Læknablaðið - 15.06.2006, Síða 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 188
Meira um sérgreinahei
Frá Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins barst
fyrirspurn um heitið heniatology. Spurt var hvert
af eftirtöldum íslenskum heitum ætti helst að nota:
blóðfræði, blóðmeinafræði eða blóðsjúkdóniafræði.
Hematology
Heitið er grískt að uppruna, myndað úr haimatos,
sem þýðir blóð, og logia, sem þýðir frœði eða
frœðigrein. Geta má þess að í samsettum læknis-
fræðiheitum er ýmist vísað til blóðsins með hem-,
lienia-, liemo-, hemat- eða hemato-. Samkvæmt
læknisfræðiorðabók Dorlands er hematologia sú
grein heilbrigðisvísinda sem fœst við blóð og blóð-
myndandi vefi. Bein þýðing á gríska heitinu er blóð-
fræði, sem er lipurt, almennt heiti og í fullu samræmi
við skilgreiningu orðabókarinnar. Það kemur þegar
fram í Islenskum læknisfræðiheitum Guðmundar
Hannessonar frá 1954.1 Iðorðasafni lækna var hins
vegar tekin sú stefna að birta einungis heitið blóð-
sjúkdómafræði.
Sérgreinaheiti
Undirritaður skoðaði ýmsar fleiri skilgreiningar
á hematology. Þær reyndust misjafnlega ítarlegar
og sértækar, enda vafalaust horft til greinarinnar á
svolítið mismunandi hátt. ítarlegust var skilgreining
læknisfræðiorðabókar Stedmans: Sérgrein lœknis-
frœði sem tekur til vefjafrœði, lífeðlisfrœði, meina-
frœði, einkenna og meðferðar sjúkdóma í blóði og
blóðmyndandi vefjum. Önnur nokkuð sambærileg
kom fram við netleit: Sú grein lœknisfrœði sem fœst
við blóðið, blóðmyndandi vefi, blóðsjúkdóma og
meðferð þeirra. Rétt er að benda á að þessar heim-
ildir líta til greinarinnar af sjónarhóli læknisfræði,
en til hennar mætti einnig líta af sjónarhóli annarra
starfs- og fræðigreina, svo sem líffræði, lífeindafræði
og hjúkrunarfræði.
Fræðigrein • starfsgrein
Áður en lengra er haldið langar undirritaðan til að
vekja máls á þeirri hugmynd að gerður sé viss grein-
armunur á fræðigrein og starfsgrein. Fræðigrein er
það samsafn þekkingar sem tilheyrir nafngreindri og
skilgreindri grein, svo sem blóðfræði, en starfsgrein
er skilgreindur eða hefðbundinn starfsvettvangur
tiltekinna starfsmanna, svo sem blóðrannsóknir og
blóðlækningar. Læknaráð Landspítala hefur nýlega
sett fram þá almennu stefnumörkun að starfsgreinar
lækna beri heiti sem enda á -lækningar.
Samheiti eða ekki?
Fyrrgreind íslensk heiti eru því ekki jafngild sam-
heiti. Blóðfræði er ágætt almennt heiti á fræðigrein-
inni hematology, en blóðmeinafræði er heiti á þeirri
starfsgrein sem felur í sér rannsóknir á blóði og
blóðsjúkdómum, á ensku laboratory hematology.
Sú starfsgrein lækninga, sem felur í sér greiningu og
meðferð blóðsjúkdóma, á ensku clinical liemato-
Iogy, ætti hins vegar að heita blóðlækningar- eða
blóðsjúkdómalækningar.
En hvað er þá blóðsjúkdómafræði? Samkvæmt
ofanrituðu færi best á því að takmarka notkun þess
heitis við þá fræðigrein (þekkingargrein) sem liggur
að baki þeim starfsgreinum sem lúta að rannsókn-
urn, greiningu og meðferð á blóðsjúkdómum.
Orðskrípi
Ólöf Erna Adamsdóttir, ritari forstjóra Landspítala,
er í hópi þeirra mörgu starfsmanna sem vilja vanda
hið ritaða mál, en fá stundum ekki rönd við reist
þegar margvísleg orðskrípi úr talmáli flæða um
síður. Hún sendi tölvupóst og sagðist hafa séð í texta
að á spítalanum færi fram móttaka slysa. Þarna átti
augljóslega að standa inóttaka slasaðra, en full-
komið hugsunarleysi hefur ráðið því að sjúklingarnir
gleymdust. Fyrir utan þá rökvillu að „slysið” berist
inn á móttökudeild, þá er varla hægt að sýna sjúk-
lingi meiri óvirðingu en að hlutgera hann og tala um
„umferðarslysið síðan í morgum” eða „gallblöðruna
á stofu 7”.
Ólöf benti einnig á skriflegar leiðbeiningar um
sárameðferð þar sem finna má orðið sáraskipting.
Samkvæmt íslenskri orðabók Eddu er nafnorðið
skipting deiling, sundurhlutun, reik í hári, klof klyft-
ir, breyting, skipti. Hvorki er verið að gefa til kynna
að skipta eigi sári í hluta né að skipta eigi um sár.
Leiðbeiningarnar snúast um verklag við að skipta
um uinbúðir á sári eða um það hvernig umbúða-
skipti fari fram.
Epidermal peel
Sigurður Helgason, læknir, sendi fyrirspurn í tölvu-
pósti um íslenskt heiti á fyrirbærinu epidermal
peel. Um er að ræða fegrunaraðgerð á yfirborði
andlitshúðar sem felst í því að fjarlægja eitt eða
fleiri af ystu lögum húðþekjunnar (epidermis) með
tiltekinni aðferð. Aðferðin, sem ber heitið chemical
peel, felst í því að sérstakt efni er borið á húðina og
látið storkna í samfellda himnu, sem síðan er flett af
yfirborðinu með þeim lögum húðþekjunnar (vænt-
anlega fyrst og fremst stratum corneum) sem við
himnuna loða. Að sögn getur þetta lagfært hrukkur
og ýmsar litarbreytingar.
Fyrir lá sem sagt að finna nafnorð sem lýsti
verknaði (aðgerðinni). I orðabókum mátti ýmislegt
finna til að gera úr verknaðarheiti: afhýðing, fláning,
fletting, flusun, flysjun, skrœling. Af þessu hugnaðist
undirrituðum best orðið flysjun, en úr því má búa til
heitið el'naflysjun. Um það sem af losnar má nota
hvorugkynsnafnorðið flys (flysið). Vilja lýta- eða
húðlæknar einnig leggja orð í belg?
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
johannhj@landspitali. is
Jóhann Heiðar er læknir
á Landspítala Hringbraut.
Læknablaðið 2006/92 491