Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 63

Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 188 Meira um sérgreinahei Frá Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins barst fyrirspurn um heitið heniatology. Spurt var hvert af eftirtöldum íslenskum heitum ætti helst að nota: blóðfræði, blóðmeinafræði eða blóðsjúkdóniafræði. Hematology Heitið er grískt að uppruna, myndað úr haimatos, sem þýðir blóð, og logia, sem þýðir frœði eða frœðigrein. Geta má þess að í samsettum læknis- fræðiheitum er ýmist vísað til blóðsins með hem-, lienia-, liemo-, hemat- eða hemato-. Samkvæmt læknisfræðiorðabók Dorlands er hematologia sú grein heilbrigðisvísinda sem fœst við blóð og blóð- myndandi vefi. Bein þýðing á gríska heitinu er blóð- fræði, sem er lipurt, almennt heiti og í fullu samræmi við skilgreiningu orðabókarinnar. Það kemur þegar fram í Islenskum læknisfræðiheitum Guðmundar Hannessonar frá 1954.1 Iðorðasafni lækna var hins vegar tekin sú stefna að birta einungis heitið blóð- sjúkdómafræði. Sérgreinaheiti Undirritaður skoðaði ýmsar fleiri skilgreiningar á hematology. Þær reyndust misjafnlega ítarlegar og sértækar, enda vafalaust horft til greinarinnar á svolítið mismunandi hátt. ítarlegust var skilgreining læknisfræðiorðabókar Stedmans: Sérgrein lœknis- frœði sem tekur til vefjafrœði, lífeðlisfrœði, meina- frœði, einkenna og meðferðar sjúkdóma í blóði og blóðmyndandi vefjum. Önnur nokkuð sambærileg kom fram við netleit: Sú grein lœknisfrœði sem fœst við blóðið, blóðmyndandi vefi, blóðsjúkdóma og meðferð þeirra. Rétt er að benda á að þessar heim- ildir líta til greinarinnar af sjónarhóli læknisfræði, en til hennar mætti einnig líta af sjónarhóli annarra starfs- og fræðigreina, svo sem líffræði, lífeindafræði og hjúkrunarfræði. Fræðigrein • starfsgrein Áður en lengra er haldið langar undirritaðan til að vekja máls á þeirri hugmynd að gerður sé viss grein- armunur á fræðigrein og starfsgrein. Fræðigrein er það samsafn þekkingar sem tilheyrir nafngreindri og skilgreindri grein, svo sem blóðfræði, en starfsgrein er skilgreindur eða hefðbundinn starfsvettvangur tiltekinna starfsmanna, svo sem blóðrannsóknir og blóðlækningar. Læknaráð Landspítala hefur nýlega sett fram þá almennu stefnumörkun að starfsgreinar lækna beri heiti sem enda á -lækningar. Samheiti eða ekki? Fyrrgreind íslensk heiti eru því ekki jafngild sam- heiti. Blóðfræði er ágætt almennt heiti á fræðigrein- inni hematology, en blóðmeinafræði er heiti á þeirri starfsgrein sem felur í sér rannsóknir á blóði og blóðsjúkdómum, á ensku laboratory hematology. Sú starfsgrein lækninga, sem felur í sér greiningu og meðferð blóðsjúkdóma, á ensku clinical liemato- Iogy, ætti hins vegar að heita blóðlækningar- eða blóðsjúkdómalækningar. En hvað er þá blóðsjúkdómafræði? Samkvæmt ofanrituðu færi best á því að takmarka notkun þess heitis við þá fræðigrein (þekkingargrein) sem liggur að baki þeim starfsgreinum sem lúta að rannsókn- urn, greiningu og meðferð á blóðsjúkdómum. Orðskrípi Ólöf Erna Adamsdóttir, ritari forstjóra Landspítala, er í hópi þeirra mörgu starfsmanna sem vilja vanda hið ritaða mál, en fá stundum ekki rönd við reist þegar margvísleg orðskrípi úr talmáli flæða um síður. Hún sendi tölvupóst og sagðist hafa séð í texta að á spítalanum færi fram móttaka slysa. Þarna átti augljóslega að standa inóttaka slasaðra, en full- komið hugsunarleysi hefur ráðið því að sjúklingarnir gleymdust. Fyrir utan þá rökvillu að „slysið” berist inn á móttökudeild, þá er varla hægt að sýna sjúk- lingi meiri óvirðingu en að hlutgera hann og tala um „umferðarslysið síðan í morgum” eða „gallblöðruna á stofu 7”. Ólöf benti einnig á skriflegar leiðbeiningar um sárameðferð þar sem finna má orðið sáraskipting. Samkvæmt íslenskri orðabók Eddu er nafnorðið skipting deiling, sundurhlutun, reik í hári, klof klyft- ir, breyting, skipti. Hvorki er verið að gefa til kynna að skipta eigi sári í hluta né að skipta eigi um sár. Leiðbeiningarnar snúast um verklag við að skipta um uinbúðir á sári eða um það hvernig umbúða- skipti fari fram. Epidermal peel Sigurður Helgason, læknir, sendi fyrirspurn í tölvu- pósti um íslenskt heiti á fyrirbærinu epidermal peel. Um er að ræða fegrunaraðgerð á yfirborði andlitshúðar sem felst í því að fjarlægja eitt eða fleiri af ystu lögum húðþekjunnar (epidermis) með tiltekinni aðferð. Aðferðin, sem ber heitið chemical peel, felst í því að sérstakt efni er borið á húðina og látið storkna í samfellda himnu, sem síðan er flett af yfirborðinu með þeim lögum húðþekjunnar (vænt- anlega fyrst og fremst stratum corneum) sem við himnuna loða. Að sögn getur þetta lagfært hrukkur og ýmsar litarbreytingar. Fyrir lá sem sagt að finna nafnorð sem lýsti verknaði (aðgerðinni). I orðabókum mátti ýmislegt finna til að gera úr verknaðarheiti: afhýðing, fláning, fletting, flusun, flysjun, skrœling. Af þessu hugnaðist undirrituðum best orðið flysjun, en úr því má búa til heitið el'naflysjun. Um það sem af losnar má nota hvorugkynsnafnorðið flys (flysið). Vilja lýta- eða húðlæknar einnig leggja orð í belg? Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali. is Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2006/92 491
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.