Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BRÉF TIL BLAÐSINS OG SVAR Bréf til blaðsins Má ætla að menn trúi hverju sem er? Matthías Kjeld Frá Læknablaðinu Blaðið telur að nægjanlegt rými hafi verið gefið undir umræðu þessa og sýnt að hún gefi ekki meira af sér í þetta sinn. Höfundur er efnameina- fræðingur á Landspítala Hringbraut. Rökræða? í grein í Læknablaðinu sem ber heitið „Er Don Kíkóti uppvakinn á íslandi?“ (1) er ekki mörgu að fagna. Þar er þó að finna staðfestingu á flestu af því sem undirritaður hélt fram í áður birtri grein (2) í sama blaði, að það kynni að vera lítill hópur lækna hér á landi sem er hróðugur yfir afrekum og stöðu vísinda í heilbrigðiskerfinu. Flest annað í greininni er heldur dapurlegt, þar með talið að tveir fram- takssamir læknar skuli skipa sér í flokk manna sem af einhverjum ástæðum neitar að sjá augljósa galla kerfisins og andfræðilegar tilhneigingar. Svo virð- ist sem hópur þessi hafi, af einhverjum ástæðum, fundið ásættanlega framtíð þægðar í kerfinu og líti á gagnrýna og umbótasinnaða umræðu sem uppreisn gegn sjálfri fullkomnuninni. I greininni (1) gætir því fúkyrða og mönnum eru gerðar upp tilfinningar. Svokallaður „impact factor" birtist í ýmsum myndum. Þá er MK meðal annars legið á hálsi fyrir að hafa dirfst að gagnrýna nokkrar stofnanir heilbrigðiskerfisins, til dæmis lækna- deild, stjórnkerfi Landspítala (LSH) og jafnvel heilbrigðisráðuneytið. Hvílík ósvífni! Greinin getur því naumast kallast innlegg í rökræðu (de- bate). Hér á eftir verður samt ekki haldið uppi persónulegu tilfinningaþjarki eða hártogunum um þessi sérkennilegu viðhorf heldur þau gagnrýnd með staðreyndum og dæmum sem máli skipta. í hnotskurn Höfuðatriði málsins eru þessi: „Klínískar“ greinar sem íslendingar eru viðriðnir sem höfundar (6) eða á annan hátt hafa fengið hátt meðaltal tilvitnana hjá „Web of Science“ (ISI gagnagrunnurinn). Um 60% af þessum tilvitnanafjölda er kominn frá þrem greinum (3, 4, 5), þar af ca. 30% frá einni þessara greina sem er samnorræn könnun (3), öll kostuð af Merck Research Laboratories sem sá um fram- kvæmdina. Af 376 einstaklingum sem nefndir eru samstarfsmenn, „collaborators“, í greininni eiga íslendingar sex skráða einstaklinga (ekki skráðir höfundar í Pub Med gagnagrunninum, NCBI, National Center for Biotechnology Information). Grein þessi er mikilvæg læknavísindunum, enda ein af þeim fyrstu sem fjallar um afdrif kransæða- sjúklinga meðhöndlaða með blóðfitulækkandi statínum (simvastatin (Zocor)). Greinin er hins vegar um leið eins konar gæðakönnun lyfjafyrir- tækisins (Merck Sharp & Dohme) og hún er af- brigðileg sökum mikils tilvitnanafjölda, en greinar með fleiri en þúsund tilvitnanir eru sjaldgæfar. Tilvitnanafjöldi þessara þriggja greina kom ekki fram í upphaflegu greininni (6), en kom fram (7) eftir aðfinnslur (8). Ef tveimur (0,4% af „íslensk- um" greinafjölda í efniviði upphafsgreinar (6)) af mest tilvitnuðu greinununi (3, 5), sem í dag hafa náð fleiri en 1000 tilvitnunum hvor, er sleppt dettur meðaltal tilvitnanafjölda „íslenskra", „klínískra" grcina vel niður fyrir meðaltal slíkra greina mcðal þjóða hcims. Stóryrtar yfirlýsingar eru því varas- amar og nauðsynlegt að setja niðurstöður fram með réttum aðferðum og greinargóðri lýsingu á gögnum. Dæmi úr grein í Læknablaðinu til skýringar Til þess að bregða nokkurri birtu á áhrifamátt af- brigðilegra mælinga (outliers?) í rannsóknum er hér fyrir neðan sýnd umskrifuð mynd úr grein sem birtist í Læknablaðinu á síðasta ári. Hnit punkt- anna (niðurstöðurnar) voru mæld á frummynd- inni og eru þeir sýndir á endurgerðri mynd. Ásar grafsins eru þeir sömu og í frummyndinni en texta og umgjörð hefur verið breytt. Tvær mælingar á ákveðnu efni frá hverjum einstaklingi voru gerðar og er mismunur þeirra skoðaður (y-ás) á móti sjúk- dómsmati (x-ás). Áhrif einnar mælingar, punktur efst og lengst til hægri, á línuna eru mikil á sama hátt og áhrif einnar greinar með margar tilvitnanir eru á meðaltal tilvitnanna. Eins og sjá má er mælingin lengst til hægri langt utan við hóp flestra niðurstaðanna. Þegar fylgni- stuðull punktanna er reiknaður með þennan af- brigðilega punkt inni, kemur fram marktæk fylgni (græn slitin lína), en jafna aðhvarfslínu (regression línu) og R2-gildi eru gefin í mynd ofan línunnar (p < 0,001). Ef afbrigðilega gildinu er aftur á móti sleppt er aðhvarfslínan (blá slitin lína) með nei- kvæða hallatölu (-1,77). Jafna og R2-gildi eru í bláum stöfum í mynd. Sambandið milli punktana er nú ekki marktækt, p = 0,33. Hér er með öðrum orðum komin allt önnur útkoma. Loks er rauða línan sú aðhvarfslína sem gefin var upp í greininni. Jafnan sem fylgdi, y = 0,78x + 118,8 passar nokk- urn veginn við rauðu línuna, en sú lína svarar ekki til punktanna sem koma fram í myndinni, saman- ber grænu línuna. Mynd þessi var valin til þess að sýna hvernig afbrigðilegar mælingar leiða til rangrar niðurstöðu 940 Læknablaðið 2005/91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.