Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2006, Síða 36

Læknablaðið - 15.06.2006, Síða 36
KLÍNISKAR LEIÐBEININGAR / HJARTA- OG ÆÐASJÚKDÓMAR 65 Karlar Kólesteról mmol/L §15% og yfir 10%-14% 5%-9% 3%-4% 2% ■ 1% < 1% Líkur á að fá kransœða- sjúkdóm nœstu 10 árin miðað við slagbilsþrýsting, heildarkólesteról og reyk- ingar. • Allir sjúklingar sem eru með þekktan æðakölk- unarsjúkdóm, það er þegar eftirfarandi er til staðar: 1. Þekktur kransæðasjúkdómur 2.Saga um heilablóðfall eða skammvinn blóðþurrðarköst í heila (transient ischemic attack, TIA) 3. Útæðasjúkdómur (blóðþurrðarhelti) • Sjúklingar með sykursýki • Sjúklingar með arfgenga kólesterólhækkun (familial hypercholesterolaemia, FH) Þessir einstaklingar eru í verulegri hættu á að fá hjarta- og æðasjúkdóma enda með hátt kólest- eról frá fæðingu. Þeir eru því í forgangshópi og ætti að ráðleggja meðferð með kólesteróllækk- andi lyfjum. • Aðrir Einstaklingar sem eru ekki með þekktan æðakölkunarsjúkdóm en eru í mikilli áhættu, það er >10% hættu á að fá kransæðasjúkdóm næstu 10 árin samkvæmt íslenskum áhættukort- um frá 2005. Til þess að meta áhættuna á nákvæmari hátt en áhættukortin gera er hægt að nota reiknivél Hjartaverndar. Jafnframt er rétt að hafa í huga að áhættan er meiri en áhættukortin gefa til kynna ef viðkomandi einstaklingur hefur hækkun á þríglýseríðum (fastandi gildi >2,5 mmól/L), lágt HDL-kólesteról (<1,0 ntmól/L hjá körlurn og <1,2 mmól/L hjá konum) eða ættarsögu (systkini eða foreldrar) um hjarta- og æðasjúkdóma. Unga ein- staklinga sem eru í mikilli hættu á að fá hjarta- og æðasjúkdóm getur verið erfitt að greina með því að nota áhættukortin. Þótt raunáhætta þeirra (ab- solute risk) á að fá hjarta- og æðasjúkdóm næstu 10 árin sé lítil getur hlutfallsáhættan (relative risk) verið há. Hér þurfa læknar því að beita klínísku mati. Hver eiga meðferðarmarkmiðin að vera? Hjá einstaklingum sem eru með staðfestan krans- æðasjúkdóm hafa meðferðarmarkmið á íslandi verið að ná kólesterólgildi niður fyrir 5,0 mmól/L. Var þetta í samræmi við þær leiðbeiningar sem giltu í Evrópu á þeim tíma er þær voru gerðar. I nýjustu útgáfu evrópsku leiðbeininganna frá 2003 er lagt til að heildarkólesterólgildi sé undir 5,0 mmól/L og LDL-kólesteról undir 3,0 ntmól/L hjá öllum óháð „annarri“ áhættu, en hjá sjúklingum með þekktan æðakölkunarsjúkdóm eða sykursýki ætti að miða við lægri gildi, það er heildarkólest- eról <4,5 mmól/L og LDL-kólesteról <2,5 mmól/L (7)- 464 Læknablaðið 2006/92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.