Læknablaðið - 15.06.2006, Qupperneq 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VÍSINDARANNSÓKN
upphafi skyldi endinn skoða
Hávar
Sigurjónsson
Linn Getz trúnaðarlæknir Landspítalans hlaut á
dögunum Marie Spángberg verðlaunin í Noregi
fyrir grein sína Estimating the high risk group for
cardiovascular disease in the Norwegian HUNT 2
population according to the European guidelines.
Greinin birtist í British Medical Journal þann 10.
september 2005 og er Linn fyrsti höfundur grein-
arinnar. Meðhöfundar eru Irene Heltevik, Anna
Luise Kirkengen og Jóhann Ágúst Sigurðsson.
Marie Spángberg verðlaunin eru veitt af Norsku
læknasamtökunum og eru árlega veitt konu sem
skarað hefur framúr á vísindasviði læknisfræði.
Verðlaunasjóðurinn var stofnaður 1993 í tilefni af
100 ára fæðingarafmæli Marie Spángberg, fyrstu
norsku konunnar í læknastétt. Markmið sjóðsins
er hvetja konur í læknastétt til vísindarannsókna
með því að verðlauna mikilvægustu vísindagrein-
ina sem norsk kona hefur birt á því almanaks-
ári í norsku eða alþjóðlegu læknavísindariti.
Verðlaunin nema 30 þúsund norskum krónum.
Linn Getz er fædd í Þrándheimi 1962 og lauk cand.
med. prófi frá Háskólanum í Þrándheimi 1989.
Hún hefur búið hér á landi frá 1996.
Sjaldan verið beitt í læknisfræði
„Rannsókn okkar sem var verðlaunuð í Noregi
fjallar um afleiðingar þess ef farið er eftir evr-
ópskum leiðbeiningum um forvarnir við hjarta- og
æðasjúkdómum sem gefnar voru út af helstu og
virtustu félagasamtökum á þessu sviði í Evrópu
árið 2003,“ segir Linn Getz og bætir því við að
klínískar leiðbeiningar í læknisfræði styðjist ávallt
við bestu rannsóknir sem völ er á í gagnreyndri
læknisfræði, Evidence based medicin.
„Vandinn er hins vegar sá að þessar rannsóknir
byggja flestar á lífefnafræðilegum eða lífeðlisfræði-
legum breytum (biomedicin), einkum svonefndum
áhættuþáttum. Mun færri vísindarannsóknir eru til
um áhrif til dæmis mannlegra samskipta, félags-
aðstöðu og uppeldisskilyrða á heilsu en fyrrnefnd
tegund rannsókna.“
Klínískar leiðbeiningar í læknisfræði eru að
sögn Linn yfirleitt samdar af sérfræðingum í
ákveðnum sérgreinum eða með sérþekkingu á
ákveðnum flokkum sjúkdóma, svo sem háþrýst-
ing, hjartasjúkdómum eða sykursýki. „Þetta þýðir
að viss hætta er fyrir hendi á því að lögð sé mikil
áhersla á einstaka málaflokka en að enginn taki
ábyrgð á heildarmyndinni eða skoði hugsanlegar
afleiðingar þess að taka upp leiðbeiningarnar sem
mælt er með.“
Rannsóknin sem Linn og samstarfsmenn
hennar gerðu er svonefnd „modelling study“, eða
reiknilíkan. Þar er beitt þeirri aðferð að reyna sjá
fyrir sér hverjar afleiðingar einhver úrræði hafa.
„Enda þótt þessi vinnubrögð virðist í fljótu bragði
afar sjálfsögð rannsóknaraðferð eins og til dæmis
í verkfræði, þá er staðreyndin samt sú að henni
hefur afar sjaldan verið beitt í læknisfræðinni.
Forsendan fyrir slíkri rannsókn er að eiga og hafa
aðgang að góðum gagnagrunnum til dæmis úr far-
aldsfræðilegum rannsóknum. Við höfðum aðgang
að hóprannsókn úr Norður-Þrændalögum í Noregi
sem nær til um 63 þúsund einstaklinga. Við not-
uðum þennan hóp við reiknilíkanið til að sjá fyrir
hugsanlegar afleiðingar af því ef leiðbeiningarnar
um forvarnir við hjarta- og æðasjúkdómum yrðu
teknar upp og þeim beitt á heilt byggðarlag eða
heila þjóð.“
Birting íslenskra fræðigreina
í erlendum tímaritum
Sigurðsson K, Sigvaldason H
Effectiveness of cervical cancer screening in Iceland, 1964-2002: a study on trends in incidence and
mortality and the effect of risk factors
Acta Obestetricia et Gynecologica 2006; 85: 343-9
Sigurðsson K, Sigvaldason H
Longiludinal trends in cervical histological lesions (CIN 2-3+): A 25-year overview
Acta Obestetricia et Gynecologica 2006; 85: 359-65
484 Læknablaðið 2006/92