Læknablaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 25
s
FRÆÐIGREINAR
JÚKRATILFELLI
Hilmir
Ásgeirsson1
unglæknir
Dóra
Lúðvíksdóttir1
lungnalæknir
Ólafur
Kjartansson2
röntgenlæknir
Tómas
Guðbjartsson34
brjóstholsskurðlæknir
Lykilorð: risablaðra í lungum
- greining - meðferð - brjósthols-
skurðaðgerð - öndunarmælingar
- lungnarúmmálsmælingar
’Lungnadeild,
2myndgreiningardeild,
3hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítala,
“læknadeild HÍ.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Tómas Guðbjartsson,
hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítala Hringbraut,
101 Reykjavík.
Sími: 5431000.
tomasgud@landspitali. is
Miðaldra reykingamaður
með risablöðru í lunga
- sjúkratilfelli
Ágrip
Hraustur 49 ára gamall reykingamaður var
greindur með risastóra blöðru í hægra lunga.
Hann hafði við greiningu þriggja mánaða sögu
um þurran hósta og endurteknar efri loftvegasýk-
ingar ásamt nokkurra ára sögu um hægt vaxandi
mæði. Á tölvusneiðmynd sást risablaðra í neðra
lungnablaði og minni blöðrur miðlægt í efra blaði.
Risablaðran var 17 cm í þvermál og náði yfir meira
en helming lungans. Samanlagt rúmmál blaðranna
mældist 3,2 lítrar á tölvusneiðmyndum. Einnig
voru gerðar lungnarúmmálsmælingar með tveim-
ur mismunandi aðferðum (köfnunarefnistæmingu
og þrýstingsaðferð) og rúmmál blaðranna þannig
áætlað 2,9 lítrar. Öndunarmæling sýndi talsverða
herpu. Ákveðið var að gera brjóstholsskurð-
aðgerð og var risablaðran fjarlægð með blaðnámi
og blöðrurnar í efra blaði með fleygskurði. Eftir
aðgerð mældist marktæk aukning á fráblást-
ursrúmmáli. Fimm mánuðum eftir aðgerð er
sjúklingurinn við góða heilsu og er aftur kominn
til vinnu. Þetta tilfelli sýnir að hægt er að fjarlægja
risablöðrur úr lunga með skurðaðgerð og hægt er
að áætla rúmmál blaðranna með bæði myndgrein-
ingarrannsóknum og öndunarmælingum.
Tilfelli
Tæplega fimmtugur karlmaður leitaði til heim-
ilislæknis vegna þriggja mánaða sögu um þurran
hósta og endurteknar efri öndunarfærasýkingar.
Hann hafði í nokkur ár fundið fyrir vaxandi mæði
við áreynslu en kenndi sjálfur um reykingum,
enda reykti hann rúman pakka á dag og átti að
baki 50 pakkaár. Ekki var fyrri saga um lungna-
sjúkdóma eða aðra langvinna sjúkdóma og aldrei
hafði verið tekin af honum röntgenmynd af lung-
um. Við skoðun var litarháttur eðlilegur og súrefn-
ismettun 98%. Blásturshljóð heyrðust staðbundið
neðst yfir hægra lunga og þar voru öndunarhljóð
minnkuð og banktónn aukinn. Að öðru leyti var
líkamsskoðun eðlileg og sama var að segja um
blóðrannsóknir og hjartalínurit.
Tekin var röntgenmynd af lungum sem sýndi
risablöðru (giant bulla) í hægra brjóstholi og fyllti
blaðran rúman helming þess (mynd la). Til nánari
greiningar voru fengnar háskerputölvuneiðmynd-
ir af lungum og brjóstholi (mynd 2). Þar sást að
risablaðran var rúmir 17 cm í mesta þvermál, stað-
sett í neðra blaði hægra lunga og þrýsti greinilega
á bæði efra blað og miðblað. Einnig sáust aðrar
minni blöðrur, alls 8 cm í þvermál, miðlægt í efra
b
Mynd 1. Röntgenmynd aflungum fyrir (la) og 3 mán eftir aðgerð (lb).
Áfyrri myndinni sést risablaðra í hægra lunga (dökkt svæði) sem nær yfir rúman helming afhægra brjóstholi. Seinni myndin
sýnir ástand eftir aðgerð. Lungnavefur er annars nánast eðlilegur að sjá.
L.
LÆKNAblaðið 2008/94 673