Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2008, Side 22

Læknablaðið - 15.10.2008, Side 22
FRÆÐIGREINAR SJÚKRATILFELLI O G Y F I R L I T fyrir myndun afmýlingarskemmda og því verið haldið fram að hægfara leiðrétting auki hættu á heilaskemmdum af völdum natríumlækkunar- innar sjálfrar (47). Þessu erum við ósammála og styðjum þá skoðun að hætta á heilaskemmdum af völdum blóðnatríumlækkunar sé óveruleg nema þegar hún er bráð. Við teljum að ávallt skuli leið- rétta langvinna blóðnatríumlækkun eins rólega og kostur er og stefna að því að hækkun natríum- styrksins sé ekki meiri en 8 mmól/1 á sólarhring. Það er þó óvíst að alfarið sé hægt að koma í veg fyrir osmósuafmýlingarheilkenni með því að halda hraða leiðréttingar natríumstyrksins undir ákveðnu marki. Gjöf 0,9% natríumklóríðs er varasöm hjá flestum sjúklingum með langvinna blóðnatríumlækkun. Ef orsökin er óviðeigandi seyting vasópressíns (syndrome of inappropriate antidiuresis) getur gjöf saltvatns leitt til frekari natríumlækkunar því natr- íum í innrennslisvökvanum er jafnóðum skilið út í þéttu þvagi. A hinn bóginn ef saltskortur á hlut- deild í orsök blóðnatríumlækkunar getur saltvatn valdið skjótri leiðréttingu S-natríums vegna bæl- ingar á seytingu vasópressíns. Gjöf 0,9% natríum- klóríðs á eingöngu rétt á sér ef verulegur skortur utanfrumuvökvarúmmáls er fyrir hendi. Sjúklingurinn sem hér er fjallað um var með sérlega svæsna langvinna blóðnatríumlækkun og var natríumstyrkurinn með þeim lægstu sem greint hefur verið frá. Því kann að hafa verið óvarlegt að miða við 12 mmól/1 á sól- arhring sem hámarkshraða leiðréttingar S-natr- íum þar sem hlutfallsleg hækkun natríumstyrks- ins er þá meiri en almennt hefur verið reyndin í þeim tilfellum sem framangreindar ráðleggingar byggja á. Þá kann gjöf 0,9% natríumklóríðs og fúrósemíðs að hafa átt þátt í að hraði leiðrétt- ingar var óhóflegur á þriðja sólarhring með- ferðar. En jafnvel þótt mjög varlega sé farið getur reynst erfitt að halda hraða leiðréttingar S-natríums innan þeirra marka sem stefnt er að, einkum vegna skyndilegrar aukningar á vatns- ríkum þvagútskilnaði er leitt getur til skjótrar leiðréttingar natríumstyrksins. Þetta getur gerst hjá sjúklingum sem skyndilega hætta óhóflegri vatnsdrykkju eða þegar skerðing á vatnsútskiln- aði um nýru er lagfærð, til dæmis við upprætingu skorts á utanfrumuvökva eða annarra þátta sem trufla þynningarhæfni nýrna. Ef þvagútskilnaður eykst skyndilega má reyna að sporna við hækkun S-natríums með því að gefa 5% glúkósalausn í æð eða hamla útskilnaði vatns með gjöf vasópress- ínhliðstæðunnar desmópressíns (38). Enn fremur voru mælingar á S-natríum ekki nægilega tíðar eftir fyrsta sólarhring meðferðar. Náin vöktun er afar mikilvæg meðan natríumlækkun er leiðrétt. Auk tíðra mælinga á S-natríum, gjarnan með eins til tveggja klukkustunda millibili (39), þarf að fylgjast stöðugt með þvagútskilnaði fyrstu sól- arhringana svo hægt sé að grípa inn í ef vatnsrík þvagaukning á sér stað. Loks er mikilvægt að leið- rétta blóðkalíumlækkun þótt ósannað sé að það hafi áhrif á myndun osmósuafmýlingar. Sjúkratilfelli það sem hér er greint frá sýnir hve meðferð blóðnatríumlækkunar getur verið vandasöm. Það er hugsanlegt að hægari leiðrétt- ing natríumstyrksins hefði nægt til að fyrirbyggja eða minnka sköddunina sem konan varð fyrir. Með hliðsjón af þessu tilfelli og þeirri þekkingu sem hér hefur verið reifuð mælum við með að við leiðréttingu svæsinnar langvinnrar blóðnatríum- lækkunar sé hækkun S-natríums ekki umfram 8 mmól/1 á sólarhring. Þakkir Höfundar þakka Ólafi Kjartanssyni, yfirlækni myndgreiningar á Landspítala, og Þórdísi E. Agústsdóttur, ljósmyndara á Landspítala, fyrir aðstoð við frágang segulómmynda. Heimildir 1. Wright DG, Laureno R, Victor M. Pontine and extrapontine myelinolysis. Brain 1979; 102: 361-85. 2. Karp BI, Laureno R. Pontine and extrapontine myelinolysis: a neurologic disorder following rapid correction of hyponatremia. Medicine (Baltimore) 1993; 72: 359-73. 3. Martin RJ. Central pontine and extrapontine myelinolysis: the osmotic demyelination syndromes. J Neurol Neurosurg Psychiatry 2004; 75 Suppl 3: iii22-8. 4. Stems RH. The management of symptomatic hyponatremia. Semin Nephrol 1990;10 503-14. 5.Soupart A, Decaux G. Therapeutic recommendations for management of severe hyponatremia: current concepts on pathogenesis and prevention of neurologic complications. Clin Nephrol 1996; 46:149-69. 6. Norenberg MD, Leslie KO, Robertson AS. Association between rise in serum sodium and central pontine myelinolysis. Ann Neurol 1982; 11:128-35. 7. Lohr JW. Osmotic demyelination syndrome following correction of hyponatremia: association with hypokalemia. AmJMed 1994; 96: 408-13. 8. Menger H, Jorg J. Outcome of central pontine and extrapontine myelinolysis (n = 44). J Neurol 1999; 246: 700-5. 9. Stems RH, Riggs JE, Schochet SS, Jr. Osmotic demyelination syndrome following correction of hyponatremia. N Engl J Med 1986; 314:1535-42. 10. Cluitmans FH, Meinders AE. Management of severe hyponatremia: rapid or slow correction? Am J Med 1990; 88: 161-6. 11. Arieff AI. Hyponatremia, convulsions, respiratory arrest, and permanent brain damage after elective surgery in healthy women. N Engl J Med 1986; 314:1529-35. 12. Adams RD, Victor M, Mancall EL. Central pontine myelinolysis: a hitherto undescribed disease occurring in alcoholic and malnourished patients. AMA Arch Neurol Psychiatry 1959; 81:154-72. 13. Tomlinson BE, Pierides AM, Bradley WG. Central pontine myelinolysis. Two cases with associated electrolyte disturbance. Q J Med 1976; 45: 373-86. 14. Kleinschmidt-DeMasters BK, Norenberg MD. Rapid correction of hyponatremia causes demyelination: relation to central pontine myelinolysis. Science 1981; 211:1068-70. 15. Laureno R. Central pontine myelinolysis following rapid correction of hyponatremia. Ann Neurol 1983; 13: 232-42. 670 LÆKNAblaðið 2008/94

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.