Læknablaðið - 15.04.2006, Side 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / STJÓRNARSAMÞYKKT / FORMANNAFUNDUR
Reglur um meðferð eínstaklingsmála hjá
Læknafélagi íslands
Á fundi stjórnar Læknafélags íslands 14. mars síð-
astliðinn voru samþykktar eftirfarandi reglur um
meðferð einstaklingsmála hjá LI.
1. Stjórnarmenn aðildarfélaga og einstakir félagar
aðildarfélaga eða LÍ geta óskað eftir aðstoð
starfsmanna LÍ í launa- og réttindamálum fé-
lagsmanna.
2. Stjórnir aðildarfélaga eða einstakir félagar aðild-
arfélaga eða LÍ geta óskað eftir áliti framkvæmda-
stjóra á einstaklingsmálum, enda fylgi fyrirspurn-
inni fullnægjandi upplýsingar og eftir atvikum
gögn um staðreyndir máls og ágreiningsefni.
3. Stjórn LÍ tekur ákvörðun um hvort LÍ reki
dómsmál fyrir hönd félagsmanna. Þó er fram-
kvæmdastjóra heimilt að höfðu samráði við
formann LÍ að ákveða að LÍ annist málsvörn
fyrir aðildarfélög í vinnumarkaðsmálum fyrir
Félagsdómi, s.s. um gildi verkfallsboðunar eða
umfang verkfalls m.t.t. undanþágulista. Sama
gildir um kærumál til Hæstaréttar ef ekki vinnst
tími til þess að leggja málið fyrir stjórn.
4. Við mat á því hvort LÍ tekur að sér að reka mál
fyrir félagsmann skal hafa eftirfarandi reglur til
viðmiðunar:
a. Ef mál snýst um túlkun kjarasamningsákvæðis
þannig að vinnuveitandi beiti ákvæði á annan
hátt en stjórn LÍ telur að samið hafi verið um
er meginreglan sú að LÍ tekur að sér rekstur
dómsmáls, að tæmdum öðrum úrræðum, t.d. í
samstarfsnefnd.
b. Ef mál er fordæmisgefandi fyrir fleiri lækna
en þann sem mál varðar beint er meginregl-
an að LÍ tekur að sér rekstur dómsmáls, að
tæmdum öðrum úrræðum.
c. Ef stjórn LI telur að vinnuveitandi sé að
beita lögmætum heimildum er meginreglan
að LÍ tekur ekki að sér rekstur dómsmáls um
viðkomandi ákvörðun.
d. Ef mál varðar áminningu eða brottrekstur
félagsmanns er meginreglan sú að LI tekur
ekki að sér málarekstur í slíkum tilvikum
nema b) liður og í undantekningartilvikum
c) liður með gagnályktun eigi við. Það athug-
ist að málarekstur vegna mála skv. þessurn
lið snýst oftast um ágreining um lögmæti
ákvörðunar vinnuveitanda. Meginreglan er
sú að það er ekki stjórnar LÍ að leggja mat á
lögmætið í slíkum tilvikum.
5. Ef stjórn LÍ ákveður að LÍ sjái um rekstur
dómsmáls greiðir félagið einungis þann kostnað
sem fellur til af meðferð máls eftir að stjórn LÍ
hefur ákveðið að LÍ reki málið, áður tilkominn
kostnaður er á ábyrgð aðildarfélags eða ein-
staklings.
6. Ef stjórn LÍ ákveður að LÍ sjái um rekstur
dómsmáls ber félagsmanni að fara að ráðlegg-
ingum sem veittar eru á vegum félagsins. Fari
félagsmaður ekki að slíkum ráðleggingum er
heimilt, með samþykki stjórnar, að afturkalla
frekari fjárhagsstuðning.
7. Eftir að stjórn LÍ hefur ákveðið að LÍ reki mál
er það í höndum framkvæmdastjóra og for-
manns, í samvinnu við viðkomandi félagsmann,
að ákveða hvort lögmaður félagsins eða annar
lögmaður reki málið.
Formannafundur
Læknafélags íslands
Stjóm Læknafélags íslands boðar til formannafundar skv. 11. grein laga
félagsins föstudaginn 28. apríl 2006 i húsnæði læknasamtakanna að Hlíða-
smára 8, Kópavogi.
Dagskrá
10:00-12:30 Skýrsla formanns LÍ um afgreiðslu ályktana aðalfundar
2005, störf stjórnar og stöðu helstu mála
Umræðuefni:
a. skipulag læknasamtakanna
b. þagnarskylda lækna
Einnig verður rætt um Orlofssjóð, Lífeyrissjóð lækna,
Læknablaðið og fleira
12:30-13:30 Matarhlé
13:30-15:00 Skýrslur helstu starfsnefnda
Umræður
15:00-15:30 Kaffihlé
15:30-17:00 Áframhald umræðna
Skýrslurformanna aðildarfélaga, samninganefnda og helstu
starfsnefnda eftir atvikum
Önnur mál
Fundarlok verða á heimili formanns að Hæðarseli 28, Reykjavík.
Læknablaðið 2006/92 313