Læknablaðið - 15.04.2006, Side 39
ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA
Veggspjöld
Svæfinga- og gjörgæslulækningar
V 01 The EMS education in Iceland and its challenges
V 02 Out-of-hospital cardiac arrests in Akureyri (Iceland) during 2000-2004. Outcome according to
the „Utstein style“
V 03 Áhrif vasopressíns á blóðflæði í þörmum
V 04 Áhrif minnkaðs mesenterial blóðflæðis á smáæðablóðflæði og efnaskipti í þörmum
V 05 Sjúkraflutningar og þjónusta þess í dreifbýli
Skurðlækningasvið
V 06 Fagrýni (AUDIT) fæðinga á fæðingadeild FSA. Keisaraskurðir 1995-2005
V 08 Pelvic endometriosis occuring in a defined population over twenty years
V 09 Aðskilinn lungnahluti (pulmonary sequestration) getur tengst efri hluta meltingarvegar
- Tvö einstök sjúkratilfelli
Velkomin til Akureyrar
Enn einu sinni er Ársþing skurð-, svæfinga- og gjör-
gæslulækna haldið sameiginlega og hefur það verið
í nokkuð ár. Það er okkar sönn ánægja að bjóða
ykkur velkomin til þinghalds hér í háskólanunt á
Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem sameiginlegt
þing er haldið utan höfuðborgarsvæðisins. Tilefnið
er að nú eru liðin 150 ár frá því fyrsta skurðaðgerðin
var gerð í svæfingu hér á landi. Hún fór fram hér
á Akureyri. Mörgum er kunnugt að það var Jón
Finsen læknir sem fjarlægði sull úr 15 ára stúlku í
klóroform svæfingu. Líklegt er að þetta hafi átt sér
stað í Aðalstræti 14 eða Gudmanns minde.
Með því að halda þingið hér á Akureyri viljum
við sýna þeim hetjum sóma sem tóku þátt í þessum
merkilega atburði fyrir 150 árum. Skurðlæknirinn
hét Jón Constant Ólafsson f. 10. nóv. 1826 í
Reykjavík, d. 13. okt. 1885 í Nýköping á Falstri,
Danmörku. Jón kom til Akureyrar 13. júní 1856 og
tók við embætti sínu sem héraðslæknir í austurhér-
aði Norðuramtsins. Hann var sonarsonur Hannesar
biskups í Skálholti og sonur Ólafs Hannessonar lög-
fræðings og Maríu Nicoline. Jón var á Akureyri frá
1856 til 1866 en þá fór hann af landi brott.
Við erum enn að leita að nafni stúlkunna sem
tók á þennan eftirminnilega hátt þátt í að skapa
Islandssöguna. Það er áskorun til sagnfræðinga og
lækna að gera sameiginlegt átak til að afla frekari
vitneskju um þennan atburð og einstaklingana sem
áttu hlut að máli. Á legsteini William T.G. Mortons
sem framkvæmdi fyrstu svæfinguna standa þessi orð:
„Inventor and Revealer of Inhalation Anesthesia
Before whom, in all time, surgery was agony
By whom, pain in surgery was averted and annulled
Since whom, science has control over pain.“
En hvað með Jón Finsen?
Og ekki síst, hvað með stúlkuna sem lagðist
undir hnífinn?
Girish Hirlekar
Forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæsludeildar FSA
Stjórn Svæfinga- og gjörgæslulækna-
félags íslands
Felix Valsson formaður
Sveinn Geir Einarsson varaformaður
Sigurbergur Kárason gjaldkeri
María Sigurðardóttir ritari
Stjórn Skurðlæknafélag íslands
Helgi H. Sigurðsson formaður
Hjörtur Gíslason ritari
Fritz H. Berndsen gjaldkeri
Framkvæmdastjóri þingsins er
Girish Hirlekar
í vísindanefnd þingsins sitja:
Björn Gunnarsson
Hildur Tómasdóttir
Haraldur Hauksson
Valur Þór Marteinsson
Norpharma er eini styrktaraðili þingsins.
Læknablaðið 2006/92 291