Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2006, Page 79

Læknablaðið - 15.04.2006, Page 79
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAGA INNRENNSLISLYFJA Mynd 5. Erling Edwald (f. 1921) lyfjafrœðingur og for- sljóri Lyfjaverslunar ríkisins 1968-1986, í afgreiðsluveri (officinum) Lyfjabúðarinnar Iðunnar eins og það er varðveitt í Lyfjafrœðisafninu í Nesi (1.12.2005). Um framleiðslu innrennslislyfja skráði Erling 1982: „Aför- yggisástœðum, þó að ekki sé tekið tillit til annars, verður þessi framleiðsla að vera til í landinu". (Ljósm.: Ótlar Kjartansson.) Nýborg, önnur en tiltölulega einfaldur tilbúningur á lyfjum í fljótandi formi til inntöku eða til nota útvortis. Kristinn Stefánsson (1903-1967) læknir hafði numið lyfjafræði við lyfjafræðistofnanir í Kaup- mannahöfn, Köln, Munchen og London og verið kennari í lyfjafræði í læknadeild frá 1937. Hann var jafnframt skipaður lyfsölustjóri ríkisins vorið 1939 og þar nteð yfirmaður Lyfjaverslunar ríkisins innan ramrna Afengisverslunarinnar. Hann var skipaður prófessor haustið 1957 og frá sama tíma forstjóri Lyfjaverslunar ríkisins með fullri ábyrgð á rekstri hennar. Að honum látnum tók Erling Edwald við uns hann lét af starfi 1986. Snorri Hallgrímsson (1912-1973) hafði orðið prófessor og yfirlæknir á skurðlækningadeild Landspítalans haustið 1951 og var það til æviloka. Þeir Kristinn Stefánsson og Snorri Hallgrímsson voru ekki einungis kollegar og prófessorar við sömu deild heldur einnig sveitungar og veiði- félagar (mynd 4). Tengsl þeirra voru þannig mikil. Allar líkur eru til þess að Snorri hafi ámálgað við Kristin fljótlega eftir að hann tók við starfi (fyrsti lærði svæfingalæknirinn hóf og störf um sama leyti svo sem áður segir) að koma þyrfti á fót frani- leiðslu innrennslislyfja í landinu. Um þetta virðast engin bréf vera til heldur allt vera á munnlegum nótum. Erling segir: „Hann [Snorri Hallgrímsson] óskaði eftir því fyrir hönd Landspítalans, að Lyfjaverslunin tæki þetta að sér og var þá reiknað með því að umsetningin þyrfti að vera 50 1 á dag. Og deildin var þá byggð upp nteð það fyrir augum að geta framleitt fimmtíu 1 á dag. Miðað var við, að blöndunarílátin, sem upplausnirnar voru bland- aðar í, væru 60 1 brúsar eða 60 1 tankar". Þessi framleiðsla komst svo í gagnið í leiguhúsnæði í Borgartúni 6 haustið 1954. Smitgátardeildin sem innrétta þurfti vegna framleiðslunnar var að norrænni fyrirmynd. Jón O. Edwald (f. 1925) lyfjafræðingur, bróðir Erlings, var valinn forstöðumaður deildarinnar. Hann dvaldist um tíma við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn og Suðursjúkrahúsið í Stokkhólmi að kynna sér nýjustu tækni og aðferðir við framleiðslu inn- rennslislyfja. Að sjö árum liðnum (1961) þurfti að stækka deildina og gera hana afkastameiri til þess að anna vaxandi eftirspurn og afköstin uxu jafnt og þétt til ársins 1970. Því má svo bæta hér við að árið 1950 hafði Lyfjaverslun ríkisins hafið framleiðslu á töflum og stungulyfjum í sérútbúnum herbergjum í íbúð- arhúsi við Miklubraut í Reykjavík. Árið 1954 flutt- ist þessi framleiðsla svo í Borgartún 6. Bruninn 1970 og enduruppbygging I byrjun april 1970 kom upp eldur í Borgartúni 6 og varð af mikið tjón. Brann þá smitgátardeildin að hluta og lá framleiðsla á innrennslislyfjum alveg niðri í fimm mánuði. Að lokinni bráðabirgðavið- gerð tókst að konta framleiðslunni í gang á ný. Skipti þar meginmáli að keypt hafði verið nýtt og stórvirkara eimingartæki en áður hafði verið notað. Tækið hafði ekki verið tekið í notkun og slapp þannig við brunann. Það var nú tekið í gagn- ið og kom að góðum notum. Meðan framleiðsla á innrennslislyfjum lá niðri var reynt að sjá spítölunum fyrir innrennslislyfjum með innflutningi. Til þess að spara innflutnings- kostnað var leitast við að flytja inn innrennslislyf í einnota plastumbúðum. Nokkru síðar skall á Dagsbrúnarverkfall (27. maí-19. júní) og urðu skip þá ekki afferntd nema að fenginni undanþágu. Eitt sinn fékkst slík undanþága til þess að afferma innrennslislyf sem Lyfjaverslunin átti í skipslest. Vildi þá svo til að vökvarnir voru neðst í lestinni og var þá horfið frá því að leita þeirra. Erling segir: „Og þá þurfti að fara að hamast við að fá þetta allt í flugi og þá kom það, að fraktin var dýrari en varan“. Enn var það til að auka álagið að Hekla gaus um mánuði síðar (gosið hófst 5. ntaí) og eftirspurn eftir kalki í lausn til þess að hamla flúoreitrun í búpeningi óx vegna þess yfir öll venjuleg mörk. Það var með þessa reynslu að baki sem Erling kvað allmörgum árum síðar upp úr um: „Af öryggisástæðum, þó að ekki sé tekið Læknablaðið 2006/92 331
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.