Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2008, Page 47

Læknablaðið - 15.10.2008, Page 47
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR LÆKNINGAMINJASAFN Fyrsta skóflustunga að Lækninga- minjasafni íslands Bima Jónsdóttir, formaður Læknafélags íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirmenntamálaráðherra,MargrétHallgrímsdóttirþjóð- minjavörður,AnnaK.Jóhannsdóttir,ritariLæknafélagsReykjavíkur, og Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjamamess, tóku fyrstu skóflustunguna að byggingu Lækningaminjasafns Islands að viðstöddu fjölmenni föstudaginn 5. september. Safnið mun rísa á safnasvæði Seltjamarness við Nesstofu og verður miðstöð safn- astarfsemi á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda. Það mun bera ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim munum og minjum sem snerta sögu lækninga á Islandi. Ráðgert er að Nesstofa, sem var reist á árunum 1761-1763 sem aðsetur Bjama Pálssonar landlæknis, verði hluti Lækningaminjasafns Islands. Bygging og rekstur Lækningaminjasafns íslands er samstarfsverk- efni Læknafélags íslands, Læknafélags Reykjavíkur, menntamála- ráðrmeytis, Þjóðminjasafns fslands og Seltjamamesbæjar. Kostnaður við bygginguna er áætlaður 393 m.kr. að frá- töldum kostnaði við lóð og skiptist milh samstarfsaðilanna. Læknafélögin leggja til 25 m.kr. hvort auk þess sem söluand- virði fasteignarinnar að Bygggörðum 7 á Seltjamamesi rennur til framkvæmdarinnar, en fasteignin var keypt fyrir erfðafé Jóns Steffensen, prófessors emeritus, sem fól Læknafélagi íslands umsjón með tilteknum eignum í erfðaskrá sinni og skyldi andvirði þeirra varið til byggingar lækningaminjasafns. Læknafélagið færði síðar Þjóðminjasafninu arfinn til umsjónar. Matsverð eignarinnar er um 110 milljónir króna. Seltjamames leggur til 110 m.kr. auk lóðar og menntamálaráðu- neytið greiðir 75 m.kr. Safnbyggingin mun verða um 1600 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Á fyrstu hæð er gert ráð fyrir sýningar- og fundarsölum, kaffistofu og safnbúð auk skrif- stofurýmis og bókasafns. Kjallarinn verður nýttur undir geymslur og tæknirými. Safnið mun jafn- framt nýtast undir aðra menningartengda starfsemi Seltjamamesbæjar og á að vera risið árið 2010. Seltjamamesbær hefur umsjón með byggingu hússins og Lækningaminjasafn íslands verður starfrækt sem stofnun á vegum bæjarins. Ásdís Helga Ágústsdóttir og Sólveig Berg hjá Yrki arkitektum ehf. hlutu fyrstu verðlaun fyrir hönnun safnhússins í opinni hönmmarsamkeppni sem fór fram árið 1997. Hönnun burðarvirkis, frárennslis-, hreinlæt- is- og hitalagna er í höndum VSB verkfræðistofu. LÆKNAblaðið 2008/94 695

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.