Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2006, Side 60

Læknablaðið - 15.04.2006, Side 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ / Framhaldsnám á Islandi Bjarni Þór Eyvindsson bjarniey@intemet.is Höfundur er fulltrúi Félags ungra lækna í stjórn LÍ. í pistlunum Af sjónarlióli stjórnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Á undanförnum árum hefur orðið mikil breyt- ing á stöðu og hlutverki ungra lækna á Islandi. Uppbygging framhaldsnáms í ýmsum sérfræði- greinum hefur gert ungum læknum mögulegt að hefja og jafnvel klára sérfræðinám sitt hérlendis. Það er löng hefð fyrir því að íslenskir læknar hafi farið erlendis í sérnám og þá jafnvel fengið ein- hvern hluta af vinnu sinni á Islandi metið sem framhaldsnám. Fyrir nokkrum árum var hins vegar farið af stað með að koma þessu í fastari skorður og setja upp námsstöður með skilgreindu hlut- verki að erlendri fyrirmynd. Heilbrigðisráðuneytið hefur komið að þessu með því til dæmis að borga námsstöður í heimilislækningum. Landspítali og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hafa sett á lagg- irnar allt að þriggja ára námsstöður í nokkrum greinum. Fyrir unga lækna gefur þetta möguleika á því að afla sér meiri reynslu hérlendis áður en haldið er utan til að klára sérnám. Þetta styttir líka þann tíma sem eyða þarf fjarri heimahögum sem getur verið afar góður kostur fyrir lækna með fjölskyld- ur. Jafnframt færir þetta Landspítala reyndari starfskrafta þar sem ungir læknar eru lengur við störf áður en þeir fara erlendis til náms. í einstaka greinum eins og geðlækningum er jafnvel hægt að klára sérnámið alveg innan spítalans. Hins vegar fylgir þessari þróun ekki bara auknir möguleikar heldur einnig margar kvaðir. Það er ljóst að sérfræðimenntun verður sífellt afmarkaðri þar sem stöðugt vaxandi vitneskja um sjúkdóma og orsakaþætti gerir það erfitt að ætla sér að viðhalda sérfræðiþekkingu í stórum greinum. Því verður krafan til sérfræðimenntunar sífellt meiri. Því miður hefur uppbygging sérfræðimenntunar á Islandi alls ekki verið nægileg góð. Það er Ijóst að þegar málin voru skoðuð í upphafi þá var það ekki markmiðið að minnka kröfurnar um kunnáttu og getu að loknu sérfræðinámi. Hugmyndin var ekki að fara að búa til „ódýra“ sérfræðinga sem hefðu þá líklega minni reynslu og þekkingu. Þegar farið var af stað höfðu menn háleit markmið og vissu að á Islandi væri jarðvegur til að byggja upp öfluga sérfræðimenntun sem skapaði samkeppnishæfa einstaklinga í samanburði við aðrar þjóðir. Umhverfið í dag einkennist hins vegar af mikl- um fjárhagsvanda þar sem ekki eru til staðar pen- ingar sem sérstaklega eru ætlaðir til kennslu ungra lækna í framhaldsnámi hérlendis. Þetta kemur fram í því að námslæknar eru fyrst og fremst vinnukraftur á sínum vinnustöðum og vinnan verður alltaf að ganga fyrir fræðslunni. Krónískur skortur á læknum á ákveðnum sviðum gerir það að völdum að framhaldsnám er meira orð sem hægt er að nota á tyllidögum en að það sé virkt í daglegu starfi. Tækifæri til rannsókna og annarra verkefna sem fylgja ættu aukinni reynslu verða að litlu vegna manneklu og með því tapast stór hluti af tilgangi sérfræðimenntunar á íslandi. Á sumum sviðum er haldið uppi námsstöðu án þess að það liggi fyrir námslýsing og hvað ætlast sé til að læknir kunni við lok sinnar námsstöðu. I samanburði við sérfræðinám erlendis fær sérfræðinám á íslandi algjöra falleinkunn. Það er kannski ekki skrítið þegar horft er til þess að ríkisvaldið veitir engu fjármagni til háskólastarf- semi innan heilbrigðisstofnana og ekkert fé er sér- staklega eyrnamerkt framhaldsnámi í einstökum sérfræðigreinum ef heimilislækningar eru undan- teknar. Sú mismunun ein og sér er auðvitað mjög undarleg og stenst varla jafnræðisreglur. Sem formaður ungra lækna fagna ég auðvitað þeirri þróun að verið sé að vinna að uppbygg- ingu sérfræðinrenntunar á Islandi en betur má ef duga skal. Við getum ekki sætt okkur við að minni kröfur séu gerðar til slíks náms hér rniðað við önnur lönd. Ég skora því á stjórnvöld og yfirmenn heilbrigðismála að grípa til aðgerða þannig að við getum komið sérfræðimenntun lækna á íslandi á þann stall sem við viljum hafa hana. 312 Læknablaðið 2006/92
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.