Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 67

Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 182 Blóðrekshjal Embolisation Eyþór H. Björnsson, lungnalæknir, hringdi og bað um íslenska þýðingu á fræðiheitinu embol- isation. Pað kemur ekki fyrir sem sérstök fletta í íðorðasafni lækna, en nokkur skyld heiti er þar þó að finna. Eyþór var að leita að almennu heiti á aðgerð sem lokar lungnaæð með því að í henni er kornið fyrir sérhönnuðum tappa. Eftir stutta um- ræðu kom okkur saman um að nota mætti heitið æða(r)stíflun. Þetta verkefni varð síðan tilefni þess að farið var yfir ýmis heiti af sama stofni. Skoðaðar voru fleiri heimildir en hægt er að tilgreina í stutt- um pistli. Embolism Enska heitið er stytting á latneska fræðiheitinu embolismus, sem aftur er komið úr grísku. Bolos (L. bolus) getur verið hnaus, köggull, kökkur, moli og bole er kast eða varp. Þessi nafnorð eru sögð dregin af grísku sögninni ballein. að kasta eða varpa. Forskeytið em- (í sumum samsetningum en-) merkir inn eða inní. Síðasti hluti orðsins er við- skeytið -ism, sem er oft notað til að mynda nafnorð sem gefa til kynna ástand eða verknað. Bein orð- hlutaþýðing á grísk-latneska heitinu embolismus gæti því verið innkast, innskot eða innvarp. Nefna má að til er fræðiheitið embololalia, sem notað er um það fyrirbæri að menn skjóti marklausum eða óskiljanlegum orðum inn í tal sitt. Þar gæti heitið innskotstal átt vel við. Blóðrek, blóðreki í læknisfræði er heitið embolism notað um feril eða atburðarás sem endar með stíflumyndun í æð (einni eða fleirum) af völdum massa sem borist hefur með blóðrás. Oftast kemur hann úr blóð- storkumassa, blóðsega, en flest efni og agnir, sem borist geta sem massi í blóðrásinni, geta tekið þátt í slíku ferli. Nefna má bæði líkamsefni, svo sem beinmerg, bone marrow embolism, fituvef, fat embolism, legvatn, amniotic fluid embolism, og æxlisfrumur, tumor embolism, og utanaðkomandi efni, svo sem bakteríumassa, bacterial embolism, loftbólur, air embolism, og manngerðar agnir úr gleri, málmi eða plasti. Samkvæmt íslenskri orðabók Eddu hefur nafn- orðið rek nokkrar merkingar. Meðal þeirra eru: 1 það að reka, hefjast fyrir vindi og straumi; 2 það sem rekur, flýtur með straumi. Merking nafnorðs- ins reki er tilgreind á svipaðan hátt, meðal annars: 1 hlutir sem rekið hefltr á land, einkum trjáviður. Við þýðingu sjúkdómaflokkunarkerfisins ICD- 10 tók Orðanefnd læknafélaganna þá ákvörðun að taka þessi tvö orð inn í Iðorðasafn lækna til að aðgreina fyrirbærin embolism og embolus. Ofangreind stíflumyndun, embolism, verði þann- ig táknuð með íslenska heitinu blóðrek, en það sem berst með blóðrásinni, embolus, verði táknað með heitinu blóðreki. í réttu samhengi má stytta samsettu heitin og nefna fyrrgreind fyrirbæri bein- mergsreka, fitureka, æxlisreka og loftreka. Blóðrekanám Nefndin lagði ekki til atlögu við önnur heiti en þau sem koma fyrir í ICD-10. Þannig varð til dæmis em- bolectomy útundan í umfjölluninni á þessum tíma. Það heiti er notað um aðgerð, oftast skurðaðgerð, sem felur í sér brottnám blóðreka, embolus, úr æð. íslenska heitið ætti nú að breytast úr blóðreks- nám í blóðrekanám. Þeir sem ekki fella sig við að nota nafnorðið nám um -ectomy geta notað heitið -taka, samanber botnlangataka og sýnistaka. Blóðrekameðferð í erlendum læknisfræðiorðabókum má að auki finna heitin embolotherapy og therapcutic embol- isation. Ekki virðist teljandi munur á hugtökunum sem að baki þeim liggja. Meðferðin beinist að því að loka fyrir blóðrás með því að sprauta inn í æð örsmáum vefjaögnum eða aðskotahlutum úr plastefni, málmi eða gleri, sem berast síðan með blóðstraumi á réttan stað og stífla þar minni æðar. Henni hefur verið beitt til að stöðva blæðingar, loka æðagúlum og til að koma af stað blóðþurrð og vefjadrepi í æxlum. Þetta finnst undirrituðum rétt að nefna blóðrekameðferð. Sé stífluefnið ekki látið reka með blóðrás, heldur sett sem tappi beint á þann stað sem stífla á, er nær að aðferðin fái hið almenna heiti æða(r)stíflun eða stíflunarmeðferð. Gaman væri að fá fréttir af öðrum hugmyndum eða tillögum. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali. is Jóhann Heiðar er læknir á Landspftala Hringbraut. Læknablaðið 2005/91 963
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.