Læknablaðið - 15.06.2006, Side 10
FRÆÐIGREINAR / HELICOBACTER
þjóöum en þeim sem þróaðri eru (1-3). Það er
margt skylt með smitleiðum þessara sýkla en
ennfremur eru nokkur atriði ólík og smitleiðir H.
pylori eru að verulegu leyti óþekktar. Allir sýkl-
arnir geta borist með fæðu en sennilega einnig
með smitun frá munni til munns eða úr saur til
munns. Algengi smits getur gefið vísbendingu um
hreinlætisástand þjóða og/eða hópa. Smit með H.
pylori og bogfrymli er vanalega landlægt og veldur
ævilangri og oft einkennalausri smitun, en lifr-
arbólguveira A gengur mest í faröldrum og orsak-
ar skammvinnan en stundum alvarlegan sjúkdóm.
Smit með H. pylori og bogfrymli getur einnig haft
alvarlegar afleiðingar. Bogfrymlasótt er sjúkdóm-
ur sem orsakast af sníkjudýri, bogfrymli, sem sest
að inni í frumum þeirra sem fyrir smitinu verða.
Bogfrymlasmit er ein algengasta sníkjudýrasmitun
í heiminum og það er áætlað að um þriðjungur
allra jarðarbúa séu smitaðir (2). Hjá einstaklingum
með heilbrigt ónæmiskerfi gefur bogfrymlasmit
engin einkenni í 80-90% tilfella (4), en dulið eða
einkennalaust smit getur varað ævilangt. Hjá ein-
staklingum með skerta starfsemi ónæmiskerfisins
og sérstaklega hjá þeim sem eru með AIDS getur
bogfrymlasmit orsakað veikindi. Dýr af kattaætt
eru einu hýslarnir þar sem bogfrymill getur klár-
að æxlunarhringinn (2). Þegar kettir hafa neytt
bogfrymils í einhverju formi smitar sníkjudýrið
slímhúð meltingarfæranna og framleiðir egg sem
berast út með hægðunum. Ef aðrar dýrategundir,
þar með talið maðurinn, neyta bogfrymilseggja
fer sníkjudýrið í gegnum slímhúð meltingarfæra
og dreifir sér út um allan líkamann. Þegar sníkill-
inn sest að í frumum líkamans ummyndast hann í
örlitla blöðru sem liggur í dvala út líftíma hýsilsins.
Neysla á hráu eða illa hituðu kjöti og meðhöndl-
un matar með óhreinum höndum eru ábyrg fyrir
meirihluta smits af völdum bogfrymla í Frakklandi
(5). Hjá vanþróuðum þjóðum er sýkingin hins
vegar oftast vegna smits frá jarðvegi eða umhverfi
því kjöt á þessum svæðum er sjaldan borðað hrátt
eða illa matreitt.
H. pylori smit í slímhúð magans er til staðar
hjá um það bil helmingi jarðarbúa (1) og lang-
oftast (=85%) veldur smitið ævilangri vægri,
einkennalausri magabólgu. Það er hins vegar
orsakasamband á milli smits og ætisára (6), maga-
krabbameins (7) og eitlakrabbameins í slímhúð
(8). Þverskurðarrannsóknir í þróuðum löndum
hafa sýnt vaxandi algengi með aldri sem hefur
verið skýrt sem kynslóðaáhrif vegna minnkandi
smittíðni í yngri aldurshópum barna með auknu
hreinlæti og batnandi lífskjörum (9-11).
Algengi mótefna gegn lifrarbólguveiru A er
um 100% hjá vanþróuðum þjóðum (12) en meðal
þróaðra þjóða er það mjög breytilegt milli land-
svæða og aldurshópa og fer vaxandi með aldri.
í Evrópu er algengið lægst í Skandinavíu <10%
en í Grikklandi var það um 100% (13). Smit með
lifrarbólguveiru A hefur fyrst og fremst verið talið
saur/munn smit og algengi lifrarbólguveiru A
smitunar er mun næmari vísbending um hreinlætis
ástand hópa og þjóða heldur en smif með bog-
frymli eða H. pylori.
Nýjar hliðar á hugsanlegum áhrifum fæðu-
tengdra eða langvarandi meltingarfærasýkinga hafa
komið í Ijós á seinustu árum. Hreinlætiskenningin
fjallar um það að breytingar í nánasta umhverfi
manna vegna vaxandi hreinlætis og færri sýkinga
hjá börnum hafi áhrif á ónæmiskerfið á þann hátt
að Th 0 eitilfrumur þróist ekki yfir í Thl frumur
heldur yfir í Th2 frumur sem stuðla að bráðaof-
næmi (10, 11, 14). Því hefur verið haldið fram að
sýkingar sem berast með andrúmslofti eða önd-
unarfærasýkingar hafi minni áhrif á ónæmiskerfið
heldur en fæðutengdar sýkingar (11). Bogfrymill
(15), H. pylori (16) bakterían og lifrarbólguveira
A (17) breyta ónæmissvari varanlega ef smit verð-
ur á barnsaldri, og þessar sýkingar hafa verið hluti
af smitflórunni gegnum þróunarskeið mannsins.
Minnkað algengi þessara sýkinga hjá þróuðum
þjóðum hefur hugsanlega lagt sitt af mörkum
varðandi þann ofnæmifaraldur sem nú herjar á
þessar þjóðir (18, 19).
Tilgátur hafa komið fram um að langvarandi
lágstillt bólga sem er mæld meðal annars með
„high sensitive C-reactive protein (hs-CRP)“, geti
verið meðvirkandi í meingerð margra sjúkdóma
(20), til dæmis hjarta- og æðasjúkdóma (21).
Bólgan getur stafað af margvíslegum þekktum og
óþekktum orsökum, meðal annars sýkingum. Fyrri
rannsóknir okkar á núverandi efnivið hafa sýnt að
hs-CRP hefur fylgni við jákvæð bogfrymilsmótefni
(22). Ennfremur hafa rannsóknir á þessum efni-
við sýnt fylgni hs-CRP við astma sem ekki tengist
ofnæmi (23) og við skerta lungnastarfsemi (24).
Rannsókn okkar er byggð á gögnum sem
safnað var í Evrópurannsókninni lungu og heilsa
(ECRHS I & II) (25, 26) um bráðaofnæmi,
lungnaeinkenni og lungnastarfsemi. Einnig var
safnað sermissýnum. Rannsóknin vinnur eingöngu
með gögn frá íslandi. ECRHS gagnagrunnurinn
gerir mögulegt að prófa tilgátur um samspil smits,
bráðaofnæmis og lungnastarfsemi. Megintilgangur
rannsóknarinnar var eftirfarandi:
1. Að finna með sermismælingum núverandi
algengi smits með bogfrymli, H. pylori og lifr-
arbólguveiru A á íslandi og jafnframt að kanna
hverjir eru helstu áhættuþættir fyrir smiti.
2. Að kanna hugsanleg tengsl þessara sýkinga við
lungnastarfsemi, bráðaofnæmi og ofnæmistengd
lungnaeinkenni.
438 Læknablaðið 2006/92