við í aðdraganda jóla. Hann gengur langt í að gleðja okkur áhorfendur, hleður upp pýra- mída af tunnum sem síðan eru fylltar af steinsteypu. Hugmyndin er sótt í kampavínspýramída sem boðið er upp á í meiriháttar veislum þar sem hellt er stöðugt i efsta glasið og vökvinn rennur eins og í gosbrunni úr einu glasi í annað. Ásmundur yfirfærir þessa sælumynd í stærðar útiskúlptúr og í varanlegt efni steinsteypunnar. Verkið er þannig myndliking þess að yfir- stemmd augnabliks ofurgleði er fryst um lengri tíma - sem nú er reyndar á enda þvi verkið hefur verið fjarlægt. Eins og fyrr þegar myndlist hans er annars vegar má láta hugann reika og lesa frekari hugleiðingar úr verkinu, jafnvel snúa dæminu við og skoða það í Ijósi kaldhæðnislegrar gagnrýni. Þetta er dæmigert fyrir Ásmund sem heldur áhorfendum stöðugt við efnið, hann fetar markvisst einstigi milli svartasta húmors og einlægrar gleði. Markús Þór Andrésson Læknablaðið 2005/91 901
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.