Læknablaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 3
Skóflur í sparifötunum, tilbúnar fyrir fyrstu stungu að Lækningaminjasafni á Seltjarnarnesi, sjá bls. 695.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Ljósmyndin af bænum Nýp á Skarðsströnd sýnir
kunnuglegt íslenskt landslag og umhverfi en við nánari
skoðun má sjá letur í hlíðinni fyrir ofan bæjarhúsin. Þar
stendur stórum stöfum nafnið Jón skrifað í grassvörðinn.
Um er að ræða verk eftir listamanninn Magnús Pálsson
(f. 1929) sem var hluti af sýningunni Dalir og hólar í
sumar sem leið. Sýningin
var haldin í Dölum og
Reykhólasveit þar sem
átta listamönnum var
boðið að vinna út frá
staðháttum og sögu
svæðisins. Tildrög
verksins JÓN (2008)
eru þau að langafi
Magnúsar, séra Jón
Bjarnason, var prestur á
Skarðsströnd og bjó á
Nýp frá árunum 1874 til
1882. Hann var litríkur
persónuleiki og stundum
umdeildur. Afi Magnúsar,
séra Magnús Blöndal
Jónsson í Vallanesi,
hefur í æviminningum
sínum skrifað um föður
sinn en þau skrif hafa
valdið því að Magnús hefur fengið nokkra ást á minningu
séra Jóns. Núverandi ábúendur Nýps, Þóra Sigurðardóttir,
myndlistarkona, og Sumarliði ísleifsson, sagnfræðingur,
voru öll af vilja gerð við að aðstoða við gerð verksins,
móta yfir þrjátiu metra langa stafina og slá grasið innan
þeirra. Þannig stóð síðan verkið þann tíma sem það tók
grasið að jafna sig og Þóra tók þessa mynd sem nú er
á forsíðunni. Hana sýnir Magnús ásamt fleiri verkum um
þessar mundir á einkasýningu sínni í Berlín í Galerie
Crystal Ball. Hann sækir gjarnan í frásagnir af fólki og
spinnur verk í minningu þeirra. Skemmst er að minnast
sýningar hans í i8 gallerí þar sem hann vann út frá sögunni
um Þórarin Nefjólfsson. Aðspurður um þessa notkun á
menningararfinum hefur hann sagt að arfurinn sé svo rikur
þáttur í allri hans tilvist og vitundarlífi að hann þrengi sér
óboðinn inn í verkin.
Magnús er ekki síður
kunnur fyrir að nota
tungumálið sjálft og
texta sem efnivið,
ýmist í gjörningum,
myndbandsverkum
og öðrum miðlum.
Hvort tveggja
notar hann á
skemmtilegan hátt
í verkinu JÓN, þar
sem hann merkir
landið bókstaflega
manni sem byggði
það á fyrri tíð og
vottar honum og
um leið gengnum
kynslóðum virðingu
sína.
Hvort tveggja,
arfleið og ritmál, notar hann á skemmtilegan hátt í verkinu
JÓN, þar sem hann merkir landið bókstaflega forföður
sinum sem byggði það á fyrri tíð. Um stund hrópar þetta
risavaxna orð á haf út og til þeirra fáu sem leið eiga hjá
en grær svo á ný. Eins algengt og Jónsnafnið hefur verið
á íslandi mætti einnig hugsa sér verkið sem eins konar
tímabundinn minnisvarða um allar þær kynslóðir sem hafa
áður ræktað landið.
Markús Þór Andrésson
Birt með leyfi Galerie Crystal Ball
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Margrét Árnadóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1600
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né f heild án leyfís.
Fræðigreínar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinaheiti og
úrdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Cítation Index
(SoiSearch) og Journal Citation
Reports/Science Edition.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch) and Journal Citation
Reports/Science Edition.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2008/94 651