Læknablaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 47
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
LÆKNINGAMINJASAFN
Fyrsta
skóflustunga
að Lækninga-
minjasafni íslands
Bima Jónsdóttir, formaður Læknafélags íslands, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttirmenntamálaráðherra,MargrétHallgrímsdóttirþjóð-
minjavörður,AnnaK.Jóhannsdóttir,ritariLæknafélagsReykjavíkur,
og Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjamamess, tóku fyrstu
skóflustunguna að byggingu Lækningaminjasafns Islands að
viðstöddu fjölmenni föstudaginn 5. september. Safnið mun rísa
á safnasvæði Seltjamarness við Nesstofu og verður miðstöð safn-
astarfsemi á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda. Það mun bera
ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim
munum og minjum sem snerta sögu lækninga á Islandi. Ráðgert er
að Nesstofa, sem var reist á árunum 1761-1763 sem aðsetur Bjama
Pálssonar landlæknis, verði hluti Lækningaminjasafns Islands.
Bygging og rekstur Lækningaminjasafns íslands er samstarfsverk-
efni Læknafélags íslands, Læknafélags Reykjavíkur, menntamála-
ráðrmeytis, Þjóðminjasafns fslands og Seltjamamesbæjar.
Kostnaður við bygginguna er áætlaður 393 m.kr. að frá-
töldum kostnaði við lóð og skiptist milh samstarfsaðilanna.
Læknafélögin leggja til 25 m.kr. hvort auk þess sem söluand-
virði fasteignarinnar að Bygggörðum 7 á Seltjamamesi rennur
til framkvæmdarinnar, en fasteignin var keypt fyrir erfðafé
Jóns Steffensen, prófessors emeritus, sem fól Læknafélagi
íslands umsjón með tilteknum eignum í erfðaskrá sinni og
skyldi andvirði þeirra varið til byggingar lækningaminjasafns.
Læknafélagið færði síðar Þjóðminjasafninu arfinn til umsjónar.
Matsverð eignarinnar er um 110 milljónir króna.
Seltjamames leggur til 110 m.kr. auk lóðar og menntamálaráðu-
neytið greiðir 75 m.kr.
Safnbyggingin mun verða um 1600 fermetrar að stærð
á tveimur hæðum. Á fyrstu hæð er gert ráð fyrir sýningar-
og fundarsölum, kaffistofu og safnbúð auk skrif-
stofurýmis og bókasafns. Kjallarinn verður nýttur
undir geymslur og tæknirými. Safnið mun jafn-
framt nýtast undir aðra menningartengda starfsemi
Seltjamamesbæjar og á að vera risið árið 2010.
Seltjamamesbær hefur umsjón með byggingu hússins
og Lækningaminjasafn íslands verður starfrækt sem
stofnun á vegum bæjarins.
Ásdís Helga Ágústsdóttir og Sólveig Berg hjá Yrki
arkitektum ehf. hlutu fyrstu verðlaun fyrir hönnun
safnhússins í opinni hönmmarsamkeppni sem fór fram
árið 1997. Hönnun burðarvirkis, frárennslis-, hreinlæt-
is- og hitalagna er í höndum VSB verkfræðistofu.
LÆKNAblaðið 2008/94 695