Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2006, Síða 53

Læknablaðið - 15.06.2006, Síða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SKÝRSLA UM MANNAFLSÞÖRF í HEILBRIGÐISKERFINU að sjálfsögðu mikil áhrif á framboðið. Breyttur tíðarandi eins og breytt löggjöf um fæðingarorlof, meiri krafa um frítíma og breyting á eftirlauna- aldri getur spilað stórt hlutverk.“ Við spárnar um mannafla var stuðst við gögn frá Hagstofu Islands, Landlæknisembættinu, fag- félögunum og sjúkrastofnunum. „Utfrá þeim gögnum sem við fengum kom fram að mestur skortur er innan sjúkraliða og hjúkr- unarfræðistéttanna. Sjúkraliðafélag íslands metur það svo að skorturinn á sjúkraliðum í dag sé um 16% og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga metur skortinn í sinni stétt um 14%. Við teljum að þetta sé varlega áætlað og ýmislegt bendir til þess að ástandið sé jafnvel enn verra. Hjá hinum tveimur fagfélögunum var staðan ekki talin eins alvarleg. Læknafélag Islands metur það svo að í sumum greinum læknisfræðinnar sé um skort að ræða en í öðrum ekki, þannig að í heildina sé ekki skortur á læknum.“ Þær segja það hafa vakið athygli þeirra að spár sjúkrastofnananna og fagfélaganna um hver þörf- in verði árlega næstu árin séu nokkuð svipaðar ef hjúkrunarfræðingarnar eru undanskildir. „Þar munar töluverðu og spár sjúkrastofnana gera ráð fyrir að þörfin aukist um 2,2 % á ári en Félag ís- lenskra hjúkrunarfræðinga gerir ráð fyrir 1% þörf fyrir aukningu. I beinhörðum tölum þýðir þetta að spá sjúkrastofnana gerir ráð fyrir að árið 2020 verið þörf fyrir 4050 hjúkrunarfræðinga en spá Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga reiknar með þörf fyrir 3375. Sérstakra aðgerða er þörf í meðfylgjandi töflum má sjá niðurstöður hámarks- og lágmarksmannaflaspár fyrir stéttirnar fjórar. Lágmarkspáin gerir ráð fyrir að fjöldi heilbrigð- isstarfsmanna á hverja 1000 íbúa haldist óbreyttur út tímabilið 2005-2020. Hámarkspáin gerir hins vegar ráð fyrir því að vöxtur stéttanna verði í takt við væntingar fagfélaganna um hlutfallslega mannaflaþörf. Læknafélagið gerir ráð fyrir auking- in verði um 1,5% að jafnaði á ári, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 1%, Sjúkraliðafélag íslands 3,5% og Félag íslenskra sjúkraþjálfara 2%. „Lágmarkspáin er nokkuð óraunhæf þar sem hún tekur meðal annars ekki tillit til þess að þjóðin eldist. Á hinn bóginn eru rökin fyrir því að velja spá fagfélaganna sem hámarkspá að þau hafa tilhneigingu til að meta þörfina til hins ítrasta þar sem þau bera fyrst og fremst hagsmuni félags- manna sinna fyrii bijósti. Aldurssamsetning lœkna, hjúkrunarfrœðinga, sjúkraliða og sjúkraþjálfara árið 2004. Og þá er loks hægt að spyrja lykilspurning- arinnar hvort við séum að útskrifa nægjanlegan fjölda heilbrigðistarfsmanna miðað við spárnar? Læknablaðið 2006/92 481

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.