Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 25
FRÆÐIGREINAR / NÆRINGARFRÆÐI
að nota PAL 1,3 til að ákvarða heildarorkuþörf.
íhlutunin fól í sér 30% orkuskerðingu af heild-
arorkuþörf hvers einstaklings og stóð hún í átta
vikur. Samsvaraði þessi orkuskerðing um það bil
600 hitaeiningum á dag sem fræðilega ætti að skila
sér í tæplega 600 gramma þyngdartapi á viku, eða
um 4,5 kg þyngdartapi á átta vikna tímabili.
Matseðlar og skiptilistar
Til að mæta mismunandi daglegri orkuþörf ein-
staklinga eftir 30% orkuskerðingu. útbjó næring-
arráðgjafi matseðla sem gáfu frá 1200 hitaeining-
um upp í 2000 hitaeiningar. Við upphaf íhlutunar
fengu þátttakendur einstaklingsbundna ráðgjöf
frá næringarfræðingi þar sem matseðlarnir voru
kynntir. Einstaklingar sem fengu matseðla sem
gáfu minna en 1500 hitaeiningar var ráðlagt að
taka inn fjölvítamín meðan á rannsókninni stóð.
Aðrir matseðlar, 1600-2000 hitaeiningar, gáfu
ráðlagðan dagsskammt af vítamínum og stein-
efnum. Skipting orkuefnanna var þannig að um
50% orkunnar komu frá kolvetnum, 20% frá
próteinum og 30% frá fitu. Mynd 1 sýnir dæmi
um 1400 hitaeininga matseðil. Til að tryggja fjöl-
breytni í fæðuvali fengu þátttakendur skiptilista
(sjá dæmi á mynd 2) þar sem búið var að reikna
hitaeiningafjölda í ákveðnum skömmtum af al-
gengum fæðutegundum. Pátttakendur gátu því
valið sér fæðutegundir innan hvers fæðuflokks að
vild með því að hagræða skammtastærðum eftir
orkuþéttni vörunnar. Matseðla auk skiptilista
verður hægt að nálgast á heimasíðu næringar-
stofu Landspítala www.landspitali.is/naering Auk
matseðla og skiptilista var þátttakendum afhent
skjal með tillögum að kvöldverði og næringarút-
reiknuðum uppskriftum til að auðvelda skipulag
mataræðisins. Þátttakendur höfðu til afnota vog
(Philips, Electronic Kitchenscale HR 2385) meðan
á rannsókninni stóð til að ákvarða skammtastærð-
ir. Næringarfræðingur hringdi í þátttakendur þegar
vika var liðin af íhlutun til að heyra hvernig gengi
að fylgja matseðlunum og gaf ráðleggingar ef með
þurfti. Einnig var haft samband við þátttakendur í
annarri viku, þeir höfðu tækifæri til að fá viðtal við
næringarfræðing í fjórðu viku, auk þess sem hringt
var í þá í sjöttu viku.
Mœlingar á líkamsþyngd
Mælingar á hæð, líkamsþyngd, auk ummáls mittis
og mjaðma voru framkvæmdar á móttöku rann-
sóknarinnar á Landspítala í upphafi og við lok
íhlutunar. Voru þær allar framkvæmdar af sama
einstaklingi með hefðbundnum aðferðum.
Úrvinnsla
Skráning gagna fór fram í Excel, en SPSS forritið
SEA
MATSEÐILL-YFIRLIT YFIR DAGINN
Morgunvcrður og morgunbiti:
1 sk.'morgunkom
1 sk. léttmjólk eða annað skv. skiptilista
1 sk. brauð með 6 g Létt og laggott með ólífuolíu
1 sk. af áleggi I
Grænmeti að minnsta kosti 50 g
sk. ávöxtur
1 tafla Ein á dag án A- og D-vítamína eða 1 tafla
Hádegisvcrður:
I sk. léttjógúrt eða annað skv. skiptilista
1 Vi sk. brauð með L&L
Vi sk. af áleggi I
1 sk. af áleggi II
Grænmeti að minnsta kosti 150 g
Síðdegisbiti:
1 sk. brauð með L&L
1 sk. af áleggi I
1 sk. ávöxtur
Kvöldverður:
80 g kjöt eða 150 g ftskur
150 g kartöflur eða annað skv. skiptilista
60 g heit sósa eða annað skv. skiptilista
Grænmeti að minnsta kosti 150 g
1 'h tsk Olíuedikssósa
eða aðrir réttir samkvæmt blaði um kvöldverði.
Kvöldbiti:
1 sk. ávöxtur
'/í sk. brauð með L&L
Vi sk. álegg I
Mynd 1. Dœmi um 1400 hitaeininga matseðil sem notaður var í rannsókninni.
Matseðlarnir gáfu á bilinu 1200 til 2000 hitaeiningar og réðust skammtastærðir afþví.
Drykkir:
♦vatn að vild
‘kolsýrt vatn að vild
*svart og sykurlaust
kaffi og te að vild
L&L grænt)
/ ítamínus
Eða
Morgunvcrður:
2 sk. morgunkorn
1 sk. léttmjólk
Grænmeti a.m.k. 50 g
Vi sk. ávöxtur
1 Vítamíntafla
Hádegisverður:
1 sk. léttjógúrt
IV sk. brauð m/L&L
lVi sk. álegg I
1 sk. álegg II
Grænmeti a.m.k. 150 g
6 g L&L
\
Sklptilisti
Sósur meö kvöldverði
Tcfzund g Skammtur
Edikssósa (salatdrcssing), 65% 6 1 Vt tsk
Olía, ólífuolía 100% 4 1 tsk
Viðbit, L&L grxnt,40%, 1 tsk=5 g 9 <2 tsk
Pestó 7 1 Vi tsk
SÓSUr (vatn/léttmjólk/jógúrt) 1-5% 60 >Vi dl
Sýrðurrjómi 10%/Sósur 6-14% 30 2 msk
Kaldar sósur 15-24% 16 1 msk
Kaldar sósur, 25-39% 11 > 2 tsk
Kaldar sósur, 40-59% 7 \Vt tsk
Kaldar sósur, 60-80% 5 1 tsk
Majóncs, smjör 80% 5 1 tsk
Smjör, 80% 5 1 tsk
Hnetusmjör, 1 tsk = 5 g 6 > 1 tsk
Tegund Brauð g Skammtur
Rúgbrauð 40 1 sneið
Heilhveitibrauð 35 1 sncið
Hrökkbrauð 25 2 stk
Finn Crisp 25 4 stk
Bruður 25 2 stk
Kringla 23 1/3 stk
Beyglur/pílur 35 !4 stk / Vi stk
Tekex/vatnskex 18 2'Á stk
Vatnskex, litlar 18 5 stk
Morgunkorn
Cheerios 22 IW dl
Komflex 22 H4 dl
AU bran 30 1 dl
Special K 22 \Vi dl
Fitness 22 > 1 dl
Weetabix 24 1 1/3 kaka
Hunangscheerios 22 \Ya dl
Múslí 22 < 'á dl
Granóla/Morgungull/Axa
múslí 17 2 msk
Haframjöl 24 4 msk
Hafragrautur 200 2dl
Mynd 2. Sýnisltorn af skiptilista. Skammtar eru gefnir bœði í grömmum og öðrum mœli-
stœrðum (til dœmis sneiðar, desilítrar og skeiðar). Hver skammtur gefur um það bil sama
magn hitaeininga.
Læknablaðið 2006/92 109