Læknablaðið - 15.04.2006, Side 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ LÆKNADÖGUM
care“, því „primary care“ væri ekki bara sér-
greinin „heilsugæslulækningar (family practice)“.
í Bandaríkjunum væri „primary care“ sinnt af
lyflæknum (ekki undirgreinalæknum), almennum
barnalæknum, kvænlæknum og heilsugæslulækn-
um. Nauðsynlegt væri að umræða færi fram hér-
lendis um landamæri frumþjónustunnar; hvað væri
almennar lækningar og hvað væri sérfræðilegar
lækningar. Læknar ættu að hafa forystuna í um-
ræðunni, ekki ráðuneyti.
Friðbjörn Sigurðsson læknir lýsti sig andvígan
því að stilla frumþjónustu og sérfræðiþjónustu upp
sem andstæðum pólum. Þvert á móti væri brýnt að
auka samvinnu heimilislækna og sérfræðilækna.
Jafnframt væri mikilvægt að sjúklingar hefðu völ
á fjölbreyttri þjónustu því skoða ætti þjónustuna
út frá þörfum þeirra en ekki lækna. Friðbjörn
ræddi einnig um mikilvægi þess að vel yrði staðið
að uppbyggingu ferliþjónustu á Landspítala og að
sérfræðilæknisþjónustan á höfuðborgarsvæðinu
ætti að byggjast upp á heildrænan hátt.
IViaría Heimisdóttir læknir ítrekaði mikilvægi
upplýsingaflæðis milli lækna og að brýnt væri að
samfelld rafræn sjúkraskrá yrði að veruleika sem
fyrst. Nokkur skriður hefur komist á vinnu við
gerð rafrænnar sjúkraskrár undanfarin misseri og
þakkaði María fyrir stuðninginn við þetta verkefni
sem fram kom í umræðunni. Auk þess kom fram í
umræðunum að mikilvægt væri að læknar notuðu
síma meira við samskipti sín í þágu sjúklinga.
Að lokum var lagt til að framhald verði á þess-
ari umræðu enda mikilvægt að læknar leysi þessi
mál sjálfir. Sú hugmynd kom fram að settur yrði
á laggirnar starfshópur með þátttöku Félags ís-
lenskra heimilislækna, Félags íslenskra lyflækna,
Læknafélags Islands og landlæknis til að vinna að
þessu máli og setja fram tillögur til úrbóta.
Bylting í búsetu og þjónustu-
málum aldraðra?
í framhaldi af velmegun stríðsáranna fluttu bænda-
fjölskyldur í stríðum straumi til bæja og borga. Þar
eð lítið pláss fannst fyrir aldrað fólk í þriggja her-
bergja borgaríbúðum urðu til öldrunarstofnanir er
tóku við þeim öldruðu. Þegar hafnir voru hreppa-
flutningar á öldruðum af landsbyggðinni til stóru
stofnana á Reykjavíkursvæðinu var farið að byggja
öldrunarstofnanir utan Reykjavíkur. Einnig end-
urbyggðu menn gömlu sjúkrahúsin og bættu við
nýjum á landsbyggðinni. Þar eð skurðlækningar
lögðust af á mörgum minni sjúkrahúsum á lands-
byggðinni breyttust þau í öldrunarstofnanir með
ónotaða skurðstofu í endanum. Fyrir 30-35 árum
fannst ekki orðið heimaþjónusta í íslensku máli.
Upp úr 1970 var hafin barátta fyrir aukinni
heimaþjónustu og endurhæfingu á stofnunum.
Fyrstu tillögur komu frá landlæknisembættinu og
Þór Halldórssyni öldrunarlækni. Heimaþjónusta
hefur smám saman eflst nokkuð í Keflavík, Reykja-
vík og Akureyri þó að hægt gangi. Við erum veru-
legir eftirbátar nágrannaþjóðanna. Tvær töflur er
hér verða sýndar varpa ljósi á stöðu okkar í bú-
setumálum aldraðra miðað við hin Norðurlöndin.
Við bjóðum öldruðum mun oftar stofnanavistun
og fjölbýli en nágrannaþjóðirnar. Þjónustuíbúðir
í íbúðahverfum eða tengdar stofnanir eru mun al-
gengari kostur í nágrannalöndunum en á Islandi.
Landsamband eldri borgara lagði fram þann 21.
desember 2005 ákveðnar kröfur til ráðherranefnd-
ar um gerbyltingu í þessum málum. Framvegis
verði höfuðáherslan lögð á fjölbreyttari búsetu-
skilyrði fyrir aldraða, aðallega byggingu smáíbúða
og tvöföldun á framlagi til heimaþjónustu á næstu
tveimur árum. Elliheimili eiga að hverfa.
Ráðherranefndin samþykkti að fulltrúar sam-
bandsins og nefndin starfi saman að tillögugerð í
málinu sem skal lokið á næstu mánuðum.
Nokkur bjartsýni ríkir um árangur, sérstaklega
vegna þess að kosningar nálgast nú óðum!
Tafla 1. Stofnanavistun og búsetuskilyröi meöal 65 ára og eldri á Noröurlöndum 2002.
Á stofnun - % Einbýli - %
ísland 9,1 60
Danmörk 3,4 (íbúðir) 90 - oftast smáíbúðir
Noregur 5,9 91
Svíþjóð 8,1 (aðallega íbúðir) 90 - smáíbúöir
Finnland 4,0 -
Áldreomsorgsforskning í Norden 2005, Tema Nord 2005
Tafla II. Stofnana- og þjónustuíbúðabúseta 65 ára og eldri á Noröurlöndum.
Stofnanir - % Þjónustuíbúöir-%
ísland (Reykjavik) 70 30
Danmörk 32 68
Noregur 57 43
Finnland 58 42
Áldreomsorgsforskning í Norden 2005, Tema Nord 2005
Ólafur Ólafsson
Höfundur er fyrrverandi land-
læknir.
Læknablaðið 2006/92 321