Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 31
Ú R UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Virkir læknar eða óvirkir ... Elínborg Bárðardóttir formaður Félags íslenskra heimilislækna elinborgb@simnet. is Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir, formaður Sigurður E. Sigurðsson, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Sigríður Ó. Haraldsdóttir, ritari Elínborg Bárðardóttir Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir Kristján G. Guðmundsson Sigurður Böðvarsson Þórarinn Guðnason í pistlunum Úrpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort læknar séu nógu virkir í þjóðfélagsumræðunni. Læknar eru í þeirri stöðu að þekkja og standa mjög nálægt almenningi í landinu, eru ekki aðeins fagmenn sem greina og meðhöndla einkenni og sjúkdóma, heldur sífellt að hlusta á og reyna að styðja sjúk- linga sína í lífsins ólgusjó. Á íslandi er öflugt heilbrigðiskerfi og gott almennt heilbrigði en það er þó ekki endilega gefið að umhverfi okkar stuðli að heilbrigði. Gott samfélag og umhverfi eru þó ein af nauðsynlegum forsendum heilbrigðis sem allir eiga rétt á. Félag íslenskra heimilislækna (FÍH) mótaði fjölskyldustefnu FÍH á ári fjölskyldunnar 1994. Þar var lögð áhersla á þætti sem skipta höfuðmáli fyrir þarfir fjölskyldunnar, svo sem atvinnu, hús- næði, tíma til samveru, skóla og frístundastarf, kost á ódýrri heilbrigðisþjónustu, nám og loks var fjallað um áfengi og vímuefni. 14 árum síðar stendur fjölskyldustefna FÍH enn fyrir sínu þó margt hafi reyndar áunnist og batnað. Má þar nefna skólana og einsetningu þeirra, sem og lánamöguleika til húsnæðiskaupa sem verða þó í ljósi efnahagsþróunar síðustu mánaða að teljast í algjörri óvissu. Önnur vandamál hafa hins vegar orðið meira áberandi og er fíkniefnaneysla og sú firring sem henni fylgir nærtækasta dæmið. Það er sárt að horfa á ungt fólk sóa lífi sínu í neyslu og það á íslandi í dag þegar möguleikarnir virðast óendanlegir eins og Ólympíusilfrið í handbolta er gott dæmi um. Það er ekki að furða að maður velti fyrir sér hvað hafi farið úrskeiðis. Höfum við kannski sýnt of mikið umburðarlyndi? Verið of rög við að segja að nú sé nóg komið af frjálsræðinu til vitleysunn- ar? Frjálsræði sem leitt hefur til agaleysis, frelsi sem er ekki frelsi heldur bara stjórnleysi sem leiðir til taumleysis og óheilbrigðis. Vanlíðan barna og unglinga helst gjarnan í hendur við vanlíðan foreldra og er oft við ramm- an reip að draga og margt sem veldur. Það sem upp úr stendur er þó mikilvægi þess að hlúa að börnum og stuðla að tilfinningalegri og andlegri vellíðan þeirra. Ég tel það eitt mikilvægasta verk- efni foreldra dagsins í dag og samfélagsins í heild og þar verða allir að leggjast á eitt. Því miður ganga fyrirtæki á borð við áfengisframleiðendur fram í vitleysunni og ágimdinni og keppast við að auglýsa bjór (sem léttöl auðvitað) og neyslu hans sem eðlilegan hlut í daglegu lífi þjóðarinnar. Allt leyft og gert í nafni frjálsrar samkeppni og rétt- arins til að selja vöru sína þrátt fyrir að vera víðs fjarri sannleikanum um hollustu og heilbrigði. Það má einnig segja að framleiðendur skyndibita og sætinda séu undir sömu sök seldir þegar þeir auglýsa vöru sína í upphafi barnatíma og ýta þannig undir ofeldi og offitu barna. Fyrir utan áfengis- og vímuefnavarnir eru tó- baksvarnir stórmál fyrir heilsufar þjóðarinnar og er mjög ánægjulegt að sjá þartn árangur sem reyk- ingabartn hefur greinilega borið og með ólíkind- um að heyra ennþá raddir sem í nafni frjálsræðis vilja ekki takmarka reykingar. Að lokum langar mig að minnast á umræðuna um hvort leyfa eigi nektarstöðum að sýna nekt- ardans. Nektarstaðir sem gera út á nekt fólks geta ekki talist til heilbrigðs umhverfis enda þekkt að slíkum stöðum fylgir gjarnan mannfyrirlitning og ofbeldi, vímuefnaneysla, mansal og vændi með tilheyrandi heilsuvanda. Lögum sem samþykkt voru á alþingi vorið 2007 var ætlað að koma í veg fyrir að gert væri út á nekt fólks. Með undanþágu- ákvæðum lagartna virðist sveitafélögum hins vegar ekki stætt á að hafna slíkri starfsemi. Nekt er og verður þannig gerð að söluvöru og tilraunir til að sporna við slíkri starfsemi og þar með neikvæð- um heilsufarslegum og siðferðilegum afleiðingum hennar virðast vera að renna út í sandinn. Mér firtnst það miður enda tel ég það býsna mikilvægt að hlúa að og stuðla að heilbrigði, mannvirðingu og fjölskylduvænum gildum og engin ástæða til að láta glepjast af gróðasjónarmiðum og mis- skildu frjálslyndi í þeim efnum. Gott siðferði helst nefnilega í hendur við heilbrigði og martnvirðing og tækifæri til að þroskast á eðlilegan hátt er hluti af heilbrigði martna. Ekki ætti heldur að vanmeta þau áhrif sem hægt er að hafa á böm og unglinga og fjölskyld- una og þar með vaxtarskilyrði þeirra með því að halda á lofti áfengi og tóbaki eða skemmtistöðum sem gera út á nekt fólks. Allar tilraunir í þá átt grafa undan einu mikilvægasta verkefni okkar í samfélagi dagsins í dag sem er að stuðla að heil- brigði og vellíðan barna og fjölskyldna þeirra. Þess vegna varða þessi mál alla og sérstaklega lækna og við læknar ættum að mótmæla of miklu frjálsræði í meðförum á tóbaki, áfengi og öðrum vímuefnum og mótmæla nektarstöðum. LÆKNAblaðið 2008/94 679
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.