Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 61
FRETTATILKYNNING
„Hættu fyrir lífið" -
ráðleggingar fyrir þá sem
vilja hætta að reykja
Krabbameinsfélag Reykjavíkur, í samvinnu við
Reykleysismiðstöð Landspítala og Lýðheilsustöð,
hefur gefið út bæklinginn „Hættu fyrir lífið.”
Bæklingurinn heitir Giving up for life á frummál-
inu og er saminn af Jennifer Percival hjúkrunar-
fræðingi og ráðgjafa í tóbaksvörnum fyrir National
Health Service í Bretlandi.
Megináhersla er lögð á að veita fólki auðveldar
og góðar leiðbeiningar við að hætta að reykja. Hér
eru upplýsingar, ráðleggingar og gagnleg verkefni
sem hjálpa þeim sem reykja að átta sig á því af
hverju þeir reykja og hvernig þeir geta hætt - fyrir
fullt og allt. Tekur er mið af íslenskum aðstæðum
og veittar upplýsingar um meðferðarúrræði hér-
lendis.
Fullyrða má að þetta sé ítarlegasti bæklingur
um reykingar sem komið hefur út um árabil. Enda
þótt mikið hafi dregið úr reykingum síðustu ára-
tugi reykja enn um 19%
fullorðinna Islendinga.
Kannanir sýna að stór
hluti þeirra vill hætta og
mörgum þeirra tekst það
á hverju ári. Utgefendur
vænta þess að bækling-
urinn „Hættu fyrir lífið” komi að góðum notum og
verði þeim sem vilja hætta að reykja stuðningur í
baráttunni til reyklauss lífs.
Bæklingurinn liggur frammi á heilsugæslu-
stöðvum og í apótekum, einnig er hægt að panta
hann hjá Lýðheilsustöð: pantanir@lydheilsustod.
is og hann er jafnframt hjá Krabbameinsfélagsinu:
www.krabb.is/rit
Að hætta að reykja er það besta sem sá sem
reykir getur gert til að bæta heilsu sína. Jafnframt
eykur það líkur á lengra og heilbrigðara lífi.
Heilsugæslulæknir
Afleysingalækni vantar við Heilsugæslustöðina Borgarnesi í eitt ár frá 1. september n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Möguleiki á áframhaldandi ráðningu eftir árið.
Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Heilsugæslustöðin er þriggja lækna stöð en er heimild fyrir fjórum læknum á sumrin. Húsnæði er til staðar fyrir
lækni.
Allar nánari upplýsingar um stöðuna veitir Örn E. Ingason, yfirlæknir í síma 437-1400 eða Guðrún Kristjánsdóttir
framkvæmdastjóri.
Umsóknarfrestur er til 15. júní n.k.
Starfið felst í móttöku sjúklinga á stofu svo og vöktum.
Laun skv. kjarasamningi Læknafélags íslands frá 1. feb. 2006.
Á starfssvæði stöðvarinnar eru ríflega 3800 íbúar með lögheirmili, samskipti á síðasta ári voru rúmlega 25.000.
Mikil aukning er í héraðinu á sumrin.
Umsóknir sendast til:
Framkvæmdastjóra Heilsugæslustöðvarinnar
Borgarbraut 65
310 Borgarnesi
Læknablaðið 2006/92 489