Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 62
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CODEX ETHICUS og aðra einkahagi viðkomandi einstaklinga sem eru viðkvæmar persónulegar upplýsingar. Um meðferð þeirra, afhendingu og flutning fer eftir reglum í 3. m.gr. 15. greinar í Codex þessum, lækna- lögum, lögum um réttindi sjúklinga og lögum um persónuvernd og verndun persónuupplýsinga. Skriflegar heilsufarsupplýsingar sem fara á milli læknis og sjúklings eru hluti af sjúkraskrá sjúklings. 15. gr. Læknir skal vera óvilhallur í vottorðagjöf. í vott- orði komi fram hvert er tilefni þess og tilgangur og í því hlýðir að staðfesta það eitt, er máli skiptir hverju sinni og aðeins það, sem læknirinn hefur sjálfur gengið úr skugga um. Læknir skal ekki skrá sjúkdómsgreiningu á vottorð, nema þau fari einungis um hendur lækna, annarra heilbrigðisstarfsmanna og þeirra annarra, sem bundnir eru þagnarskyldu lögum samkvæmt, nema að ósk sjúklings eða forráðamanns hans. Læknir má ekki láta af hendi vottorð eða skýrslur um sjúkling án samþykkis hans, forráða- manns eða nánustu vandamanna sé sjúklingur ekki fær um að gefa samþykki, nema lög eða dóms- úrskurður bjóði svo. III. Um auglýsingar lækna, vefsíður og fjölmiðla 16. gr. Lækni hlýðir að birta nýjungar í fræðigrein sinni með mikilli gát, hann skal gæta fyllstu varkárni í ummælum um fagleg mál og hann skal íhuga ábyrgð sína í því efni, hvort sem hann ræðir við einstakling eða á opinberum vettvangi. 17. gr. Læknir skal tryggja, þegar fjölmiðlar leita til hans, að ekki sé annað eftir honum haft en það, sem hann telur sér samboðið að efni og formi. 18. gr. Læknir má auglýsa starfsemi sína að því marki sem landslög leyfa. Við kynningu á læknisþjónustu skal veita ná- kvæmar og áreiðanlegar upplýsingar og hafa öryggi þeirra að leiðarljósi sem leita eftir þjónust- unni. Kynni læknir sjálfan sig og starfsemi sína á vefsíðum eða með öðrum hætti skal hann birta siðareglur lækna með aðgengilegum hætti. 19. gr. Læknir má ekki gefa fyrirheit um undralækningar né heldur gefa í skyn, að honum séu kunn lyf eða lækningaaðferðir, sem ekki séu á vitorði lækna al- mennt. Læknir skal og forðast ummæli, sem geti skapað óþarfan eða óréttlætanlegan ótta við sjúk- dóma eða órökstudda vantrú á læknisstarfi. 20. gr. Lækni er ósæmandi að vekja á sér ótilhlýðilega at- hygli eða gefa í skyn yfirburði sína yfir aðra lækna með því að hampa eða láta hampa menntun sinni, þekkingu, hæfni, afrekum, aðferðum eða vinsæld- um, hvort heldur er í auglýsingum, á vefsíðum, í viðtölum, blaðagreinum, ritgerðum, fyrirlestrum, útvarpserindum, sjónvarpi eða á annan hátt. Læknir má ekki veita rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsingum eða með öðrum hætti, og afla sér viðskipta með öðrum ótilhlýði- legum aðferðum. 21. gr. Læknir má ekki leyfa notkun á lærdómstitli sínum í auglýsingum um lyf, sjúkravörur eða neinn þann varning, sem talinn er lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma eða sjúkdómseinkenni. Læknir skal gæta þess í ræðu og riti að haga umfjöllun sinni um lyf og sjúkravörur með þeim hætti að hún verði ekki álitin fela í sér auglýsingu. Ummæli læknis um lyf eða sjúkravörur í faglegu samhengi, í greinum eða fyrirlestrum, teljast ekki auglýsingar, enda sé þar ekki ágóðavon fyrir lækn- inn. IV. Ákvæði um samskipti lækna innbyrðis og eftirlit Læknafélags íslands 22. gr. Læknar skulu hafa góða samvinnu sín á milli og sýna hver öðrum fulla virðingu. Skulu læknar sýna þá tillitssemi sem samrýman- leg er hagsmunum sjúklinga. Læknir skal aðstoða lækni sem á við vanda að stríða og leiðbeina honum. Lækni er skylt að auðsýna öðrum læknum drengskap og háttvísi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem gerðum, í ræðu og riti og hann skal forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf annarra lækna. 23. gr. Lækni hlýðir ekki að eiga hlut að áskorunum frá almenningi varðandi veitingu læknisstarfs eða til að hafa áhrif á ákvörðun læknis um að setjast að á tilteknum stað, hvort sem um er að ræða hann sjálfan eða aðra. 958 Læknablaðið 2005/91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.